Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hlutabréfaverð í Kviku hríðlækkar

Read Full Article →

Hlutabréfaverð í Kviku hefur lækkað um tæp tólf prósent í viðskiptum í Kauphöllinni í morgun. Í gærkvöld var tilkynnt um að ekkert yrði af samruna Kviku og Arion banka. Áhrifin á hlutabréfaverð fyrirtækjanna tveggja voru misjöfn. Verð bréfa í Kviku hríðlækkaði en verðmæti hlutabréfa í Arion banka jókst um tæpt eitt og hálft prósent. Fulltrúar Arion banka og Kviku ræddu við Samkeppniseftirlitið í gær. Að afstöðnum þeim fundi sögðu stjórnendur fyrirtækjanna að ekki gæti orðið af samrunanum vegna afstöðu stofnunarinnar. Ekki verður af samruna Kviku og Arion banka.RÚV / Ragnar Visage

Share this article