- What: A four-year contract for flights to Ísafjörður was finalized
- Impact: Related to public transportation in Iceland
Flug til Ísafjarðar var boðið út í byrjun árs og hljóðaði kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar upp á 1,3 ma. kr. fyrir heildarverkið. Aðeins eitt tilboð barst í verkið frá Icelandair upp á rúma 3,5 ma. kr. Í tilkynningu segir að Vegagerðin hafi hafnað tilboðinu en bauð Icelandair til samningsviðræðna sem staðið hafa síðustu vikur. Á grundvelli útboðs og samningsviðræðna var ritað undir samning í gær, miðvikudaginn 15. apríl, og er heildarsamningsfjárhæð kr. 1.690.480.000 fyrir fjögur ár. Samkvæmt honum verður lágmarksfjöldi flugferða 452 hringferðir á ári á samningstímabilinu frá 1. september 2026 til og með 31. ágúst 2030. Þetta er um 28,5% fækkun ferða miðað við það sem gert var ráð fyrir í upphaflegu útboði og er í samræmi við heimild um magnbreytingar samkvæmt útboðsgögnum. Sjá einnig Jafna fyrra met yfir sætanýtingu í mars „Við erum ánægð með að hafa náð þessum samningi enda ekki sjálfgefið að hægt væri að ná samkomulagi. Þessi niðurstaða er gríðarlega mikilvæg fyrir Vestfirðinga þar sem flugið er mjög mikilvægur þáttur í samgöngum fjórðungsins. Með samningnum skapast aukinn stöðugleiki og fyrirsjáanleiki sem skiptir bæði íbúa og atvinnulíf miklu máli,“ segir Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar. Samningstími er fjögur ár, frá og með 1. september 2026 og til og með 31. ágúst 2030, með heimild til framlengingar um eitt ár ef forsendur þykja fyrir því. „Við erum ánægð með að ná samkomulagi við Vegagerðina og halda áfram flugi til Ísafjarðar. Flugleiðin er mikilvæg fyrir íbúa á Vestfjörðum en einnig teljum við tækifæri fólgin í því að þessi frábæri áfangastaður verði áfram aðgengilegur í sölu- og dreifikerfi okkar fyrir viðskiptavini okkar í Evrópu og Norður-Ameríku,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Fjöldi flugferða á viku er breytilegur eftir árstíma og miðast við minnst sjö ferðir á viku í janúar, febrúar, nóvember og desember, þar af eru minnst níu ferðir í mars, apríl, september og október en yfir sumartímann frá maí og fram í ágúst verða farnar að minnsta kosti 10 ferðir á viku.