Innlent | Morgunblaðið | 16.4.2026 | 15:35 Forræðishyggja og ákvörðunarfælni Tilmæli um að skólahald hefjist ekki í haust hafa vakið hörð viðbrögð og ríkir þverpólitísk sátt um andstöðu við tillögur nefndarinnar. mbl.is/Sigurður Bogi Óskar Bergsson [email protected] Setja bókamerki Þverpólitísk samstaða er í bæjarstjórn Grindavíkur um að skólastarf hefjist í bænum í haust og virðist Grindavíkurnefndin einangruð í tilmælum sínum um að leggjast gegn skólahaldi og mælast til þess að Þórkatla geri aðeins kaup- eða leigusamninga við barnlausar fjölskyldur. „Afstaða bæjarstjórnar er þveröfug við þessi tilmæli Grindavíkurnefndar og við erum staðráðin í að hefja skólastarf í haust,“ segir Hjálmar Hallgrímsson, formaður bæjarráðs Grindavíkur, og í sama streng taka þau Ásrún Helga Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar og Magnús Már Jakobsson oddviti Miðflokksins og benda á að búið sé að ráða skólastjóra. Ekkert bæjarlíf án barna Hjálmar, sem er oddviti D-listans, segir að þó að margt gott sé í skýrslu Grindavíkurnefndarinnar sé hann ekki sammála nefndinni um þetta atriði og telur rétt að hefja skólahald í haust og setja endurreisnina í fullan gang. Spurður hvort tilmæli Grindavíkurnefndarinnar muni hafa áhrif á fjárveitingar til sveitarfélagsins segir Hjálmar að það verði bara að koma í ljós. „Fólk sem vill flytja til baka og gera kaup- eða leigusamning við Þórkötlu sem er í eigu ríkisins bíður nú eftir því hvort settar verða einhverjar takmarkanir á það hverjir búi í húsunum.“ Grindavíkurnefndin leggur til að fólk sem flytur til bæjarins aftur verði ekki með börn og segir Hjálmar að þessi afstaða þeirra geti haft áhrif. „Okkar rök á móti þessum tilmælum er spurningin, hvaða líf sé án barna og það er að okkar mati klár mismunun að gera leigusamninga við fólk í heilu bæjarfélagi með þeim skilyrðum að ekki sé heimilt að börn búi í húsinu.“ Skólastarf sameinar Ásrún Helga sem er oddviti B listans segist finna fyrir þrýstingi frá Grindvíkingum sem eru með heimþrá og vilja flytja aftur heim og það veldur henni áhyggjum að þessi tilmæli nefndarinnar hafi mikið vægi. „Skólastarf sameinar fjölskyldur og nágranna, þetta skiptir mjög miklu máli og okkar framtíðarsýn er skýr og við viljum sameinast um þessi næstu skref. Að sjálfsögðu viljum við tryggja öryggi fólks og við erum tilbúin í endurreisn þessa góða samfélags. En ef við þurfum að bíða í eitt ár til viðbótar verður erfiðara að ná samstöðunni sem er nú til staðar. Fólkið okkar er núna dreift og þráir að koma aftur saman því tengslanetið er okkur dýrmætt.“ Einkennist af forræðishyggju Magnús Már Jakobsson segist ekki betur sjá en að Grindavíkurnefndin sé að fyrirbyggja það að Grindavík byggist upp aftur frekar en hitt. „Ég fæ heldur ekki séð af hverju það er svo hættulegt að opna skólann hérna. Þessi nefnd var sett á laggirnar til að hjálpa Grindvíkingum en ekki öfugt. Hér er búið að girða allar hættur af og því skyldi vera meiri hætta fyrir börn að búa hér í bænum en fullorðna? Ef við ætlum að vera með svona forræðishyggju gagnvart öllum fengju ekki mörg sveitarfélög, þar sem einhver náttúruvá steðjar að, að vera opin. Við vitum náttúrulega ekki hvenær, hvar eða hvort það gýs en það er búið að verja bæinn fyrir hraunrennsli og það má líkja þessu við bæi sem hafa verið varðir fyrir snjóflóðum. Það dettur engum í hug að banna skólahald þar.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Jóhann Gunnar ráðinn til Origo Rekstrarniðurstaða Kópavogsbæjar jákvæð um 4,6 milljarða króna Hafa engan áhuga á að reka Slot Forræðishyggja og ákvörðunarfælni Áfram hafnbann eins lengi og þörf krefur Umræðan Það er svo margt hægt að gera strax Gullkista útflutnings á Austurlandi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Andstaða við inngöngu snareykst milli ára Óábyrgt að fara að lofa einhverju Engin stemning fyrir flokkshroka Bændur með harða gagnrýni Mest lesið Í gær Í vikunni Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Andlát: Svavar Sigmundsson Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Sigmundur Davíð lét ekki segjast Hækkar byggingarkostnað Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Nýjast á mbl.is » Jóhann Gunnar ráðinn til Origo Rekstrarniðurstaða Kópavogsbæjar jákvæð um 4,6 milljarða króna Hafa engan áhuga á að reka Slot Forræðishyggja og ákvörðunarfælni Áfram hafnbann eins lengi og þörf krefur Umræðan Það er svo margt hægt að gera strax Gullkista útflutnings á Austurlandi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lágar álögur og vaxandi samfélag Hækkar byggingarkostnað Lýsa yfir furðu og vonbrigðum Andstaða við inngöngu snareykst milli ára Mest lesið Í gær Í vikunni Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Andlát: Svavar Sigmundsson Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Sigmundur Davíð lét ekki segjast Hækkar byggingarkostnað Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn