Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bandarískum kaþólikkum þykir Trump hafa gengið of langt í aðfinnslum við Leó páfa

Read Full Article →

Mörgum bandarískum kaþólikkum þykir Donald Trump forseti hafa gengið allt of langt í gagnrýni á Leó páfa XIV. Trump hefur með fordæmalausum hætti atyrt páfa vegna viðhorfa hans allt frá innflytjendamálum til stríðs Bandaríkjanna gegn Íran, kallað hann veiklundaðan gagnvart glæpum og vankunnandi í heimsmálunum. Forsetar Bandaríkjanna hafa gætt þess að ergja ekki kaþólikka enda fjölmennir meðal kjósenda. Trump naut meirihlutastuðnings meðal þeirra í kosningunum 2024. Opinberar orðasennur hans við páfa gætu að mati greinenda haft áhrif á fylgi Repúblikana í þingkosningunum í nóvember. Leó er fyrsti Bandaríkjamaðurinn á Páfastóli og hefur sagt það skyldu sína að andæfa stríði og ofbeldi . Hótanir Trumps um gereyðingu sex þúsund ára gamallar siðmenningar í Íran hefðu verið gersamlega óásættanlegar. Hann hefur líka varað við þeim hættum sem fylgt geta gervigreind án þess að nefna Trump sérstaklega. Gervigreindarmynd sem Trump birti af sjálfum sér í líki Krists jaðraði við guðlast að mati nokkurra bandarískra kaþólikka sem AFP ræddi við. Sumt mætti ekki gantast með. Myndinni var fljótlega eytt og Trump sagði hana sýna sig sem lækni. Einnig þótti nokkrum fáránlegt að Trump í fáfræði sinni reyndi að rökræða trúarleg atriði við sprenglærðan páfann. Leó var einnig hrósað fyrir að segjast ekki óttast bandarísk stjórnvöld . Öðrum fannst báðir hafa gengið of langt og einhverjum þótti páfi alltof gagnrýninn, bæði á Bandaríkin og Trump.

Share this article