Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stór lögregluaðgerð á Akureyri

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 12 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Norðurland Stór lög­reglu­að­gerð á Ak­ur­eyri Guðmundur Atli Hlynsson Umfangsmikil lögregluaðgerð er í gangi við Gránufélagsgötu á Akureyri. Heimir Eyjólfsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, staðfestir í samtali við fréttamann að sérsveit ríkislögreglustjóra taki þátt í aðgerðinni. Lögregla er með mikinn viðbúnað á svæðinu, segir Heimir. Samkvæmt ábendingu sem fréttastofu barst eru ekki færri en fjórir lögreglubílar og einn sjúkrabíll á vettvangi. Sérsveitarmenn við æfingar. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 28 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Skot­árás í Lou­isi­ana: Myrti sjö börn sín og eitt frænd­systk­ini þeirra Árásarmaður myrti átta börn í Louisiana í Bandaríkjunum í gær. Hann var faðir sjö þeirra. Þetta er mannskæðasta skotárás í landinu frá 2024. Fyrir 28 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Finnst ESB-um­ræð­an ein­kenn­ast af frösum og full­yrð­ing­um Svandís Svavarsdóttir segir umræðuna um aðildarviðræður að Evrópusambandinu eiga skilið meiri virðingu meðal stjórnmálafólks. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Enski boltinn Marka­laust jafn­tefli West Ham og Cryst­al Palace felldi Úlfana Helga Margrét Höskuldsdóttir West Ham og Crystal Palace gerðu markalaust jafntefli í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Jafnteflið reyndist öðru liði dýrkeypt því Úlfarnir eru nú formlega fallnir eftir átta ára veru í efstu deild. Það var hart barist hjá West Ham og Crystal Palace í kvöld en hvorugt liðið skoraði þó mark. EPA / DAVID CLIFF Úlfarnir, Wolverhampton Wanderers, hafa verið svo gott sem við límdir við botninn allt tímabilið og aðeins unnið þrjá leiki. Liðið er með 17 stig og stigið sem West Ham tryggði sér með jafntefli kvöldsins þýðir að Úlfarnir geta ekki náð þeim. West Ham er þó ekki sloppið verandi aðeins tveimur stigum frá fallsvæðinu í 17. sæti með 33 stig. Tottenham er í 18. sæti með 31 stig en Burnley kemur þar á eftir með 20 stig. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Körfubolti Haukar unnu fyrsta leik ein­víg­is­ins gegn Kefla­vík Helga Margrét Höskuldsdóttir Fyrsti leikur undanúrslitaeinvígis Hauka og Keflavíkur í úrslitakeppni kvenna í körfubolta var spilaður í Ólafssal á Ásvöllum í kvöld. Haukar byrjuðu af miklum krafti en fyrri hálfleikur var þó nokkuð jafn og í hálfleik var staðan 39-33, Haukum í vil. Heimakonur bættu svo áfram við forskotið í þriðja og fjórða leikhluta og unnu að lokum nokkuð þægilegan 85-71 sigur. Amandine Toi fór mikikinn fyrir Hauka í kvöld. RÚV / Mummi Lú Amandine Toi var drjúg í stigaskorun Hauka í kvöld með 34 stig auk þess að taka tvö fráköst og eiga fimm stoðsendingar. Liðin mætast næst í Keflavík á föstudag en Njarðvík og Grindavík eigast við í hinu undanúrslitaeinvíginu, þar sem Grindavík leiðir eftir sigur í gær. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Þjóð­bún­inga­messa í Austur-Land­eyj­um sló í gegn Fjöldi fólks sótti þjóðbúningamessu í Krosskirkju í Austur-Landeyjum í gær. Þjóðbúningamessa er árlegur viðburður í Rangárvallasýslu. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR List 250 millj­óna króna lista­verk í Vest­manna­eyj­um 250 milljóna króna listaverk verður afhjúpað í Vestmannaeyjum á næstunni. Verkið er eftir listamanninn Ólaf Elíasson og samanstendur af skúlptúr og göngustígum á Eldfell. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál „Ekki eins og þetta sé eftir lýta­lækni“ Kona sem fór í misheppnaða fegrunaraðgerð í Tyrklandi í gegnum íslenskan millilið veit ekki enn hver framkvæmdi aðgerðina. Konan er með stór og ljót ör eftir andlitslyftingu og aðskotahlutur varð eftir í andliti hennar í aðgerðinni. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Halla Berg­þóra tekin við starfi rík­is­lög­reglu­stjóra Guðmundur Atli Hlynsson Halla Bergþóra Björnsdóttir tók við starfi ríkislögreglustjóra í dag. Hún tók við embættinu af Kristínu Öldu Jónsdóttur, yfirlögfræðingi embættisins, sem var staðgengill ríkislögreglustjóra. Greint var frá þessu á Facebook-síðu Ríkislögreglustjóra. Halla Bergþóra tekur við embætti ríkislögreglustjóra af Kristínu Öldu. Ríkislögreglustjóri Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra skipaði Höllu Bergþóru í embættið. Í tilkynningu á Ísland.is segir að Halla Bergþóra hafi 19 ára reynslu af stjórnun lögregluembætta. Síðustu 17 ár hefur Halla Bergþóra verið settur eða skipaður lögreglustjóri í þremur embættum, meðal annars hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Þá var hún lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu frá 2020 og þar til nú. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 83% sveit­ar­fé­laga eru með út­svar­ið í botni Útsvarið er skrúfað í botn hjá flestum sveitarfélögum landsins, þar af tveimur á höfuðborgarsvæðinu. Lægsta útsvarsprósentan á höfuðborgarsvæðinu er á Seltjarnarnesi. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Banda­rísk­ur söngv­ari ákærð­ur fyrir að myrða ung­lings­stúlku Bandaríski söngvarinn D4vid var í dag ákærður fyrir að hafa banað fjórtán ára gamalli stúlku. Stúlkan fannst í skotti bifreiðar söngvarans. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Tal um að­lög­un þvæla og hræðslu­áróð­ur Forsætisráðherra segir tal um aðlögun í tengslum við aðildarviðræður við Evrópusambandið þvælu og sakar stjórnarandstöðuna um hræðsluáróður. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Langspils­bylt­ing Rós­hild­ar Anna Róshildur heimsótti Gísla Martein með heimasmíðað langspil í farteskinu. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál „Ég er ekki að segja mig úr Sjálf­stæð­is­flokkn­um“ Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir hefur verið skipuð sendiherra til næstu fimm ára. Hún ætlar að segja sig frá þingstörfum á næstu dögum en segir sig ekki úr Sjálfstæðisflokknum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Greiddi með 11 þúsund króna seðli Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur peningafals til rannsóknar. Í dagbók lögreglu segir að falsaður peningaseðill hafi verið í verslun á Seltjarnarnesi og það hafi verið 11.000 króna seðill. Peningaseðlar. 11 þúsund króna seðill er ekki til. Shutterstock Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Enn óvíst hvort frið­ar­við­ræð­ur fari fram í Islamab­ad Enn er óljóst hvort friðarviðræður fara fram á milli Bandaríkjanna og Íran í Islamabad, höfuðborg Pakistans, í dag þrátt fyrir fullyrðingar Donald Trump, Bandaríkjaforseta. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Fundu upp­lýs­ing­ar um 45 úkra­ínsk börn sem numin voru á brott Upplýsingar um 45 börn sem flutt voru með valdi frá hernumdum svæðum í Úkraínu fundust í samræmdu rannsóknarátaki á vegum Europol í Hollandi í liðinni viku. Tæplega 20 þúsund börn hafa verið numin á brott af Rússum frá því innrásin hófst árið 2022. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kópavogsbær Einn á slysa­deild eftir elds­voða í Kópa­vogi Einn var fluttur á slysadeild eftir að eldur kviknaði í kjallara fjölbýlishúss í Snælandshverfi í Kópavogi síðdegis. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Starm­er: „Ég hefði ekki átt að skipa Mand­el­son“ Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands segist bera ábyrgð á að hafa skipað Peter Mandelson sem sendiherra í Bandaríkjunum. Það hefði hann ekki átt að gera. Hann biður fórnarlömb Jeffrey Epstein afsökunar. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Herra Hnetu­smjör - Tón­list til að sigra við Herra Hnetusmjör sendi frá sér 10 laga breiðskífuna Tónlist til að sigra við þann 15. apríl en á plötunni leitar Herrann í rapp ræturnar eftir mikla velgengni IceGuys-flokksins. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ofbeldi Erfitt að bera kennsl á byrl­un­ar­of­beldi í nánum sam­bönd­um Teymisstýra í Bjarkarhlíð segir erfitt fyrir þolendur að bera kennsl á byrlanir í nánum samböndum. Umfjöllun CNN um víðtækt net manna sem byrla og nauðga eiginkonum sínum hefur vakið óhug. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Móts­hald­arar biðj­ast af­sök­un­ar: „Þetta voru hrein og klár mistök“ Stjórn TM-móts Stjörnunnar biðst afsökunar á að engin stelpa sé í myndböndum sem voru birt á Facebook-síðu mótsins. Þau segja að sett hafi verið inn eldra efni þar sem myndefni frá mótinu í ár hafi ekki verið tilbúið. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Þórdís Kol­brún hættir á þingi og verður sendi­herra Fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins hefur verið skipaður sendiherra. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Að­al­með­ferð í Kárs­nes­máli frest­að Fyrirtaka var í dag í Héraðsdómi Reykjaness vegna manndráps á Kársnesi í Kópavogi. Verjandi fór fram á dómkvaddan matsmann til að meta áverka þess látna. Aðalmeðferð verður því síðar en áður var ætlað. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Þrír menn grun­að­ir um að hafa tál­dreg­ið fjórt­án ára stúlk­ur Þrír menn á þrítugs- og fertugsaldri voru handteknir um helgina grunaðir um að hafa táldregið tvær fjórtán ára stúlkur. Lögreglan rannsakar meðal annars hvort mennirnir hafi byrlað stúlkunum og átt í samskiptum við aðrar stúlkur á svipuðum aldri. Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Draum­ur á gaml­árs­kvöld Árný Margrét Sævarsdóttir spilaði nýtt lag í Vikunni með Gísla Marteini. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Gæslu­varð­hald lík­lega fram­lengt í Detti­foss­máli Þrír eru í gæsluvarðahaldi grunaðir um aðkomu að smygli á 14 lítrum af amfetamínbasa með flutningaskipinu Dettifossi. Gæsluvarðhaldsúrskurður rennur út á morgun. Gera má ráð fyrir að farið verði fram á framlengingu. Fyrir 8 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Menning „Stórum hluta Reyk­vík­inga finnst eins og þeir hafi verið aldir upp í þessu húsi“ Á síðustu 50 árum hefur bíógestum í Reykjavík fækkað, þrátt fyrir að íbúafjöldinn hafi þrefaldast. Þór Martinsson sagnfræðingur hefur að undanförnu skoðað sögu elstu bíóhúsa Reykjavíkur og áhrif þeirra á borgarmenninguna. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hafnarfjörður Sina brennd á golf­velli Brynjólfur Þór Guðmundsson Sinubruni á Hvaleyri í Hafnarfirði hefur vakið athygli margra í dag og ófáar ábendingar hafa borist fréttastofu í hádeginu og síðdegis. Ekki mun vera hætta á ferðum. Hjá G

Share this article