- What: An Irish man detained by ICE in the US is requesting assistance from Irish authorities.
- Impact: The man claims to be held in poor conditions and fears for his safety.
Seamus Culleton er írskur en hefur búið í Bandaríkjunum í nærri 20 ár og eiginkona hans, Tiffany Smyth, er bandarísk. Hann hefur verið í haldi innflytjendastofnunar Bandaríkjanna, ICE, í fimm mánuði og biðlar til írskra stjórnvalda um aðstoð. Þann 9. september var Culleton tekinn af ICE-liðum og síðar fluttur á varðhaldsstöð í Texas, nærri fjögur þúsund kílómetrum frá heimili hans í Boston. Í viðtali við írska ríkissjónvarpið RTÉ sagðist hann óttast um líf sitt. „Þú veist aldrei hvað gerist. Þú veist ekki hvort það verða óeirðir. Þetta er martröð,“ sagði Culleton. Hann segist hafa verið lokaður inni í sama rýminu í fjóra og hálfan mánuð. „Ég hef varla fengið að fara út, ekkert frískt loft, engin sól. Það eru tvö sjónvörp og við erum 72 alls. Við fáum þrjár afar litlar máltíðir á dag, skammta fyrir börn. Það eru allir svangir,“ segir Culleton. Þá segir hann rýmið vera óhreint og salernin og sturturnar ógeðsleg. Hann var á leið heim úr vinnu 9. september þegar hann tók eftir því að blár Ford elti hann. Svo blikkuðu blá ljós og fleiri bílar bættust í hópinn. Culleton segist hafa gert eins og honum var sagt og svarað spurningum fulltrúanna. Hann sé í þann mund að fá græna kortið og sé með atvinnuleyfi. Culleton segir að samt sem áður hafi þeir handtekið sig. Hann hefur beðið írska stjórnmálamenn um aðstoð við að sleppa úr haldi í Texas. „Þetta er pynting, ég veit ekki hversu lengi ég þoli þetta.“ Heyrði ekki frá honum í viku Eiginkona hans, Tiffany Smyth, ræddi einnig við írska ríkissjónvarpið. Hún segist ekki hafa heyrt frá honum í heila viku eftir að hann var handtekinn. Systir Culletons segir að enn þann dag í dag viti þau ekki hvers vegna ICE hafi tekið hann. „Hann var með atvinnuleyfi en ekki græna kortið. Atvinnuleyfið fékk hann sem hluta af umsóknarferlinu um græna kortið sem var 99% klárað. Hann fór í síðasta viðtalið rétt áður en hann var tekinn,“ sagði hún við RTÉ. John McGuinnes, þingmaður Fianna Fáil og flokksbróðir forsætisráðherra, segir að gripið verði til aðgerða. Forsætisráðherrann viti af málinu og það væri hjá utanríkisþjónustunni.