Innlent | Morgunblaðið | 11.2.2026 | 10:05 Nýtt framboð í Grímsnesinu Andrés Bertelsen Nýtt framboð hefur verið boðað í Grímsnes- og Grafningshreppi í komandi sveitarstjórnarkosningum sem fram munu fara 16. maí nk., en það býður fram undir merkjunum Betri sveit. Í tilkynningu frá framboðinu segir að oddviti þess hafi verið kosinn Andrés Bertelsen, en aðrir frambjóðendur verði kynntir til leiks á næstu vikum sem og helstu stefnumál framboðsins. Andrés er Skagfirðingur að uppruna, fæddur og uppalinn á Silfrastöðum, en búsettur í Grímsnes- og Grafningshreppi ásamt sambýliskonu sinni og börnum. Fram kemur að Betri sveit muni hafa það að markmiði að stjórnsýsla sveitarfélagsins verið opnari, stuðlað verði að sanngjörnum ákvörðunum sem ætíð byggist á hagsmunum samfélagsins í heild. Lögð verði áhersla á skýrt utanumhald um framvindu verkefna og þeirra málefna sem sveitarfélagið standi að eða standi frammi fyrir. Þá segir að Betri sveit vilji aukið samráð, en vilja íbúa megi m.a. kanna með ráðgefandi íbúakosningu. Markmiðið skuli vera að efla með markvissum hætti lýðræðisleg vinnubrögð í sveitarfélaginu, verja fé til framkvæmda eftir forgangsröðun íbúanna sjálfra með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi. Í tilkynningunni segir enn fremur að Andrés starfi við hugbúnaðarþróun í alþjóðlegu nýsköpunarverkefni, en starfsferill hans spanni alþjóðlega markaðssetningu, fjölmiðlun og hönnun flókinna tæknikerfa. Hann hafi og reynslu úr nýsköpunarfyrirtækjum sem og rótgrónum fyrirtækjum. Framboðið hefur verið í undirbúningi um nokkurn tíma, en íbúar í frístundabyggðum í Grímsnes- og Grafningshreppi hafa haft forgöngu í málinu. Hafa þeir sem eru með fasta búsetu í heilsárshúsi í hreppnum með sér félagsskapinn Búsetufrelsi sem hefur verið drifkrafturinn í framboðsmálunum sem leitt hefur til framboðs Betri sveitar. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Leita að verkum Nínu Sæmundsson Undirrituðu samning um dýpkun við Hornafjörð Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Frank rekinn frá Tottenham Nýtt framboð í Grímsnesinu ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Samræmismat en ekki samningar Fleira áhugavert Hryðjuverkamálið flutt fyrir Hæstarétti í dag Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Auknar líkur á þunglyndi fyrir framan skjá „Skattar eru of háir á barnafjölskyldur“ Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Einum af sex skólameisturum tilkynnt um stöðuna Sindri mættur fyrir dóm Hryðjuverkamálið flutt fyrir Hæstarétti í dag Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Þrír handteknir eftir innbrot í verslun Mun fleiri taka hlutdeildarlán Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Andlát: Valgarð Már Jakobsson Tæplega 600 skráð sig úr flokknum Leita að verkum Nínu Sæmundsson Undirrituðu samning um dýpkun við Hornafjörð Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Frank rekinn frá Tottenham Nýtt framboð í Grímsnesinu ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Samræmismat en ekki samningar Fleira áhugavert Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar „Skattar eru of háir á barnafjölskyldur“ Níu drepnir í skotárás í Kanada Mun fleiri taka hlutdeildarlán Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Einum af sex skólameisturum tilkynnt um stöðuna Sindri mættur fyrir dóm Hryðjuverkamálið flutt fyrir Hæstarétti í dag Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Þrír handteknir eftir innbrot í verslun Mun fleiri taka hlutdeildarlán Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Andlát: Valgarð Már Jakobsson Tæplega 600 skráð sig úr flokknum