Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Alvarlegt umferðarslys þegar ekið var á konu á níræðisaldri

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 16 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Al­var­legt um­ferð­ar­slys þegar ekið var á konu á ní­ræð­is­aldri Grétar Þór Sigurðsson Konan var flutt á slysadeild til aðhlynningar. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Ekið var á konu á níræðisaldri á Skógarvegi í Reykjavík í gærkvöld. Á vettvangi var atvikið metið sem alvarlegt að sögn Ásmundar Rúnars Gylfasonar aðstoðaryfirlögregluþjóns. Konan var flutt á slysadeild til skoðunar. Lögreglan hefur ekki frekari upplýsingar um líðan hennar að svo stöddu. Ásmundur segir ekki vitað hve hratt bílnum var ekið. Það er á meðal þess sem lögreglan rannsakar. Fyrir 32 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dýravelferð Starfs­fólki MAST og fjöl­skyld­um þeirra ógnað Forstjóri MAST segir starfsmenn stofnunarinnar og jafnvel fjölskyldur þeirra hafa sætt hótunum vegna aðgerða stofnunarinnar í tengslum við dýravelferð. Dæmi séu um að starfsfólk hafi komið upp öryggiskerfum og óttist um börn sín. Fyrir 39 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntir Cill­i­an Murphy um Að­ventu: „Þetta gæti verið kvik­mynd“ Það vakti athygli í vetur þegar írski leikarinn mærði Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness í viðtali við vinsælan áhrifavald í vetur. Hinn síðarnefndi færði leikaranum eintak af enskri þýðingu á Aðventu á dögunum. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Tollar Trumps Hótar Bretum háum tolli ef þeir leggja ekki niður net­s­katt Bandaríkjaforseti segir netskatta hannaða til þess að mismuna bandarískum tæknifyrirtækjum. Hann vill leggja háa tolla á Bretland ef skattur, sem meðal annars leggst á Apple, Google og Meta, verður ekki felldur niður. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Sig­ur­sæl­ustu liðin hefja úr­slita­ein­víg­ið í kvöld Fyrsti leikur úrslita Olísdeildar karla í handbolta er í kvöld þegar Valur tekur á móti FH að Hlíðarenda. Liðin urðu í tveimur efstu sætum deildarinnar í vetur og eru líka þau sigursælustu í sögunni hérlendis. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Smá­veg­is væta norð­an­lands en bjart veður sunnan til Það verður skýjað norðanlands í dag og hiti á bilinu 3 til 8 stig. Bjart veður og öllu hlýrra verður sunnanlands. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Grikkland Jarð­skjálfti fyrir utan strönd­um Krítar Brynja Dögg Friðriksdóttir Kirkja sem eyðilagðist í jarðskjálfta í Roussochoria á Austur-Krít 27. september 2021. Myndin tengist fréttinni óbeint. EPA / NIKOS CHALKIADAKIS Jarðskjálfti að stærðinni 5,8 varð í morgun fyrir utan strönd grísku eyjunnar Krítar. Engar fregnir hafa borist af manntjóni eða eyðileggingu. Skjálftinn átti upptök sín á um 13 kílómetra dýpi, um 11,5 kílómetra suðaustur af borginni Ierapetra um klukkan korter yfir sex að staðartíma. Fjölmargir jarðskjálftar urðu á þessum slóðum á síðasta ári. Um þrjú hundruð ára gamalt klaustur skemmdist í einum slíkum skjálfta sem var 5,3 að stærð. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Rann­sókn lest­ar­slyss­ins gæti tekið marga mánuði Brynja Dögg Friðriksdóttir Viðbragðsaðila við störf á vettvangi lestarslysins. EPA / Mads Claus Rasmussen Lestarslysið á Norður-Sjálandi í Danmörku er eitt alvarlegasta lestarslys sem gerst hefur þar í landi. Þetta segir Bo Haaning, hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa, í viðtali við danska ríkisútvarpið DR. Hann segir að rannsókn slyssins verði ítarleg og geti tekið marga mánuði áður en niðurstöður liggja fyrir um orsakir slyssins. Enn sé því of snemmt að segja til um orsakir slyssins. Að minnsta kosti 17 slösuðust þegar tvær lestir úr gagnstæðum áttum skullu saman á sama spori milli Hillerød og Kagerup. Fimm eru enn í lífshættu. Alls voru 37 um borð í lestunum þegar slysið átti sér stað. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Banda­rísk­ur sér­sveit­ar­mað­ur ákærð­ur fyrir að hafa hagn­ast á veð­mál­um tengd­um hand­töku Madur­os Sérsveitarmaðurinn hagnaðist um 50 milljónir með því að veðja á handtöku Maduros og eiginkonu hans Ciliu Flores á veðmálasíðunni Polymarket. Hann kom að undirbúningi og tók sjálfur þátt í handtökunum. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Einn var drep­inn og fimm særð­ust í skot­árás í Mall of Lou­isi­ana Brynja Dögg Friðriksdóttir Óeinkennisklæddir lögreglumenn við störf við Mall of Louisiana. AP/FR170690 AP / Matthew Hinton Einn lést og fimm eru særðir, þar af einn alvarlega, eftir skotárás í verslunarmiðstöð í Baton Rouge í Louisiana-ríki í Bandaríkjunum í gær. NBC News greinir frá. Árásin átti sér stað í Mall of Louisiana, þegar tveir hópar hófu að skjóta hvor á annan í mathöll verslanamiðstöðvarinnar um klukkan hálf tvö að staðartíma. Lögreglustjóri Baton Rouge, Thomas Morse Jr., segir að árásin hafi ekki verið tilfallandi, heldur ósætti milli tveggja hópa sem endaði með skelfilegum hætti fyrir saklaus fórnarlömb. Enginn hinna særðu er grunaður um að hafa tekið þátt í árásinni samkvæmt lögreglustjóranum. Fimm voru settir í gæsluvarðhald vegna skotárásarinnar. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Pútín boðið á G20 fund Bandaríkin hafa boðið Vladimír Pútín Rússlandsforseta á G20-fund sem verður í desember í Bandaríkjunum. Hann hefur ekki enn þegið boðið. Pútín hefur ekki tekið þátt í G20-fundi síðan 2019. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Samfélagsmiðlar Meta segir upp 10% starfs­fólks síns Allt að 8.000 manns verður sagt upp hjá Instagram og Facebook og taka uppsagnirnar gildi í maí. Meta er í harðri samkeppni við aðra tæknirisa en fyrirtækin keppast um að fjárfesta og þróa gervigreind. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Vopna­hlé milli Ísrael og Líban­on fram­lengt Brynja Dögg Friðriksdóttir Donald Trump Bandaríkjaforseti. AP / Alex Brandon Vopnahlé milli Ísrael og Líbanon verður framlengt um þrjár vikur. Þetta segir Donald Trump Bandaríkjaforseti í færslu sem hann birti á samskiptamiðlinum Truth Social í kvöld. Háttsettir fulltrúar Ísraela og Líbana funduðu með Bandaríkjaforseta, J.D. Vance varaforseta og Marco Rubio utanríkisráðherra í Washington í dag. Samkvæmt Bandaríkjaforseta gekk fundurinn vel og Bandaríkjastjórn ætlar að vinna með ríkisstjórn Líbanon og aðstoða hana við að vernda sig gegn Hezbollah-samtökunum. Trump sagði að innan tíðar muni Bandaríkin bjóða forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Netanyahu, og forseta Líbanon, Joseph Aoun, til fundar í Bandaríkjunum. 23. apríl 2026 kl. 22:12ERLENDAR FRÉTTIR Bretland Býr til risa­stór­ar út­gáf­ur af hvers­dags­leg­um hlutum Maður einn í Peterborough í Bretlandi hóf að hugsa stórt þegar hann hætti að vinna. Hann hefur um nokkurt skeið haft það að áhugamáli að búa til risastórar útgáfur af hversdagslegum hlutum. 23. apríl 2026 kl. 21:45INNLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi „Við erum að breyta hvern­ig við hugsum um tauga­hrörn­un­ar­sjúk­dóma“ Ný rannsókn sýnir fram á að hvíta efni heilans geti verið lykill að því að finna upptök heilahrörnunarsjúkdóma. 23. apríl 2026 kl. 21:19ÍÞRÓTTIR Fótbolti Valur og Vík­ing­ur unnu leiki kvölds­ins Einar Örn Jónsson Tveir leikir voru í 3. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Víkingur lagði Stjörnuna 3-2 og Valur vann FH 3-0. Víkingur fór í annað sætið með sigrinum, upp fyrir Stjörnuna. Víkingur er með 7 stig, tveimur færri en KR. Valur er með 6 stig eins og Stjarnan en FH er með 1 stig. Víkingur-Stjarnan: 0-1 Örvar Eggertsson 5' 1-1 Elías Már Ómarsson 21' 1-2 Andri Rúnar Bjarnason 52' 2-2 Elías Már 54' 3-2 Óskar Borgþórsson 83' Valur-FH: 1-0 Adam Ægir Pálsson 9' 2-0 Hörður Ingi Gunnarsson 14' 3-0 Hólmar Örn Eyjólfsson 37' Gylfi Þór Sigurðsson RÚV / Mummi Lú 23. apríl 2026 kl. 21:14ÍÞRÓTTIR Körfubolti Grinda­vík í lyk­il­stöðu gegn Njarð­vík Einar Örn Jónsson Grindavík vann Njarðvík öðru sinni í undanúrslitarimmu liðanna í Bónusdeild kvenna í körfubolta í kvöld, 94-75. Njarðvík varð deildarmeistari í vetur á meðan Grindavík varð í 5. sæti og því er staðan aðeins óvænt. Grindavík getur komist áfram í úrslitarimmuna með sigri í þriðja leik liðanna á mánudag. Keflavík og Haukar mætast öðru sinni í hinu einvíginu annað kvöld. Haukar unnu fyrsta leikinn. Abby Beeman var stigahæst hjá Grindavík í kvöld með 24 stig. RÚV / Mummi Lú 23. apríl 2026 kl. 20:44INNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Barna­menn­ing­ar­dag­ar í fyrsta skipti á Suð­ur­landi Barnamenningardagar eru nú haldnir í fyrsta skipti á Suðurlandi en boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn og unglinga í öllum sveitarfélögum landshlutans. 23. apríl 2026 kl. 20:04ERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Hefja um­fangs­mikla rann­sókn á al­var­legu lest­ar­slysi Yfirvöld í Danmörku hafa hafið umfangsmikla rannsókn á alvarlegu lestarslysi á Sjálandi í morgun. Ekki er vitað hvað olli slysinu og fimm eru í lífshættu. 23. apríl 2026 kl. 19:47INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Ís­lensk­ar vef­versl­an­ir selja stinn­ing­ar­hun­ang og litla frænda Spice Hunang með stinningarlyfjum og efni sem veitir kannabisáhrif er meðal varnings sem hver sem er getur keypt á íslenskum vefsíðum. Réttarefnafræðingur segir ómögulegt að segja hvar slík efni séu framleidd. 23. apríl 2026 kl. 19:02ÍÞRÓTTIR Fótbolti Þór vann í fyrsta leikn­um á nýjum velli Einar Örn Jónsson Þór tók á móti Fram á Akureyri í Bestu deild karla í dag. Leikurinn var fyrsti heimaleikur Þórs á nýju gervigrasvelli þeirra. Tímamótunum fagnaði Þór með því að vinna Fram með einu marki gegn engu. Sebastian Haugland skoraði eina mark leiksins á 49. mínútu. Þór er með sex stig eftir þrjá leiki en Fram með fjögur. Stuðningsmenn Þór höfðu ástæðu til að gleðjast í dag Rúv / Mummi Lú 23. apríl 2026 kl. 19:01ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Trump færir mari­jú­ana niður um al­var­leika­flokk Marijúana verður ekki lengur í sama flokki og heróín og amfetamín og því verður auðveldara fyrir Bandaríkjamenn að nota það í lækningaskyni. Bandaríkjastjórn heitir því að skoða enn frekari breytingar á flokkun marijúana. 23. apríl 2026 kl. 18:49INNLENDAR FRÉTTIR Borgarbyggð Fögn­uðu sumri með reið­sýn­ingu Nemendur Landbúnaðarháskóla Íslands héldu upp á svokallaðan Skeifudag í dag með reiðkeppni og reiðsýningu. 23. apríl 2026 kl. 18:40INNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Drottn­ing vaknar úr dvala Sumar

Share this article