Innlent | Morgunblaðið | 11.2.2026 | 11:00 Hver innviðaframkvæmd verði í sér félagi Ný brú yfir Ölfusá sem nú er í byggingu er eitt stærsta innviðaverkefnið í samgöngum sem unnið er að. Ljósmynd/Vegagerðin Mikilvægt er að verkefni væntanlegs innviðafélags séu sett upp með þeim hætti að unnt sé að taka afstöðu til þátttöku í hverju og einu þeirra. Þetta er mat Landssamtaka lífeyrissjóða sem fram kemur í umsögn þeirra um drög að frumvarpi um innviðafélag en því er ætlað er að standa að uppbyggingu samgönguverkefna. Óheppilegt sé að safna mörgum verkefnum saman í eitt eignarhaldsfélag, enda kunni ólíkar skoðanir að vera uppi um hvaða verkefni séu arðbær og hver ekki. Segja samtökin í umsögninni, sem birt er á samráðsgátt stjórnvalda, að í ljósi þess að svo virðist sem innviðafélagið eigi einnig að taka að sér óarðbær verkefni, telji þau óhjákvæmilegt að setja hverja framkvæmd í sérstakt félag. Tryggja þurfi sjálfstæði slíks dótturfélags sem og heimildir til t.d. lántöku og gjaldheimtu af notkun samgöngumannvirkja. Þórey S. Þórðardóttir framkvæmdastjóri samtakanna segir í samtali við Morgunblaðið að hver og einn lífeyrissjóður sé sjálfstæður og taki ákvarðanir um eigin fjárfestingar. Hins vegar skipti máli að hægt verði að meta hverja og eina fjárfestingu fyrir sig og nálgun að hverju verkefni, út frá ávöxtun og áhættu hverju sinni. „Hugmyndin að stofnun innviðafélags er góð því það er mikilvægt að skapa traustan farveg sem liðkað getur fyrir fjárfestingu lífeyrissjóða og annarra stofnanafjárfesta. Við vitum að það er mikil þörf fyrir fjárfestingu í innviðum og ekki bara samgönguinnviðum, eins og þetta mál gengur út á,“ segir Þórey. Þórey segir að lífeyrissjóðir þurfi að meta hverja einustu fjárfestingu, þeirra hlutverk sé að taka við iðgjöldum, ávaxta þau og greiða út lífeyri. Það sé þeirra lögbundna hlutverk. „Mikilvægast er að hvert verkefni sé vel skilgreint og hafi traustan fyrirsjáanleika, þannig að það séu forsendur fyrir fjárfesta, og þar með lífeyrissjóði, til að meta aðkomu sína að viðkomandi verkefni,“ segir Þórey og bendir á að landssamtökin leggi aldrei mat á ákveðnar fjárfestingar, heldur umhverfið sem slíkt. Sjóðirnir meti sjálfir hvað þeir telji vænlegar fjárfestingar. Þá nefnir hún að hugtakið fjárhagsleg sjálfbærni, sem nefnt sé í frumvarpinu, kunni að valda misskilningi. Skýrara væri að nota hugtakið rekstrarhæfi með ásættanlegri arðsemi. Þórey segir að samtökunum lítist vel á áform um stofnun innviðafélags. „Það er mjög brýnt að fundinn verði traustur farvegur sem getur liðkað fyrir fjárfestingum lífeyrissjóða í innviðum, en það er hvers og eins lífeyrissjóðs að meta aðkomu sína að viðkomandi fjárfestingu. En það að búinn sé til farvegur og skýr rammi utan um þetta ætti að vera af hinu góða. Einnig að byggja upp þekkingu og fagmennsku utan um þessi mál, þannig að það skapist traust, ekki bara gagnvart fjárfestum, heldur samfélaginu í heild,“ segir Þórey. Fram kemur í umsögninni að skv. greinargerð með frumvarpinu komi til greina að innviðafélagið taki lán á almennum markaði með ríkisábyrgð. Leggja samtökin áherslu á að verði af útgáfu slíks skuldabréfs, sé mikilvægt fyrir trúverðugleika og traust að skilmálar ríkisábyrgðarinnar séu skýrir frá upphafi. Draga verði lærdóm af máli ÍL-sjóðs. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Völtuðu yfir Lakers í LA Vala Matt selur íbúðina sem hún stækkaði með leynitrixum Ferjan á áætlun eftir að ekjubrúin hafnaði í sjónum Svör um horfna skýrslu stangast á Elskar örin eftir brjóstnámið ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Samræmismat en ekki samningar Fleira áhugavert Mestu vonbrigðin í forstjóratíð Runólfs Neitar afturvirkni í búvörufrumvarpi Hryðjuverkamálið flutt fyrir Hæstarétti í dag Stal úlpu, réðst á tvær konur og stakk pilt Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Sindri mættur fyrir dóm Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Einum af sex skólameisturum tilkynnt um stöðuna Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Hryðjuverkamálið flutt fyrir Hæstarétti í dag Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Þrír handteknir eftir innbrot í verslun Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Andlát: Valgarð Már Jakobsson Tæplega 600 skráð sig úr flokknum Völtuðu yfir Lakers í LA Vala Matt selur íbúðina sem hún stækkaði með leynitrixum Ferjan á áætlun eftir að ekjubrúin hafnaði í sjónum Svör um horfna skýrslu stangast á Elskar örin eftir brjóstnámið ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Samræmismat en ekki samningar Fleira áhugavert Hryðjuverkamálið flutt fyrir Hæstarétti í dag Mestu vonbrigðin í forstjóratíð Runólfs Skýr arðsemismarkmið mikilvæg Níu drepnir í skotárás í Kanada Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Sindri mættur fyrir dóm Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Einum af sex skólameisturum tilkynnt um stöðuna Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Hryðjuverkamálið flutt fyrir Hæstarétti í dag Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Þrír handteknir eftir innbrot í verslun Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Andlát: Valgarð Már Jakobsson Tæplega 600 skráð sig úr flokknum