Innlent | Morgunblaðið | 26.4.2026 | 7:43 Vilja hækkun framlags vegna mikils árangurs Húsakynni Heilsustofnunar NLFÍ. Miklar byggingar þar sem mikilvægri endurhæfingu er sinnt. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Viðræður standa nú yfir milli fulltrúa Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði og Sjúkratrygginga Íslands um þjónustusamning stofnunarinnar við ríkið til lengri tíma. Fyrir liggja góð orð um hækkun framlaga, en stjórnendur stofnunarinnar segja starfsemina vanfjármagnaða og að hún njóti ekki hins sama í framlögum og annað sambærilegt. Mat að verðleikum „Það er ánægjuefni að stofnunin verði metin að verðleikum að þessu leyti en brýnt er að Heilsustofnun fái einnig greiðslur til að viðhalda og endurnýja húsnæði sitt í Hveragerði, alls 12.800 fermetra af húsnæði sem starfsemin fer fram í,“ segir Þórir Haraldsson forstjóri HNLFÍ, en ársfundur hennar var haldinn síðastliðinn þriðjudag. Á árinu 2024 fékk Heilsustofnun liðlega 1,1 milljarð kr. frá ríkinu samkvæmt þjónustusamningi. Fyrir þjónustu og meðferð greiddu dvalargestir alls 536 millj. kr. Ádráttur um aukin fjárframlög hins opinbera til Heilsustofnunar byggist meðal annars á mælingum sem sýna að árangur af meðferð þar þykir mjög góður og árangursríkur. Allt er það samkvæmt viðurkenndum mælikvörðum. Fram kom í grein eftir Þóri Haraldsson í Morgunblaðinu í nóvember síðastliðnum að Heilsustofnun hefði fengið innan við helming af þeim greiðslum sem aðrir aðilar hefðu fengið fyrir sambærilega þjónustu. Þessu væri mikilvægt að breyta til jafnræðis. Allir með tilvísun Nú njóta um 1.350 gestir endurhæfingar á stofnuninni árlega samkvæmt þjónustusamningi við Sjúkratryggingar Íslands. Langflestir þeirra lýsa, að sögn Þóris, því sjálfir að mjög miklu hafi skipt fyrir góðan árangur þeirra af meðferðinni að hafa fengið tækifæri til að vera í sólarhringsdvöl og einbeita sér að því að bæta heilsu og líðan með lágmarks utanaðkomandi truflun, á þeim fjórum vikum sem meðferðin að jafnaði er. Allir gestir koma samkvæmt tilvísun frá lækni og fá einstaklingsmiðaða og þverfaglega meðferð. Þar er mikið lagt upp úr hæfilegri hreyfingu, útivist í fallegri náttúru, ýmsum vatnsmeðferðum en ekki síður hvíld, núvitund og slökun – ásamt fræðslu og ráðgjöf. Þetta er þjónusta sem fólk í ýmsum fagstéttum heilbrigðisþjónustu veitir, en alls eru starfsmenn stofunnar 110 talsins. Margfaldar lífsgæðin Niðurstaða mælinga á meðferðarárangri í Hveragerði er mjög góð, hvort sem litið er til líkamlegrar, andlegrar eða félagslegrar heilsu. Árangur af verkjameðferð þykir athyglisverður, eða bæting allt að 42% í viðurkenndum verkjaprófum. Miklir verkir eru vaxandi heilsufarsvandamál og meðferð og árangur þar afar mikilvæg. „Árangursrík endurhæfing margfaldar lífsgæði viðkomandi einstaklings og eykur einnig lífsgæði aðstandenda þeirra. Ávinningurinn er mikill,“ segir Þórir Haraldsson. Þórir Haraldsson Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Bar upp bónorð með snjóbolta á toppi Heklu Þessi sorg er ólýsanleg Vilja hækkun framlags vegna mikils árangurs Árásarmaðurinn nafngreindur Verslanirnar vilja fá íslenskar gúrkur Umræðan Verkin sýna merkin Tungutak eyjamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ölgerðin lagði ríkið í Somersby-máli Í umferðarteppu í 92 klukkustundir „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Veltihringrásin nálgast vendipunkt Mest lesið Í gær Í vikunni Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ X26: Reyna að nota Starlink-búnað í skólabílnum Þrjú hundruð krítískir veikleikar Þriggja stiga skjálfti í Bárðarbungu Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum Fjarskipti versnað mikið eftir brotthvarf 2G og 3G Í umferðarteppu í 92 klukkustundir Einn fær 2,5 milljónir: Fjórfaldur pottur næst Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Skemmdarvargar lögðu salerni í rúst Í umferðarteppu í 92 klukkustundir Miðflokksfáni deilir fánastöng með hinsegin fána Útlendingar tæp 70% þeirra sem fá fjárhagsaðstoð „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Meirihlutinn í Kópavogi fallinn Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Vendinga að vænta í veðrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum Nýjast á mbl.is » Bar upp bónorð með snjóbolta á toppi Heklu Þessi sorg er ólýsanleg Vilja hækkun framlags vegna mikils árangurs Árásarmaðurinn nafngreindur Verslanirnar vilja fá íslenskar gúrkur Umræðan Verkin sýna merkin Tungutak eyjamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hafa hótað og áreitt starfsfólk Fjarskipti versnað mikið eftir brotthvarf 2G og 3G Þriggja stiga skjálfti í Bárðarbungu Minntust Giuffre skömmu fyrir komu Bretakonungs Mest lesið Í gær Í vikunni Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ X26: Reyna að nota Starlink-búnað í skólabílnum Þrjú hundruð krítískir veikleikar Þriggja stiga skjálfti í Bárðarbungu Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum Fjarskipti versnað mikið eftir brotthvarf 2G og 3G Í umferðarteppu í 92 klukkustundir Einn fær 2,5 milljónir: Fjórfaldur pottur næst Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Skemmdarvargar lögðu salerni í rúst Í umferðarteppu í 92 klukkustundir Miðflokksfáni deilir fánastöng með hinsegin fána Útlendingar tæp 70% þeirra sem fá fjárhagsaðstoð „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Meirihlutinn í Kópavogi fallinn Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Vendinga að vænta í veðrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum