Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Eins og ráðherra sé að vara við barneignum

Read Full Article →

Innlent | mbl | 26.4.2026 | 22:15 Eins og ráðherra sé að vara við barneignum Einar Jóhannes Guðnason bregst við skrifum Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra og segir afstöðu hennar ekki koma á óvart. Samsett mynd/mbl.is/Eggert Jóhannesson/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Segir hugmyndir um heimgreiðslur vera snákaolíu Samfylkingin á flugi og meirihlutinn fallinn Viðsnúningur eftir sársaukafullar aðgerðir Meirihlutinn í Kópavogi fallinn » Fleiri tengdar fréttir Oddviti Miðflokksins í Kópavogi segir gagnrýni dómsmálaráðherra á hugmyndir flokksins er varða heimgreiðslur til foreldra til að brúa bilið frá fæðingarorlofi til leikskóla ekki koma sér á óvart, enda hafi ráðherra áður sett sig upp á móti tillögum Miðflokksins hvað varði forræði foreldra yfir eigin fæðingarorlofi. „Afstaðan ætti ekki að koma á óvart, hún var mjög afdráttarlaus í sinni afstöðu þegar kom að fæðingarorlofsmálum þegar Miðflokkurinn vildi að foreldrar hefðu fullt forræði yfir því hvernig þau vildu skipta fæðingarorlofi á milli sín. Þá treysti hún ekki foreldrum og var hörð í sinni afstöðu að þetta mætti alls ekki gerast,“ segir Einar Jóhannes Guðnason, oddviti Miðflokksins í Kópavogi, í samtali við mbl.is. Frétt af mbl.is Segir hugmyndir um heimgreiðslur vera snákaolíu Því komi það honum ekki á óvart að Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra virðist ekki treysta foreldrum fyrir heimgreiðslum heldur. Þorbjörg birti færslu á Facebook fyrr í dag þar sem hún svaraði aðsendri skoðanagrein Thelmu Árnadóttur, sem skipar fjórða sæti Miðflokksins í Kópavogi, og líkti Miðflokksmönnum þar við snákaolíusölumenn sem boðuðu aðgerðir til þess að færa samfélagið aftur til fortíðar undir þeirri yfirskrift að auka valfrelsi kvenna. Efast um að þær sjái eftir börnunum á dánarbeðinu Aðspurður um það hvort hann taki afstöðu til ummæla Þorbjargar um að auknar heimgreiðslur kunni að ýta undir launamun kynjanna, þar sem ráðherra vitnar í rannsókn Unu Margrétar Lyngdal, segir Einar það hljóma eins og ráðherra sé að vara við barneignum, sem sé vægast sagt undarlegt. „Það er eins og hún sé að vara við barneignum, sem er náttúrulega bara mjög skrýtið. En ég hef áður sagt það, að ef foreldrar geta komið sér saman um það að eignast barn, þá hljóta þeir að geta komið sér saman um það hvernig þeir ætli að gera það,“ segir hann. Þá efist hann um að margar konur sjái eftir því að hafa valið barneignir fram yfir laun á dánarbeðinu. „Ég efast um að það séu margar mæður sem á dánarbeðinu hugsi með sér, ,ohh, ég hefði nú kannski frekar átt að sleppa því að eignast þessi börn svo ég hefði getað fengið meiri laun yfir líftímann,' eins og hún virðist vera að gefa í skyn,“ segir hann. „Manni finnst eiginlega Viðreisn vera meira og meira að sýna það að þau séu ákveðinn forræðishyggjuflokkur.“ Fagnar að ráðherra sýni sveitarstjórnarmálum áhuga Einar fagnar því samt sem áður að ráðherra sýni sveitastjórnarmálum áhuga, þótt hann segi þann áhuga einnig nokkuð undarlegan. „Við fögnum því að hún sýni sveitarstjórnarmálum áhuga. Við finnum allavega ákall frá foreldrum að þeir vilji hafa val og við erum búin að leggja fram breytingartillögu á þinginu um að foreldrar geti valið hvernig fæðingarorlofinu sé skipt.“ Heimgreiðslur séu fyrst og fremst hugsaðar til þess að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskólavistar, enda ættu foreldrar að hafa ákveðið val til þess að geta brúað bilið svo annað foreldrið sitji ekki eftir heima algerlega launalaust. Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Segir hugmyndir um heimgreiðslur vera snákaolíu Samfylkingin á flugi og meirihlutinn fallinn Viðsnúningur eftir sársaukafullar aðgerðir Meirihlutinn í Kópavogi fallinn » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þrjú á verðlaunapalli í Manchester Eins og ráðherra sé að vara við barneignum Obama fordæmir árásina „Ég komst ekki á mynd en er það ekki smá vísbending um að ég eigi að gera betur næst“ Skrítinn taktur í öllu sem við vorum að gera Umræðan Verkin sýna merkin Tungutak eyjamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þjálfunaraðstaða lögreglu stenst ekki samanburð Leiðtogar heimsins „í áfalli“ Þriggja stiga skjálfti í Bárðarbungu Maðurinn fannst látinn við Háafoss Mest lesið Í gær Í vikunni Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Maðurinn fannst látinn við Háafoss Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Vilja hækkun framlags vegna mikils árangurs Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Ég tala íslensku! Leita að manni við Háafoss Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Skemmdarvargar lögðu salerni í rúst Í umferðarteppu í 92 klukkustundir Miðflokksfáni deilir fánastöng með hinsegin fána Útlendingar tæp 70% þeirra sem fá fjárhagsaðstoð „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Meirihlutinn í Kópavogi fallinn Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Nýjast á mbl.is » Þrjú á verðlaunapalli í Manchester Eins og ráðherra sé að vara við barneignum Obama fordæmir árásina „Ég komst ekki á mynd en er það ekki smá vísbending um að ég eigi að gera betur næst“ Skrítinn taktur í öllu sem við vorum að gera Umræðan Verkin sýna merkin Tungutak eyjamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Eins og ráðherra sé að vara við barneignum Skotárás á hátíðarkvöldverði: Það sem er vitað Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Mest lesið Í gær Í vikunni Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Maðurinn fannst látinn við Háafoss Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Vilja hækkun framlags vegna mikils árangurs Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Ég tala íslensku! Leita að manni við Háafoss Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Skemmdarvargar lögðu salerni í rúst Í umferðarteppu í 92 klukkustundir Miðflokksfáni deilir fánastöng með hinsegin fána Útlendingar tæp 70% þeirra sem fá fjárhagsaðstoð „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Meirihlutinn í Kópavogi fallinn Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum

Share this article