Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Íslendingur sem lést í fallhlífarslysi var nemandi við lýðháskóla

Read Full Article →

Íslendingur sem lést í fallhlífarslysi í Óðinsvéum í gær var nemandi við lýðháskóla á Fjóni. Vitni að slysinu segir að fallhlíf mannsins hafi snúið upp á sig þegar hann stökk úr þúsund metra hæð. Tuttugu og fjögurra ára íslenskur karlmaður lést við fallhlífarstökk í Óðinsvéum í gær. Hann var nemandi við Lýðháskólann á Norðurfjóni. Babak Fadavi Kornerup, forstöðumaður skólans, segir við TV2 Fyn að nemendur í skólanum séu harmi slegnir. Hann segir að skólinn hafi verið í samstarfi við danska fallhlífarstökkssambandið síðasta hálfa árið. Nemendur hafi haft möguleika á að læra fallhlífarstökk í Óðinsvéum. Maðurinn var að stökkva einn í fyrsta skipti. Lögreglan á Fjóni rannsakar andlát mannsins sem slys. Endurlífgunartilraunir báru ekki árangur. Engin vitni hafa verið yfirheyrð enn sem komið er en að sögn lögreglu voru þau í áfalli eftir atburði gærdagsins. Málið er einnig á borði borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins. Flemming Olsson, fyrrverandi formaður danska fallhlífstökksambandsins, varð vitni að slysinu. Í samtali við danska fjölmiðilinn Fyns Stifttidende segir hann fallhlíf íslenska mannsins hafi snúið upp á sig þegar hann opnaði hana. Olsson segist strax hafa áttað sig á því að eitthvað væri að fara úrskeiðis, en hann hafi í mesta lagi búist við því að maðurinn myndi handleggs- eða fótbrotna. Sjálfur var Olsson nýbúinn að stökkva í fallhlíf. Hann segir að öll vitni fái áfallahjálp.

Share this article