Upplýsingatæknifyrirtækið APRÓ heldur árlega gervigreindarráðstefnu sína, AI Summit Iceland, hinn 13. maí næstkomandi á Iceland Parliament Hotel í Reykjavík. Í tilefni af ráðstefnunni er nú leitað að vinnustöðum sem skara fram úr í hagnýtingu gervigreindar í því skyni að veita viðkomandi Gervigreindarverðlaun Íslands. Hægt er að senda inn tilnefningar til og með 10. maí inn á vef ráðstefnunnar. „Við stofnuðum til Gervigreindarverðlauna Íslands á fyrstu AI Summit-ráðstefnunni í fyrra. Það var uppselt á ráðstefnuna þá og allt stefnir í endurtekningu á því í ár. Verðlaunin heiðra íslensk fyrirtæki og opinbera aðila sem skara fram úr í þróun og nýtingu gervigreindar. Markmiðið er að varpa ljósi á verkefni sem sýna hvernig gervigreind getur umbreytt ferlum, aukið skilvirkni og skapað virði fyrir atvinnulíf og samfélag. Við sjáum sífellt fleiri dæmi um snjallar lausnir og nýsköpun á þessu sviði,“ segir Hlöðver Þór Árnason, forstjóri APRÓ. Sjá einnig Reiknistofa lífeyrissjóða innleiðir APRÓ Vitann Sigurvegari Gervigreindarverðlauna Íslands árið 2025 var hugbúnaðarfyrirtækið 50Skills, sem hefur vakið athygli fyrir framsækna hagnýtingu gervigreindar í lausnum sínum, til dæmis sjálfvirknilausn sem einfaldar og straumlínulagar mannauðs- og rekstrarferla.