Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ert þú í framboði? Vertu með í kosningaprófi RÚV

  • What: Political quiz for local elections in Iceland
  • Impact: Civic engagement initiative
Read Full Article →

Fréttastofa RÚV býður upp á kosningapróf fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í ár, eins og gert hefur verið fyrir undanfarnar kosningar til forseta og Alþingis. Í prófinu mun almenningur eiga þess kost að máta sig við frambjóðendur og lista í sínu sveitarfélagi með því að svara nokkrum spurningum, bæði almennum spurningum um stjórnmál og eins sértækari spurningum um sitt sveitarfélag eða sinn landshluta. Svörum frambjóðenda safnað í gegnum Mitt RÚV Forsendan fyrir því að prófið skili almenningi nothæfum niðurstöðum er að sem flestir frambjóðendur hafi áður skilað inn sínum svörum. Við opnum þess vegna frambjóðendagáttina núna til að safna svörum frá þeim áður en prófið er opnað almenningi. Frambjóðendur svara prófinu með því að skrá sig inn á undirsíðuna Mitt RÚV með rafrænum skilríkjum. Þar er þeim sjálfkrafa beint inn á spurningalistann fyrir sveitarfélagið þar sem þeir eru í framboði. Jafnframt eru þar bakgrunnsspurningar sem má svara. Við hvetjum alla frambjóðendur á landinu til að taka þátt í þessu. Þeir sem ekki gera það munu ekki birtast á listum kjósenda yfir þá frambjóðendur sem þeir eru mest sammála. Prófið í boði fyrir 50 sveitarfélög Athugið að prófið er því miður ekki í boði fyrir þau sjö sveitarfélög þar sem engir listar eru í framboði og því svokölluð óbundin kosning, enda eru þar engir frambjóðendur sem kjósendur geta mátað sig við. Prófið er ekki heldur í boði fyrir þau fjögur sveitarfélög þar sem er sjálfkjörið, enda fara þar ekki fram neinar kosningar. Hvar er óbundin kosning og hvar er sjálfkjörið? Ef engum framboðslistum er skilað í sveitarfélagi fer þar fram svokölluð óbundin kosning, sem er í raun eins konar persónukjör. Þar eru allir með kosningarétt í sveitarfélaginu í kjöri, nema þeir sem skorast sérstaklega undan því (það geta þeir gert sem eru yfir 65 ára og þeir sem hafa nýlega setið í sveitarstjórn). Í ár er óbundin kosning í þessum sjö sveitarfélögum: Ásahreppi Dalabyggð Eyja- og Miklaholtshreppi Fljótsdalshreppi Grýtubakkahreppi Kaldrananeshreppi Langanesbyggð Ef aðeins einum framboðslista er skilað í sveitarfélagi er hann sjálfkjörinn og þá fara ekki fram neinar kosningar. Í ár er sjálfkjörið í þessum fjórum sveitarfélögum: Kjósarhreppi Snæfellsbæ Tjörneshreppi Vopnafjarðarhreppi Prófið, sem fengið er að láni og endurunnið frá sænska ríkisútvarpinu SVT, gerir jafnframt ráð fyrir því að hver framboðslisti svari prófinu – og að þau svör geti verið frábrugðin svörum frambjóðendanna. Þetta er til þess að frambjóðendur geti ekki bara mátað sig við staka frambjóðendur, heldur líka heilu listana. Í sveitarstjórnarkosningum er fjöldi lista á landinu öllu slíkur að fréttastofan getur ekki gengið eftir því að fá svör frá hverjum og einum. Í staðinn er sú leið farin að láta svar oddvitans gilda líka fyrir listann í heild (eða efstu manneskju á listanum sem svarar prófinu). Vilji forsvarsmenn framboðslistans senda inn sérstök svör í nafni listans er það engu að síður hægt. Við biðjum um að þá sé haft samband við netfangið stigur@ruv.is og óskað eftir leiðbeiningum þar um. Frambjóðendagáttin verður opin næstu vikuna, í kjölfarið verður prófið opnað fyrir almenning.

Share this article