Innlent | mbl | 29.4.2026 | 20:15 Málin fleiri en koma inn á borð lögreglu Þóra Jóhannsdóttir, yfirlögregluþjónn á farsældarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, á málþinginu í dag. mbl.is/Karítas Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki „Auðvitað eru svona mál að koma inn á borð til okkar. Þá er mikilvægt að við hlustum og trúum.“ Þetta segir Þóra Jóhannsdóttir, yfirlögregluþjónn á farsældarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en Þóra sat málþing á Nauthóli í Nauthólsvík í dag, þar sem farið var yfir niðurstöður ungmennaþinga á vegum Barnaheilla, sem haldin voru með styrk frá dómsmálaráðuneytinu á sex stöðum á landinu frá febrúar til apríl. Vísar Þóra þá til mála sem upp koma í nánu sambandi ungmenna. Frétt af mbl.is Láta undan suði og vilja fræðslu um klám Kannski þekkja ekkert annað Hún segir málin vitanlega vera fleiri en þau sem komi inn á borð lögreglu og þá sé það lögreglu og annarra í nánasta umhverfi ungmennanna að sækja málin. „Þau kannski þekkja ekkert annað og telja að þetta sé hluti af þessu en vita ekki betur. Ég held að við þurfum að vera með vitundarvakningu en oft í vitundarvakningu og þegar umræðan fer af stað þá koma málin inn til okkar. Þannig að ég held að við þurfum að ná í málin betur,“ segir Þóra og nefnir m.a. samfélagslögreglu í því sambandi. „Við erum með samfélagslögreglu sem er og hefur verið með fræðslu varðandi t.d. stafrænt ofbeldi. Það hafa komið krakkar til okkar eftir svona fræðslu og sagt frá og bara eitt barn er meira en ekki neitt þannig að fræðslan virkar. En vissulega þurfum við að gera betur. Frétt af mbl.is Klám er undirstöðuvandamálið Slándi upplýsingar Þóra segir að það sem kom fram á málþinginu og í niðurstöðum ungmennaþinganna, að ungmenni segi ekki frá, hafi slegið sig. „Við fullorðna fólkið þurfum að fræða börnin betur um hvað ofbeldi er og hvar mörkin liggja. Það skiptir gríðarlega miklu máli skipta að hlusta á börnin og fræða foreldra, kennara og alla sem í kringum þau eru. Þetta er rosalega flottur hópur sem hefur verið á ungmennaþinginu og við getum nýtt okkur marga punkta frá þeim í okkar störfum til þess að reyna að standa okkur betur gagnvart þeim.“ Góð mæting var á málþingið og gagnlegar umræður. mbl.is/Karítas Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tindastóll - Stjarnan, staðan er 66:50 Atlético Madrid - Arsenal, staðan er 1:1 Tryggvi bestur – meistari annað árið í röð Kílómetragjald í Bretlandi harðlega gagnrýnt Málin fleiri en koma inn á borð lögreglu Umræðan Hafnarfjörður er fyrir fólk – ekki kerfi eða fjármagn Hrein torg, fögur borg Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Láta undan suði og vilja fræðslu um klám Daði Már: Skilningur hjá aðilum vinnumarkaðarins Icelandair tapaði 5,6 milljörðum „Hvað er í gangi? Hversu mikið meira þolum við?“ Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Herjólfur bilaður og höfnin lokuð Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Kristrún vill sjálf dæma Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Nýjast á mbl.is » Tindastóll - Stjarnan, staðan er 66:50 Atlético Madrid - Arsenal, staðan er 1:1 Tryggvi bestur – meistari annað árið í röð Kílómetragjald í Bretlandi harðlega gagnrýnt Málin fleiri en koma inn á borð lögreglu Umræðan Hafnarfjörður er fyrir fólk – ekki kerfi eða fjármagn Hrein torg, fögur borg Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Verðbólgan hjaðnar og mælist nú 5,2% Vesturlandsvegur skal varinn Flestir vilja aukna hlutdeild leiguhúsnæðis Málin fleiri en koma inn á borð lögreglu Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Herjólfur bilaður og höfnin lokuð Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Kristrún vill sjálf dæma Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“