Innlent | Morgunblaðið | 30.4.2026 | 12:00 Unnu í raun í Víkingalottóinu Stefán E. Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Samantekt 12:00 Frétt: Unnu í raun í Víkingalottóinu 11:15 Frétt: Myndir: Húsfyllir á borgarafundi á Eskifirði 19:41 Frétt: Kominn með nóg af því að bíða á rauðu ljósi 19:35 Minnum á borgarafundinn Tjörneshreppur er fámennasti hreppur landsins en lætur ekki smæðina stöðva sig. Í samtali við Morgunblaðið í félagsheimilinu Sólvangi fer Aðalsteinn J. Halldórsson oddviti yfir stöðu hreppsins, að sjálfkjörið sé, íbúaþróun, fjármál og framtíð sveitarfélagsins. Hreppurinn nær yfir norður- og vesturströnd Tjörness að Héðinsvík norðan Húsavíkur og er um 199 ferkílómetrar að stærð. Þar búa nú 56 manns og sjö börn eru á grunn- og leikskólaaldri. Það er mesti fjöldi barna í hreppnum í um 30 ár. „Það hljómar nú kannski ekki mikið en það er samt það mesta í um 30 ár,“ segir Aðalsteinn. Sjálfkjörið í hreppnum T-listinn er einn í framboði í Tjörneshreppi og því er sjálfkjörið. Aðalsteinn telur það endurspegla ánægju íbúa með störf sveitarstjórnarinnar. „Ég get einungis túlkað það sem svo að fólkið sé bara einfaldlega ánægt með þá stefnu sem við höfum unnið eftir,“ segir hann. Sólvangur og þorrablótið Ekki hefur farið fram listakosning í hreppnum síðan 1978, þegar H-listi og I-listi tókust á. Aðalsteinn segir að vel hafi verið mætt á íbúafund í mars og þar hafi verið mikil eining um stefnu hreppsins. Viðtalið fer fram í Sólvangi, félagsheimili hreppsins sem reist var árið 1960. Húsið er notað fyrir hreppssamkomur, fundi, fermingarveislur, erfidrykkjur, jólaböll og ættarmót. Stærsta samkoman er þó árlegt þorrablót, haldið fyrsta laugardag í þorra. „Þetta er sannkallað félagsheimili,“ segir Aðalsteinn. Á þorrablótið mæta gjarnan 130-140 manns og stundum yfir 170. Það er langt umfram íbúafjölda hreppsins. Gestir koma ekki aðeins úr hreppnum heldur einnig úr nágrannasveitarfélögum og talsvert er um gestakomur úr Eyjafirði. Ráðdeild í rekstri Tjörneshreppur er þekktur fyrir varfærni í fjármálum. Nýlega var þó ráðist í stóra framkvæmd við Sólvang þegar malbikað var bílastæði eftir rúmlega 60 ár með malarstæði. „Við ákváðum að rífa upp veskið og gera þetta almennilega,“ segir Aðalsteinn. Hann segir ráðdeild hafa einkennt rekstur hreppsins í gegnum tíðina. „Við kunnum að lifa af litlu,“ segir hann og bætir við að markmiðið sé að verja fjármunum þannig að þeir nýtist íbúum sem best. Hreppurinn hefur meðal annars ljósleiðaravætt allt sveitarfélagið á eigin kostnað og boðið íbúum varmadælur til að lækka rafmagnskostnað. Settar voru upp 14 dælur, upp á um tvær og hálfa milljón króna hver, og segir Aðalsteinn að rafmagnsreikningar heimila hafi lækkað verulega. „Unnið í Víkingalottóinu“ Síðla árs í fyrra fékk Tjörneshreppur tæpar 248 milljónir króna úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga í svokallað fólksfækkunarframlag. Aðalsteinn segir upphæðina hafa komið eins og þrumu úr heiðskíru lofti. „Það má segja nákvæmlega,“ segir hann þegar því er velt upp hvort hreppurinn hafi í raun unnið í Víkingalottóinu. Sveitarstjórnin reyndi að afþakka framlagið, enda þótti upphæðin úr öllu hófi há og virtist nýtt í nokkuð skæðri umræðu um þvingaðar sameiningar smærri sveitarfélaga. Lagalega reyndist þó ekki hægt að koma í veg fyrir að fjármunirnir rynnu til hreppsins. Aðalsteinn segir fjármunina verða nýtta til góðra verka, meðal annars innviðauppbyggingar. Malbikun heimreiða að bæjum komi þar til greina. Hreppurinn hefur einnig veitt styrki til björgunarsveitar, slökkviliðs, íþróttafélagsins Völsungs og sundlaugarinnar á Húsavík. Vill halda sjálfstæðinu Aðalsteinn segir íbúa ekki hrifna af þvinguðum sameiningum. Sameiningartillaga var naumlega felld þegar Norðurþing varð til og hann segir sjálfstæðið hafa gert hreppnum kleift að ráðast í verkefni sem annars hefðu líklega ekki orðið að veruleika. „Okkur líður bara vel eins og við erum núna,“ segir hann. Hreppurinn kaupir ýmsa þjónustu af Norðurþingi, meðal annars skólaþjónustu, og segir Aðalsteinn samstarfið gott. „Við erum sama fjölskyldan sitt í hvoru sveitarfélaginu,“ segir hann. Tækifæri í landbúnaði Aðalsteinn sér tækifæri í ferðaþjónustu og landbúnaði á Tjörnesi en telur að opna þurfi landbúnaðarkerfið til að auðvelda nýliðun. Núverandi kerfi geri fólki erfitt fyrir að hefja búskap. „Það þarf að gera kerfið þannig að þú þurfir ekki að borga háar fjárhæðir, taka lán fyrir því á íslenskum vöxtum, fyrir í rauninni ekkert nema tölur á tölvuskjánum,“ segir hann um greiðslumarkið. Um Evrópusambandið segist hann tvístígandi. Hann hafi ekki gert upp hug sinn, en leggur áherslu á að íslenskur landbúnaður verði að haldast. „Ég er alveg harðákveðinn í því að það sé skynsamlegast fyrir okkur að hafa íslenskan landbúnað,“ segir Aðalsteinn. Samtalið frá Tjörneshreppi í hljóði og mynd á mbl.is og Spotify. Næst: Fjarðabyggð Aðalsteinn J. Halldórsson hefur verið oddviti frá 2018. Morgunblaðið/Kristófer Liljar Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang 12:16 „Unnið í Víkingalottóinu“ Tjörneshreppur er fámennasta sveitarfélag landsins. Engu var líkara en að það hefði unnið fyrsta vinning í Víkingalottóinu í fyrra þegar fólksfækkunarframlag upp á 248 milljónir féll því í skaut. Meira 12:07 X26: Mesti fjöldi barna í 30 ár Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar 16. maí, en þá verður efnt til kosninga í 62 sveitarfélögum landsins af öllum stærðum og gerðum. Meira 12:00 Unnu í raun í Víkingalottóinu Tjörneshreppur er fámennasti hreppur landsins en lætur ekki smæðina stöðva sig. Í samtali við Morgunblaðið í félagsheimilinu Sólvangi fer Aðalsteinn J. Halldórsson oddviti yfir stöðu hreppsins, að sjálfkjörið sé, íbúaþróun, fjármál og framtíð sveitarfélagsins Meira 11:15 Myndir: Húsfyllir á borgarafundi á Eskifirði Oddvitar framboða til sveitarstjórnarkosnina í Fjarðabyggð sátu fyrir svörum á Eskifirði í gærkvöldi. Meira Í gær, 19:41 Kominn með nóg af því að bíða á rauðu ljósi Ef Framsóknarflokkurinn í Reykjavík nær ekki meira fylgi en nýjustu kannanir gefa til kynna mun meirihlutinn í borginni halda, að sögn Einars Þorsteinssonar, oddvita Framsóknar í borginni. Samkvæmt nýjustu skoðanakönnun mælist flokkurinn með 3,9% fylgi. Meira Í gær, 19:35 Minnum á borgarafundinn Allt er nú tilbúið fyrir borgarafundinn í Valhöll á Eskifirði í kvöld. Húsið hefur verið opnað og fundurinn hefst klukkan 20. Í gær, 18:30 Kreppir að atvinnulífi í Norðurþingi Staða atvinnulífs, viðhald innviða og fjárhagur hins víðfeðma Norðurþings eru ofarlega á baugi í umræðunni þegar Morgunblaðið stefnir oddvitaframbjóðendum sveitarfélagsins til samtals á Húsavík um stöðu og framtíð sveitarfélagsins Meira Í gær, 16:26 Beint: Kosningafundur Viðskiptaráðs Viðskiptaráð heldur fund um sveitastjórnarkosningarnar 2026 í Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 16:30 og er hér í beinu streymi. Meira Í gær, 15:38 Mikil andstaða við umferðargjöld á annatímum Mikil andstaða er meðal framboðsflokka í Reykjavík í sveitarstjórnarkosningunum í maí gegn því að leggja á umferðargjöld á háannatímum til að fjármagna samgönguframkvæmdir. Meira Í gær, 15:02 Meirihlutinn í Hafnarfirði fallinn Viðreisn er um þessar mundir næststærst flokka í Hafnarfirði og er komin upp fyrir Sjálfstæðisflokkinn í fylgi þar í bænum. Frá þessu greinir Vísir og byggir á könnun Maskínu sem framkvæmd var fyrir fréttastofu Vísis dagana 22. til 27. apríl. Meira Í gær, 13:54 Flestir vilja aukna hlutdeild leiguhúsnæðis Sex þeirra flokka, sem bjóða fram í borginni í komandi sveitarstjórnarkosningum, eru frekar eða mjög hlynntir því að stefna ætti að aukinni hlutdeild leiguhúsnæðis á húsnæðismarkaði. Meira Í gær, 13:00 100 manns flutt frá bænum síðan PCC fór Íbúum Norðurþings hefur fækkað um 100 á síðustu sextán mánuðum. Þetta upplýsir Helena Eydís Ingólfsdóttir, oddvitaframbjóðandi Sjálfstæðisflokksins í sveitarfélaginu. Vísar hún þar til versnandi atvinnuástands í kjölfar þess að starfsemi kísilversins PCC á Bakka stöðvaðist í fyrra. Meira í gær „Börnunum heilt yfir líður illa“ Endurreisn Grindavíkur var í algjörum forgrunni í oddvitakappræðum sem fram fóru í myndveri Morgunblaðsins í Hádegismóum í vikunni. Meira í gær Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Enginn þeirra flokka, sem bjóða fram í Reykjavík í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí, leggst gegn þeirri fullyrðingu að fækka ætti starfsfólki í stjórnsýslu borgarinnar umtalsvert. Meira í gær Norðurþing ✓ Sýna meira Nýjast á mbl.is » Aldrei meiri áhugi á Landsmóti hestamanna Eru tilbúin og þyrstir í að komast heim Lykilmenn framlengja í Laugardalnum Vestmannaeyjabær fær hæsta styrkinn Óánægja með raðir hjá Sorpu Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Trúin á manneskjuna og kraftur samfélagsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Tók speglasjálfu skömmu fyrir árásina Láta undan suði og vilja fræðslu um klám Ætlar að þyngja refsingar fyrir vændiskaup Mest lesið Í gær Í vikunni „Allt hefur verið afbókað“ Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Blikur á lofti hjá hótelum Danska konan skuldar laun Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV Líkur á misnotkun veikindaréttar Húsnæði Kjötborgar til sölu Eldur við söluskála Ætlar að þyngja refsingar fyrir vændiskaup Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Hall