Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Oddvitaumræður í Grindavík

Read Full Article →

Þrír listar eru í framboði í Grindavík fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mættust í umræðum. Þátttakendur voru: Ásrún Helga Kristinsdóttir, Framsóknarflokki Guðbjörg Eyjólfsdóttir, Sjálfstæðisflokki Magnús Már Jakobsson, Miðflokki Umsjónarmaður er Ingvar Þór Björnsson. Endurreisn samfélagsins í Grindavík og niðurstaða Grindavíkurnefndar var oddvitum ofarlega í huga. Endurskoðun tekjustofna sveitarfélagsins, líðan barna og skólastarf, atvinnulífið og stjórnsýslan bar einnig á góma. 819 eru með skráða búsetu í bænum. Grindavík var meðal 20 stærstu sveitarfélaga landsins þar til bærinn var rýmdur í nóvember 2023 og brottfluttum íbúum gafst kostur á að skrá sig þar á kjörskrá. Óvenjuleg staða bæjarfélagsins gefur sérstakt tilefni til oddvitaumræðna þar.

Share this article