Innlent | mbl | 30.4.2026 | 22:39 Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki Svona á Suðurlandsbraut líta út samkvæmt skipulaginu. Teikning/Reykjavíkurborg Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Borgarbyggð: Horft til vaxtar þrátt fyrir fjárhagslegar áskoranir Tekist á um framtíð Fjarðabyggðar Frelsi frá „fáránleika og brjálæði“ bílastæðaappa Unnu í raun í Víkingalottóinu Myndir: Húsfyllir á borgarafundi á Eskifirði » Fleiri tengdar fréttir Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins Mikil andstaða við umferðargjöld á annatímum Leyfir sér að vera bjartsýnn um ásetning oddvita Gervigreindin geti stýrt ljósum á götum borgarinnar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ » Fleiri tengdar fréttir Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins, telur að hlusta þurfi á alla hagsmunaaðila þegar framkvæmdaáætlun vegna borgarlínu á Suðurlandsbraut verður innleidd. Segir hún að mikið hafi verið talað um að verið sé að taka eitthvað af einhverjum með því að gefa fleirum valmöguleika á að nota fjölbreytta samgöngumáta. Ummæli Sönnu féllu á ráðstefnu um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu með yfirskriftinni Greiðari leið – hugmyndir óskast! en þar sátu oddvitar framboðanna í Reykjavík saman í pallborði og sátu fyrir svörum. Að ráðstefnunni stóð Hugvekjan, sem hefur að markmiði að stuðla að opnu samtali og upplýstri umræðu um mál sem eru efst á baugi í samfélaginu. Var Sanna að svara spurningu Ólafs Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda, en hann spurði oddvitana hvort þeir ætluðu að beita sér fyrir breytingum á Suðurlandsbrautarskipulaginu. Sanna sagði þar m.a. sjálf nota strætó mjög mikið og benti á að íbúar á höfuðborgarsvæðinu verji 10 milljörðum króna í kaup og rekstur á bílum í hverjum mánuði. Borgarlínan kosti aftur á móti aðeins 136 milljarða á næstu 15 árum þannig að ekki sé verið að taka neitt af neinum heldur aðeins verið að fjölga samgöngumátum. Hún segist þá myndu sækja oftar í verslun á Suðurlandsbraut ef svæðið væri aðgengilegra. Frétt af mbl.is Beint: Greiðari leið – hugmyndir óskast Mætti taka annan stíginn? Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, segist átta sig á því að framkvæmdatímann þurfi að skoða með hagsmunaaðilum á Suðurlandsbraut. Veltir hann því upp hvort taka mætti annan hjólastíginn í burtu til að koma til móts við þarfir atvinnurekenda á Suðurlandsbraut á framkvæmdatímanum eða að framkvæma á svæðinu í fleiri áföngum. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, segir flokkinn alfarið á móti fyrirliggjandi deiliskipulagi á Suðurlandsbraut. Flokkurinn vilji innleiða hraðvagnakerfi á sérakreinum þar sem því verður við komið. Þannig væri hægt að búa til öflugt kerfi sem kosti ekki jafn mikið og sé ekki alltaf miðjusett. Að lokum benti Hildur Sönnu á að þjónusta og verslun á Suðurlandsbraut verði farin þegar framkvæmdum ljúki og Sanna vilji fara að nýta sér svæðið í þeim tilgangi, ef ekkert verði að gert. mbl.is/Eggert Jóhannesson Gullinsnið gengur ekki Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins, segir ljóst að það muni ekki ganga að nota gullinsnið borgarlínu á Suðurlandsbraut þar sem tvöfaldir hjóla- og göngustígar verði sitt hvoru megin við bílaumferð og miðjusetta borgarlínu. Hann segir nauðsynlegt að taka verkefnið úr höndum þeirra flokka sem halda um það í dag því annars komist Ari Edwald og Miðflokkurinn til valda og hætti við allt saman. Þá fái borgin og samfélagið ekki þann mikla ábata sem hljótast muni af framkvæmdinni. Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, fagnar samhljóminum sem hún finnur um að komast þurfi inn í framtíðina hvað samgöngur í Reykjavík varðar. Hún segir mikilvægt að farið verði af stað með Suðurlandsbrautina með bravör og í sátt því um fyrstu kílómetrana sé að ræða í gríðarmikilli samgönguframkvæmd. Margir oddvitanna muni ekki einu sinni eiga pólitískt líf til að fylgja málinu alla leið. Hún sagði vandamálið ekki vera borgarlínuna heldur biðina eftir henni. Frétt af mbl.is 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, segir ávinninginn af fyrsta áfanga borgarlínu jafngilda því að henda 210 milljörðum í sjóinn og vitnaði til orða Ragnars Árnasonar hagfræðiprófessors þar um. Segir Ari Miðflokkinn telja mjög brýnt að greiða fyrir samgöngum á höfuðborgarsvæðinu og hafi lagt fram tillögur í því sambandi m.a. á sviði almenningssamgangna. Hann segir einnig margvíslegar lausnir hafa greitt fyrir umferð á höfuðborgarsvæðinu og nefndi forgangsakreinar Strætó í því sambandi. Sveitarstjórnarkosningar fara fram 16. maí og geta Reykvíkingar valið á milli ellefu framboða. Auk þessara sex framboða sem áttu oddvita í pallborðinu verða listar frá Flokki fólksins, Pírötum, Sósíalistaflokknum, Góðan daginn framboðinu og Okkar borg á kjörseðlinum. Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Borgarbyggð: Horft til vaxtar þrátt fyrir fjárhagslegar áskoranir Tekist á um framtíð Fjarðabyggðar Frelsi frá „fáránleika og brjálæði“ bílastæðaappa Unnu í raun í Víkingalottóinu Myndir: Húsfyllir á borgarafundi á Eskifirði » Fleiri tengdar fréttir Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins Mikil andstaða við umferðargjöld á annatímum Leyfir sér að vera bjartsýnn um ásetning oddvita Gervigreindin geti stýrt ljósum á götum borgarinnar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Þjálfararnir munu kvarta yfir dómurunum“ Held að flestum líki illa við KR Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki „Þurfum að vera alvöru töffarar“ Britney Spears ákærð fyrir að keyra undir áhrifum Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Brjóta ítrekað af sér án raunverulegra afleiðinga Eru tilbúin og þyrstir í að komast heim „Þetta er litli föstudagur“ Í „sjokki“ eftir lestur skýrslunnar Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Banaslys í Skorradalsvatni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Blikur á lofti hjá hótelum Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir „Ég segi nei“ Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Strandabyggð: Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys Nýjast á mbl.is » „Þjálfararnir munu kvarta yfir dómurunum“ Held að flestum líki illa við KR Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki „Þurfum að vera alvöru töffarar“ Britney Spears ákærð fyrir að keyra undir áhrifum Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Meira safnast en vonir stóðu til en spáin góð Borgarbyggð: Horft til vaxtar þrátt fyrir fjárhagslegar áskoranir Hallærisplanið er ekki að virka Tekist á um framtíð Fjarðabyggðar Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Banaslys í Skorradalsvatni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Blikur á lofti hjá hótelum Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir „Ég segi nei“ Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Strandabyggð: Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys