Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Óvissa um útgáfu Náttúrufræðingsins

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 1.5.2026 | 8:28 Óvissa um útgáfu Náttúrufræðingsins Íslensk náttúra Almenningur á Íslandi hefur mikinn áhuga á náttúru landsins og náttúruvísindum. Myndin er tekin á Fimmvörðuhálsi. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Setja bókamerki Blikur eru á lofti í útgáfu tímaritsins Náttúrufræðingsins sem hefur komið út árlega frá árinu 1931. Síðasta blað kom út í fyrra en fé skortir til að gefa út blað á þessu ári. „Staðan er sú að við vitum ekki hvenær við getum gefið út næsta prentaða blað,“ segir Ríkey Júlíusdóttir, jarðfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, en hún situr í ritstjórn Náttúrufræðingsins. Hið íslenska náttúrufræðifélag, sem var stofnað árið 1889, hefur staðið að útgáfu Náttúrufræðingsins frá upphafi og frá árinu 2014 hefur blaðið komið út í samstarfi við Náttúruminjasafn Íslands. Undanfarin ár hafa komið út tvö til þrjú tölublöð árlega en á síðasta ári kom aðeins út eitt blað. Að sögn Ríkeyjar sér Náttúruminjasafnið sér ekki lengur fært að standa undir sínum hluta af útgáfukostnaðinum og Hið íslenska náttúrufræðifélag ræður ekki óstutt við útgáfuna en tekjur félagsins koma eingöngu af félagsgjöldum. Áætlað er að 2,2 milljónir króna kosti að prenta og dreifa hverju tölublaði Náttúrufræðingsins. Til þessa hefur ritstjóri tímaritsins verið á launaskrá í 90% starfi en Ríkey segir að félagið hafi ekki lengur efni á að greiða ritstjóra laun og því hefur honum verið sagt upp störfum. Í ritstjórn blaðsins eru fimm einstaklingar sem vinna í sjálfboðavinnu við að taka á móti greinum, lesa þær yfir og finna greinendur til að ritrýna þær. Ríkey segir að í ljósi þessarar stöðu verði félagið að sætta sig við að gefa þessar greinar út á netinu þar til tímaritið réttir úr kútnum. Hins vegar séu greinarnar þess eðlis að þær komi best út á prenti því erfitt sé að lesa svona efni á rafrænu formi. „Fólkið sem býr í þessu landi hefur gríðarlegan áhuga á náttúrunni og náttúruvísindum og þess vegna verður að vera hægt að halda áfram útgáfu á blaði eins og Náttúrufræðingnum sem er eina ritið sem tekur fyrir þetta breiða svið vísindanna og birtir greinar af öllum mögulegum toga náttúruvísinda á auðskiljanlegri íslensku,“ segir Ríkey. Spurð að því hvort leitað hafi verið til stjórnvalda um stuðning við útgáfuna segir Ríkey að til standi að senda bréf til viðeigandi ráðuneyta, bæði umhverfis- og auðlindaráðuneytis og menningar- og nýsköpunarráðuneytis, til að vekja athygli þeirra á þessari stöðu. Í grein sem Ríkey skrifaði í Morgunblaðið í gær skorar hún á almenning að leggja náttúrunni og Náttúrufræðingnum lið og ganga í Hið íslenska náttúrufræðifélag. [email protected] Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Furðumál minnir á ábyrgð Alþingis Í vindasamri vorveiði í Indlandshafi Óvissa um útgáfu Náttúrufræðingsins Íran: Khamenei úthrópar Bandaríkjastjórn Hið ágætasta veður á verkalýðsdaginn Umræðan Kópavogur – okkar heimili Fyrirtæki og stjórnvöld – þið eigið leik Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vinna við umönnun barna en ná ekki að sjá um sín eigin Eru tilbúin og þyrstir í að komast heim Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Mest lesið Í gær Í vikunni Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki Tvö ný útibú frá Góða hirðinum Röð af salmonelluinnköllunum vegna nautahakks Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Fjórhjólaferðalögin eru ævintýri Íslenski fáninn má blakta við hún allan sólarhringinn í sumar Ný forysta Stúdentaráðs Háskóla Íslands kjörin Banaslys í Skorradalsvatni Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Banaslys í Skorradalsvatni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Blikur á lofti hjá hótelum Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV „Ég segi nei“ Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Nýjast á mbl.is » Furðumál minnir á ábyrgð Alþingis Í vindasamri vorveiði í Indlandshafi Óvissa um útgáfu Náttúrufræðingsins Íran: Khamenei úthrópar Bandaríkjastjórn Hið ágætasta veður á verkalýðsdaginn Umræðan Kópavogur – okkar heimili Fyrirtæki og stjórnvöld – þið eigið leik Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vinna við umönnun barna en ná ekki að sjá um sín eigin Svartur blettur á jafnréttisparadísinni Íslandi Meira safnast en vonir stóðu til en spáin góð Furðumál minnir á ábyrgð Alþingis Mest lesið Í gær Í vikunni Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki Tvö ný útibú frá Góða hirðinum Röð af salmonelluinnköllunum vegna nautahakks Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Fjórhjólaferðalögin eru ævintýri Íslenski fáninn má blakta við hún allan sólarhringinn í sumar Ný forysta Stúdentaráðs Háskóla Íslands kjörin Banaslys í Skorradalsvatni Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Banaslys í Skorradalsvatni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Blikur á lofti hjá hótelum Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV „Ég segi nei“ Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás

Share this article