Innlent | Morgunblaðið | 3.5.2026 | 20:15 Milljón rósir og markaður stækkar Sveinn A. Sæland og Áslaug Sveinbjarnardóttir hér með fangið fullt af fegurstu blómum. Sala afurða er alltaf mikil á fyrri hluta ársins, þegar á almanakinu eru blómstrandi dagar og margar hátíðarstundir. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Falleg blóm gleðja alltaf,“ segir Sveinn A. Sæland garðyrkjubóndi á Espiflöt í Bláskógabyggð. Við athöfn sem efnt var til á sumardaginn fyrsta í Garðyrkjuskólanum að Reykjum í Ölfusi voru frá skólanum og fleirum veittar viðurkenningar þeim sem hafa gert góða hluti í garðyrkju. Þetta er í þremur flokkum; hvatningarverðlaun, viðurkenning til verknámsstaðar garðyrkjunema og heiðursverðlaun garðyrkjunnar sem féllu að þessu sinni í skaut Sveini og Áslaugu Sveinbjarnardóttur konu hans. Sveinn og Áslaug hafa nú í bráðum 50 ár sinnt ræktun og rekstri á Espiflöt í Reykholti, stöð sem foreldrar hans, þau Eiríkur Sæland og Hulda Gústafsdóttur, stofnuðu árið 1948. Strax á barnsaldri var viðmælandi byrjaður að vinna við stöðina svo ferillinn hans þar spannar ríf sextíu ár. „Í rekstri garðyrkjubús skipta vinnusemi og yfirlega öllu máli. Að hafa augu á hverjum fingri og láta hlutina ganga upp. Þá er sérstaklega mikilvægt að hafa hugann við framtíðina og búa til eitthvað nýtt. Við sem sinnum garðyrkju á Íslandi búum svo vel að hafa jarðhita og sæmilega ódýrt rafmagn til lýsingar á dimmum vetrum. Samt þurfum við alltaf að vera á tánum og í stöðugu þróunarstarfi, það er við tækni, ræktunaraðferðir og ekki síst markaðsstarf fyrir afurðir okkar,“ segir Sveinn um gildin í starfinu. Espiflöt er blómabú. Þar eru undir gleri í gróðurhúsum alls um 8.000 fermetrar og þar eru framleidd um 20% þeim af afskornum blómum sem seld eru á innlendum markaði. Fjöldi þeirra rósa sem þar eru ræktaðar á ári hallar í milljónina. Einnig koma frá stöðinni chrysi, liljur, gerberur og sólliljur; allt hin fegurstu blóm. Stór þáttur í starfseminni er framleiðsla á tilbúnum blómvöndum, sem seldir eru til dæmis í dagvöruverslunum. „Áður fyrr gilti að fólk keypti yfirleitt ekki blóm nema af sérstökum tilefnum; svo sem fyrir jarðarfarir, brúðkaup, fermingar og skírnir og svo um páska og fyrir jólin. Vissulega eru þetta stórir póstar enn í dag og svo koma til bóndadagur, konudagur og fleiri þannig hátíðir á fyrstu mánuðum ársins. En það sem hefur bæst við er að nú grípur fólk svo oft með sér blómvönd heim úr búðinni til þess að skapa fallegt umhverfi á heimili, vinnustað eða annars staðar. Þetta er góð þróun á stækkandi markaði sem hefur styrkt stöðuna,“ segir Sveinn. Alltaf leitað bestu leiða í búskapnum Landnemarnir á Espiflöt, foreldrar Sveins, stunduðu þar grænmetisræktun í fyrstu. Með tímanum sneru þau sér í meira að blómarækt sem síðar tók annað yfir. Þau Sveinn og Áslaug komu inn í reksturinn 1977 og tóku hann alfarið yfir 1988. „Bróðir minn og hans kona voru hér með foreldrum mínum í rekstri félagsbús fyrstu árin. Þá leigðum við líka tvær aðrar garðyrkjustofur hér í grenndinni svo veltan dygði til að framfleyta þremur fjölskyldum. En svo fækkaði í liðinu og nýjar áherslur komu til og stöðin var stækkuð í áföngum. Að vera aðeins í blómarækt helgaðist meðal annars af því að í garðyrkju eru notuð ýmis varnarefni; ein á grænmeti og önnur á blóm. Þetta tvennt fór ekkert vel saman. Svona hefur alltaf þurft að leita bestu leiða í búskapnum og læra af reynslunni,“ segir Sveinn um búskapinn – hvar jafnræði hefur verið með þeim hjónum í starfi og stjórnun stöðvar. Þau eru nú einasta starfsmenn á Espiflöt, eftir að hafa selt reksturinn fyrir nokkrum árum til Axels Sælands sonar sín og Heiðu Pálrúnar Leifsdóttur konu hans. Íbúðarhús og í baksýn eru gróðurhús. Alls eru um 8.000 fermetrar undir gleri á býlinu sem landnemarnir á svæðinu stofnuðu árið 1948. Breytt bú og stærri „Þriðja kynslóðin er tekin við og við höfum fundið gott jafnvægi í þessu öllu,“ segir Sveinn sem leggur áherslu á að í starfi og rekstri sé sífellt búið í haginn fyrir framtíðina. „Ég man eftir fundum í búnaðarfélaginu hér í sveitinni í gamla daga, þar sem við garðyrkjumenn í sveitinni vorum með kúa- og sauðfjárbændum. Áberandi sjónarmið þeirra voru að halda í horfi fyrri tíma, þá sérstaklega bænda sem fljótlega heltust úr lestinni. Fyrir okkur í græna geiranum var hins vegar ekkert annað í stöðunni en að horfa fram á við,“ segir Sveinn. „Aðstæður voru að breytast og aukinn innflutningur vofði alltaf yfir. Búin urðu að breytast og stækka. Á fyrstu árum mínum hér voru blóm ræktuð á 44 stöðvum á Íslandi en nú á 11 þaðan sem kemur mun meira magn en áður. Þá eru stöðvarnar mjög tækni- og sjálfvirknivæddar og í gróðurhúsunum er orkusparandi Led-lýsing að koma sterk inn. Framþróun verður ekki stöðvuð. En umfram allt þarf ástríðan að vera ráðandi og hér á Espiflöt höfum við verið svo heppin að öll fjölskyldan hefur verið virk í í búskap sem nú á sér orðið 78 ára sögu.“ Hver eru þau? Sveinn Sæland er fæddur árið 1954 á Espiflöt og alinn þar upp. Áslaug er fædd 1955, uppalin á Hofstöðum í Garðabæ. Þau námu bæði við Garðyrkjuskólann að Reykjum í Ölfusi auk þess sem Sveinn nam rekstrarfræði vetarlangt í Danmörku. Samhliða rekstri garðyrkjustöðvarinnar hafa hjónin verið virk í félagsmálum. Áslaug í íþrótta- og æskulýðsmálum á meðan börnin voru ung og Sveinn í sveitarstjórnarmálum og hagsmunasamtökum garðyrkjunnar ásamt ýmsu fleiru. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Stjarnan - Tindastóll, staðan er 10:12 Milljón rósir og markaður stækkar Tottenham úr fallsæti Þriðji sigur Ítalans í röð Cara Delevingne á leið í tónleikaferðalag Umræðan Viðkvæma konan í Kópavogi Svipþing og Sveinn Skorri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stjórnmálamenn vildu Spaugstofuna út „Heyrðu, er þetta æxlið mitt?“ Eru í „bölvuðum vandræðum“ með flutninga Vita ekki fjölda kennslustunda sem falla niður Mest lesið Í gær Í vikunni Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Allir sögðu nei nema Heiða Björg Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Hvolfdist í hylinn: „Þetta var ekki notalegt“ Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Leikskólastjóri gagnrýnir „niðurlægjandi“ orð Kristrúnar Eins konar æði gripið Íslendinga Vilja nema erfðafjárskatt úr gildi „Heiðarlegt vorhret“ á leiðinni Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Kaupa þarf upp fasteignir vegna Sæbrautarstokks „Heyrðu, er þetta æxlið mitt?“ Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar Unnu á 1. maí við að reisa blokk fyrir verkalýðsfélög 45 milljónir fyrir fimm daga stopp Vasaþjófarnir snúnir aftur Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Maðurinn fannst látinn við Háafoss Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Nýjast á mbl.is » Stjarnan - Tindastóll, staðan er 10:12 Milljón rósir og markaður stækkar Tottenham úr fallsæti Þriðji sigur Ítalans í röð Cara Delevingne á leið í tónleikaferðalag Umræðan Viðkvæma konan í Kópavogi Svipþing og Sveinn Skorri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Vita ekki fjölda kennslustunda sem falla niður Vinstrimenn setja spurningamerki við ESB Laufey opnar sig í löngu viðtali við BBC Mest lesið Í gær Í vikunni Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Allir sögðu nei nema Heiða Björg Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Hvolfdist í hylinn: „Þetta var ekki notalegt“ Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Leikskólastjóri gagnrýnir „niðurlægjandi“ orð Kristrúnar Eins konar æði gripið Íslendinga Vilja nema erfðafjárskatt úr gildi „Heiðarlegt vorhret“ á leiðinni Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Kaupa þarf upp fasteignir vegna Sæbrautarstokks „Heyrðu, er þetta æxlið mitt?“ Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar Unnu á 1. maí við að reisa blokk fyrir verkalýðsfélög 45 milljónir fyrir fimm daga stopp Vasaþjófarnir snúnir aftur Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Maðurinn fannst látinn við Háafoss Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin