Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Vilja bílhræin burt af lóðinni

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 12.2.2026 | 10:30 Vilja bílhræin burt af lóðinni Hringrás tók á móti bílhræjum og brotamálmum í Klettagörðum um langt árabil. Nú vill Sindraport fá leyfi til að halda þeirri starfsemi áfram. mbl.is/Árni Sæberg Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur sér ekkert því til fyrirstöðu að veita fyrirtækinu Sindraporti leyfi til móttöku bílhræja og brotamálma á lóðinni Klettagarðar 9 í Sundahöfn. Lóðin er skammt vestan við vöruhús Eimskips. Hins vegar er óvíst að áform fyrirtækisins nái fram að ganga því lóðarhafinn, Faxaflóahafnir, telur að Sindraport hf. sé að nota lóðina í óleyfi og í andstöðu við vilja lóðarhafans. Þetta staðfestir Gunnar Tryggvason hafnarstjóri Faxaflóahafna. Gunnar segir að enginn samningur hafi verið gerður við félagið og ekkert leigugjald sé greitt. Fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur er í gangi mál þar sem Faxaflóahafnir fara fram á útburð félagsins af lóðinni. Niðurstöðu héraðsdóms er að vænta innan fárra vikna. Framleigðu lóðina Sindraport hf. var með þessa lóð á leigu til ársloka 2023 en framleigði hana til Hringrásar ehf.,“ upplýsir Gunnar. Lóðarleigusamningurinn hafi aðeins heimilað leigutaka vinnslu brotamálma og annarra efnisflokka á lóðinni og var Hringrás með starfsleyfi fyrir slíkan rekstur. Gunnar Tryggvason. Í kjölfar loka leigusambandsins flutti Hringrás alla starfsemi sína á nýtt athafnasvæði að Álhellu í Hafnarfirði. Gunnar segir að Sindraport hf. telji sig hins vegar eiga rétt til lóðarinnar þar sem í leigusamningnum var ákvæði um forgangsrétt félagsins á framhaldsleigu. Að mati Faxaflóahafna verði sá forgangur aðeins virkur ef endurvinnsla brotamálma væri áfram heimiluð á lóðinni, sem sé ekki að mati fyrirtækisins. „Að auki má ljóst vera að „forgangsréttur“ verður ekki virkur ef Faxaflóahafnir eru ekki að fara að leigja lóðina út, hvað sem verður í framtíðinni,“ segir Gunnar. Húsin á lóð nr. 9 við Klettagarða eru annars vegar skrifstofuhúsnæði byggt árið 1997 og hins vegar fimm skemmur byggðar árið 2005 skv. fasteignaskrá. Sindraport hf. er enn eigandi mannvirkja á lóðinni en í samræmi við lóðaleigusamninginn ber Faxaflóahöfnum að greiða félaginu sannvirði þeirra eftir mati dómkvaddra matsmanna. Slíkt mat liggur fyrir en stjórnendur Sindraports hf. hafa ekki sinnt óskum Faxaflóahafna um uppgjör á grundvelli þess, segir Gunnar. Eftir eiga að fara fram rannsóknir, mælingar og hreinsun á jarðvegsmengun á lóðinni sem fyrrverandi starfsleyfishafi, Hringrás, á að standa að í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Mengun í jarðvegi Gunnar segir að Heilbrigðiseftirlitið hafi m.a. staðfest að ástand lóðarinnar sé ekki gott og í jarðvegi sé mengun. „Starfsemi Sindraports á lóðinni, sem fer fram án starfsleyfis, er að tefja fyrir mengunarrannsóknum og hreinsun lóðarinnar. Auk þess er veruleg hætta á frekari mengun vegna starfseminnar þar sem malbiksþekja á lóðinni er rofin á nokkrum stöðum. Til viðbótar framangreindu þá liggur fyrir að framganga Sindraports er klárt brot á réttindum Faxaflóahafa til þess að nýta eign sína, umrædda lóð,“ segir Gunnar Tryggvason hafnarstjóri. Á fundi skipulagsfulltrúa Reykjavíkur 3. febrúar sl. var lögð fram umsagnarbeiðni Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur (HER) vegna umsóknar Sindraports hf. um starfsleyfi fyrir móttökustöð fyrir úrgang, þ.e. móttöku á brotamálmum og úr sér gengnum ökutækjum, að Klettagörðum 9, ásamt geymslu á lóðinni og flutningi til og frá lóð. Óskað er eftir umsögn um það hvort starfsemin samræmist skipulagi. Einnig er óskað eftir afstöðu til gildistíma starfsleyfis og hvort í undirbúningi séu einhverjar breytingar á skipulagi sem gætu haft áhrif á gildistíma þess, en HER gefur alla jafna út starfsleyfi til 12 ára. Fram kemur í gögnum vegna umsóknarinnar að Sindraport áætli að taka á móti allt að 13.000 tonnum af brotamálmum á ári, þar af 4.000-5.000 ónýtum bílum. Auk málma eru í ökutækjum spilliefni, gúmmí, plast, rafgeymar og jarðvegur, sem verður flokkað frá og sent til frekari vinnslu eða förgunar. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Spá því að verðbólgan hjaðni lítillega í febrúar Ákvað að taka sénsinn og eltir ástina út á land Rescue efforts underway at Reynisfjara Black Beach Efna til atkvæðagreiðslu um þak á íbúafjölda landsins Ný stjórn Viðskiptaráðs kjörin Jafnræði í grásleppuveiðum Hver eru samningsmarkmiðin? Fleira áhugavert Ekki með eigin flokk að baki sér Íslendingar hvattir til að huga að heimför Sigrún, Ævar, Elín, Kristín og Margrét unnu Nóttin með Høiby mínútu fyrir mínútu Íslendingar hvattir til að huga að heimför Ekki með eigin flokk að baki sér Bæjarstjórinn einn á móti 50-60 metra rof á Reynisfjöru „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Fengu skemmu gefins Væringar í Vopnafjarðarhreppi „Vissulega líf eftir stjórnmálin“ Smitaður af berklum: Sýna starfsfólki engan stuðning Allt að 15 stiga frost Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Látinn eftir slys á Miklubraut Íslendingar hvattir til að huga að heimför Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Spá því að verðbólgan hjaðni lítillega í febrúar Ákvað að taka sénsinn og eltir ástina út á land Rescue efforts underway at Reynisfjara Black Beach Efna til atkvæðagreiðslu um þak á íbúafjölda landsins Ný stjórn Viðskiptaráðs kjörin Jafnræði í grásleppuveiðum Hver eru samningsmarkmiðin? Fleira áhugavert „Forsætisráðherra er bara að ljúga að þjóðinni“ Starmer krefur Ratcliffe um afsökunarbeiðni „Risastórt skref fyrir íþróttahreyfinguna“ Vilja bílhræin burt af lóðinni Íslendingar hvattir til að huga að heimför Ekki með eigin flokk að baki sér Bæjarstjórinn einn á móti 50-60 metra rof á Reynisfjöru „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Fengu skemmu gefins Væringar í Vopnafjarðarhreppi „Vissulega líf eftir stjórnmálin“ Smitaður af berklum: Sýna starfsfólki engan stuðning Allt að 15 stiga frost Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Látinn eftir slys á Miklubraut Íslendingar hvattir til að huga að heimför Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson

Share this article