Innlent | mbl | 4.5.2026 | 20:10 Góðmennskan geislaði af páfanum Halla og páfinn takast í hendur. AFP/Vatican Media Birta Hannesdóttir [email protected] Setja bókamerki „Eigum við ekki að segja að rauði þráðurinn í báðum samtölum hafi verið ástandið í heiminum og hvernig við getum lagst á árar um að ræða frið en ekki bara vaxandi átök,“ segir Halla Tómasdóttir forseti Íslands um fund hennar með Leó XIV páfa og Sergio Mattarella forseta Ítalíu í dag. Halla segir í samtali við mbl.is að leiðir til að takast á við áskoranir eins og gervigreindarbyltinguna, upplýsingaóreiðu og skort á trausti hafi einnig verið ræddar á fundunum. „Það er ekkert leyndarmál að þeim og mér er ofarlega í huga staðan í heiminum og hvað er til ráða, hvernig við byggjum brýr, hvernig við aukum samtalið og hvernig við setjum frið á dagskrá í heimi þar sem við virðumst í vaxandi mæli horfa til aukinna átaka sem eru ekki að þjóna mannkyninu og hvað þá næstu kynslóð,“ segir Halla. Halla segir að góðmennskan og viskan hafi geislað af bæði páfanum og forseta Ítalíu. Frétt af mbl.is Halla fundar með páfa í Vatíkaninu Páfinn djúphugsi Þetta var í fyrsta sinn sem Halla hitti Leó XIV páfa á fundi. Spurð um kynni sín af páfanum segir hún að páfinn sé vandaður og vitur. „Hann er djúphugsi og er virkilega ekki bara að tala fyrir þeim góðu mannlegu gildum, mannvirðingu, mennsku og friði, heldur stundar hann þau,“ segir Halla. Hún segir að staða unga fólksins sé páfanum ofarlega í huga, rétt eins og henni. „Honum er annt um að unga fólkið eigi erfitt með að finna trú og að tilheyra. Hann talaði um hversu mikilvægt það er fyrir okkur öll að tilheyra,“ segir Halla. Málin rædd. AFP/Vatican Media Sjá stöðuna með líkum hætti „Í rauninni kom það mér mest á óvart hvað við sáum stöðuna með líkum hætti, hvað áherslur okkar á að við þurfum að auka samtalið, bæði innan samfélaga, milli kynslóða og á milli heimshluta, og áherslur á frið og mennsku, lausnir og það sem er hægt að gera.“ Á morgun mun Halla heimsækja norrænu menningarmiðstöðina Circolo Scandinavo í Róm auk höfuðstöðva Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Valur - Grindavík, staðan er 59:45 „Verðum að gera ráð fyrir að það geti orðið annað gos“ FH - Valur, staðan er 19:15 Góðmennskan geislaði af páfanum Fór einsömul til Chicago Umræðan Eldri borgarar mæta afgangi hjá Ásdísi Ísland stendur á krossgötum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Börn á Íslandi tveimur árum á eftir „Vil meina að ég hafi sýnt töluverða viðleitni“ Ekið á mannfjölda í miðborg Leipzig Börnin vilja styttra kennaranám og meiri íslensku Mest lesið Í gær Í vikunni Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Blikur á lofti í byggingariðnaði Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Sjálftavirkni aukist og land rísi Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Skólayfirvöld axli ábyrgð Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Allir sögðu nei nema Heiða Björg Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Leikskólastjóri gagnrýnir „niðurlægjandi“ orð Kristrúnar Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Ég er enn með útþrá Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Nýjast á mbl.is » Valur - Grindavík, staðan er 59:45 „Verðum að gera ráð fyrir að það geti orðið annað gos“ FH - Valur, staðan er 19:15 Góðmennskan geislaði af páfanum Fór einsömul til Chicago Umræðan Eldri borgarar mæta afgangi hjá Ásdísi Ísland stendur á krossgötum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekið á mannfjölda í miðborg Leipzig Almenningi stafar lítil hætta af veirunni Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Mest lesið Í gær Í vikunni Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Blikur á lofti í byggingariðnaði Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Sjálftavirkni aukist og land rísi Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Skólayfirvöld axli ábyrgð Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Allir sögðu nei nema Heiða Björg Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Leikskólastjóri gagnrýnir „niðurlægjandi“ orð Kristrúnar Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Ég er enn með útþrá Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“