Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar

  • What: Internal disputes at Bifröst University involve accusations of using AI to evaluate academic work and subsequent ethics committee investigations.
  • Impact: The controversy led to the resignation of the university's rector and raises questions about academic freedom and the use of AI in academic evaluations.
Read Full Article →

Innlent | mbl | 12.2.2026 | 12:58 | Uppfært 13:23 Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar Háskólinn á Bifröst. mbl.is/Sigurður Bogi Hanna Kristín Skaftadóttir, formaður Félags akademískra starfsmanna við Háskólann á Bifröst, og einn þeirra þriggja starfsmanna sem voru kærðir til siðanefndar skólans, segir efasemdir um að stjórnendum skólans hafi borist nafnlaus ábending sem leiddi til þess að starfsmenn skólans voru kærðir til siðanefndar. Eins og mbl hefur greint frá hafa staðið deilur innan skólans sem tengjast vantrauststillögu sem var lögð fram á hendur þremur stjórnendum skólans eftir að þrír starfsmenn hans voru kærðir til siðanefndar. Greint hefur verið frá því að stjórnendurnir hafi notað gervigreindarforritið Claude til að meta réttmæti höfundarstöðu á vísindagreinum hjá akademískum starfsmönnum. Siðanefnd Háskólans á Bifröst taldi starfsmennina ekki hafa gerst brotlega við siðareglur. Margrét Jónsdóttir Njarðvík sagði síðar starfi sínu sem rektor skólans lausu. Hinir tveir stjórnendurnir sem um ræðir eru Guðrún Johnsen, deildarforseti viðskiptadeildar skólans, og Kasper Simo Kristensen rannsóknarstjóri skólans. Frétt af mbl.is Margrét segir af sér sem rektor Frétt af mbl.is Starfsmennirnir brutu ekki siðareglur Starfsmenn jákvæðir gagnvart Ólínu Í samtali við mbl.is segir Hanna Kristín starfsmenn skólans hafa átt góðan fund með Ársæli Harðarsyni, stjórnarformanni skólans, á þriðjudag. Á þeim fundi hafi einnig verið Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, sem hefur tekið við sem settur rektor skólans. „Fólk er mjög jákvætt gagnvart Ólínu og það er mikil samstaða um hana sem ríkir meðal okkar starfsmanna. Við erum að binda vonir við næstu skref,“ segir Hanna og talar þar sem formaður félags akademískra starfsmanna við skólann. Frétt af mbl.is Ólína tekur við sem settur rektor Hanna Kristín Skaftadóttir. Ljósmynd/Hanna Kristín Skaftadóttir Veita ekki upplýsingar Eins og fyrr segir er Hanna þó einnig ein þeirra þriggja starfsmanna sem stjórnendur skólans kærðu til siðanefndar. Í bréfi frá Margréti Jónsdóttur Njarðvík, sem sent var til starfsmanna, kom fram að hún hefði fengið ábendingu frá aðila sem nyti nafnleyndar sem faldi henni að taka málið áfram. Að sögn Hönnu óskuðu starfsmennirnir þrír eftir því að nafnleynd þess aðila yrði aflétt og að gögn yrðu afhent um ábendinguna síðasta sunnudag í ljósi þess að siðanefnd sagði starfsmennina ekki hafa brotið siðareglur. Segir Hanna þremenningunum hafa borist bréf frá lögmannstofunni Lex rétt fyrir hádegi í dag þar sem kom fram að stjórn Háskólans á Bifröst hafi ekki upplýsingar um hvaða aðili eigi þar í hlut. „Þeir ætla ekki að veita okkur þær upplýsingar,“ segir Hanna og heldur áfram: „Þær heimildir sem ég hef innanhúss úr skólanum, og úr mörgum áttum, eru að það hafi ekki borist nein ábending enda kemur hvergi fram neitt málsgagn í öllum málatilbúnaði sem bendir til þess að nokkur ábending hafi borist.“ Frétt af mbl.is Á að leiða sáttaferli: Nafnlaus ábending barst „Þetta er ekki liður í uppbyggilegu samtali“ Hanna segir jafnframt að starfsmennirnir þrír hafi enga afsökunarbeiðni fengið frá stjórn skólans og að það sé skammarlegt að stjórnin geti ekki átt samtal um hvað í raun fór fram „öðruvísi en í gegnum kostnaðarsama lögmannsstofu.“ „Þetta er ekki liður í uppbyggilegu samtali; að fá bréf frá Lex þar sem því er hreinlega hafnað að veita okkur eitt málsgagn. Þó svo að nafnið hefði verið yfirstrikað [...] við viljum bara sjá einhver gögn um það að ábending hafi borist. Ég er sannfærð um að það sé engin slík ábending til.“ Hún tekur jafnframt fram að stjórn Félags akademískra starfsmanna sé sömuleiðis ekki sátt með að þremenningarnir fái engin svör. Enn óánægja innan viðskiptadeildar Aðspurð segir hún að farið verði yfir stöðuna aftur eftir helgi með stjórnarformanni og nýjum rektor. „Við munum fara yfir það vantraust sem stendur enn þá út af sem eru Guðrún Johnsen og Kasper Simo Kristensen. Það er ekki búið að leysa það. Þannig að það er enn þá óánægja innan viðskiptadeildar með þennan hluta málsins og það hjálpar ekki til að fá ekki úr skorið um það hvort að nafnlaus ábending hafi sannarlega borist.“ Seldi medalíuna til að bjarga lífi barns Fer aftur á Vetrarólympíuleika 70 árum síðar Icelanders in Cuba urged to consider returning home Meistararnir styrkja sig Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar Jafnræði í grásleppuveiðum Hver eru samningsmarkmiðin? Fleira áhugavert 50-60 metra rof á Reynisfjöru Nóttin með Høiby mínútu fyrir mínútu Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Íslendingar hvattir til að huga að heimför Íslendingar hvattir til að huga að heimför Ekki með eigin flokk að baki sér Bæjarstjórinn einn á móti Vilja bílhræin burt af lóðinni 50-60 metra rof á Reynisfjöru Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Væringar í Vopnafjarðarhreppi „Vissulega líf eftir stjórnmálin“ Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Seldi medalíuna til að bjarga lífi barns Fer aftur á Vetrarólympíuleika 70 árum síðar Icelanders in Cuba urged to consider returning home Meistararnir styrkja sig Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar Jafnræði í grásleppuveiðum Hver eru samningsmarkmiðin? Fleira áhugavert Væringar í Vopnafjarðarhreppi Nóttin með Høiby mínútu fyrir mínútu Kyndir undir kreppu á Kúbu „Forsætisráðherra er bara að ljúga að þjóðinni“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Ekki með eigin flokk að baki sér Bæjarstjórinn einn á móti Vilja bílhræin burt af lóðinni 50-60 metra rof á Reynisfjöru Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Væringar í Vopnafjarðarhreppi „Vissulega líf eftir stjórnmálin“ Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson

Share this article