Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Skora á Alþingi að leggja til hliðar lagareldisfrumvarp

Read Full Article →

Í ályktun aðalfundur Landssambands veiðifélaga er skorað á Alþingi að leggja til hliðar að sinni framlagt frumvarp um lagareldi og leita sátta með öllum hagsmunaaðilum um gerð nýs frumvarps. „Þar verði ekki aðeins gætt hagsmuna fiskeldisiðnaðarins heldur verði einnig hugað að umhverfisvernd, vernd villtra fiskistofna og atvinnulífi tengdu stangveiði til jafns við það sem tengt er fiskeldi. Lýsir Landssambandið sig reiðubúið til að taka þátt í gerð slíks frumvarps." Ályktunin var samþykkt á aðalfundi Landssambands veiðifélaga sem fór fram að Laugum í Sælingsdal 24. og 25. apríl síðastliðinn. Var fundurinn vel sóttur af veiðifélögum um allt land og málefni veiðifélaga krufin til mergjar. Eins og við var að búast þá var nýtt frumvarp atvinnuvegaráðherra um lagareldi fyrirferðarmikið á fundinum.

Share this article