Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Alveg toppurinn segir Guðlaugur á Hvítá HF

Read Full Article →

„Það gekk vel og það var fallegur fiskur hér í Ólafsvík og á Rifi,“ segir Guðlaugur Jónasson á Hvítá HF 420 um fyrsta dag strandveiða sumarsins á mánudag. Guðlaugur segir nokkra báta hafa farið út klukkan hálf fjögur í fyrrinótt, aðfaranótt þriðjudags. Nokkrir klukkutímar frekar en ekkert „Það skall á norðaustan kaldadrulla um sexleytið,“ segir Guðlaugur, sem kominn var aftur í land klukkan hálf níu með tæplega skammtinn vegna veðurs. „Það fóru mjög margir á sjó eldsnemma upp á að ná nokkrum klukkutímum í staðinn fyrir ekki neitt,“ segir Guðlaugur. Menn reiknu ekki með að fara á sjó í dag því spáð sé brælu. Verðið er hátt Hvítá HF 420. Mynd/Guðlaugur Jónasson „Það er nóg af fiski og það er mikið af æti fyrir hann hérna á Breiðafirði og við þökkum fyrir að hann vilji bíta á fallegu krókana hjá okkur,“ segir Guðlaugur, sem fór út klukkan fimm fyrsta veiðidaginn. „Ég var kominn inn aftur um hálf ellefu með skammtinn. Þetta er mjög góður fiskur.“ Verðið fyrir þorskinn segir Guðlaugur vera mjög gott, meðalverðið sé sennilega um 600 krónur á kíló. Til samanburðar hafi meðalverðið í fyrra verið í kringum 450 krónur. Menn séu því sáttir við sinn hlut. Mætti veiða umfram ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar „Það vantar þorsk á alla markaði. Það er alveg synd að þegar allir sjómenn tala um hvað það er ofboðslega mikill fiskur í sjónum finni Hafrannsóknastofnun aldrei neitt og sjái ekki neitt,“ segir Guðlaugur. Það sé á hreinu að það sé mikið af fiski á Breiðafirðinum. „Það er mikið búið að vera af síld og loðnu hérna í vetur,“ segir Guðlaugur. Engin spurning sé að óhætt ætti að vera að veiða meira en ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar segi til um. Afdráttarlausar niðurstöður skoðanakönnunar á Facebook „Aflareglan hjá þeim sem er 20 prósent ætti að vera 25 prósent,“ lýsir Guðlaugur sínu mati. Sjálfur hafi hann staðið fyrir skoðanakönnun um málið á Facebook-síðu um strandveiði. „Það var spurt hvort menn væru sammála stofnstærðarmælingu og fiskiveiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og 97 prósent sögðu stofnunina vera á villigötum,“ segir hann um niðurstöður þessarar óformlegu könnunar. Sjötta strandveiðisumarið „Ég hef sagt í gríni að ef þeir tækju með sér kött í hafrannsóknarall yrðu þeir að hafa með sér kattamat svo hann yrði ekki svangur,“ lýsir Guðlaugur nánar skoðun sinni á getu Hafrannsóknastofnunar til að koma auga á fisk í sjónum. Guðlaugur, sem verið hefur til sjós alla sína starfsævi víða um lönd og álfur, er nú að hefja sjötta strandveiðisumarið sitt. Veiðin ráðist af fiskgengd „Ég læt strandveiðina duga, ég þarf ekkert meira,“ segir Guðlaugur, sem kveður þennan veiðiskap ofboðslega skemmtilegan. „Ég er bara veiðimaður í mér og er búinn að elska að veiða síðan ég var krakki. Og þetta er alveg toppurinn.“ Veiðina í sumar segir Guðlaugur munu ráðast af fiskgengd. „Það er spurning hvað þorskurinn verður lengi hérna hjá okkur en ég ætla bara að vera bjartsýnn,“ segir hann. Dapurlegt að taka af öðrum Hvítá HF 420. Mynd/Guðlaugur Jónasson Hvað umgjörð strandveiðanna af hálfu stjórnvalda varðar segir Guðlaugur að það vanti einfaldlega meira í pottinn. „Þegar það er nóg af fiski í sjónum er dapurlegt ef það á að taka af öðrum fyrir okkur. Það á bara að taka viðbótina utan aflamarks. Það skiptir engu máli því VS-afli er tekinn utan aflamarks og undirmálsafli líka. Og allt það gríðarlega magn sem togarar drepa eða skadda með botndregnum veiðarfærum er ekki í neinu kerfi. Þannig að það skiptir engu þó að það væri hent einhverjum fimm þúsund tonnum í þetta,“ segir Guðlaugur Jónasson.

Share this article