Innlent | mbl | 6.5.2026 | 16:03 Ætla ekki að fara í „leyniklefann úr Icesave“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson Freyr Bjarnason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Engin rök fyrir frestun þjóðaratkvæðagreiðslunnar Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Fá að sjá upplýsingar „í læstu leyniherbergi“ „Fyrst og fremst gert fyrir þjóðina“ ESB-ferlið hófst strax 2025 » Fleiri tengdar fréttir Þingmenn minnihlutans í utanríkismálanefnd Alþingis höfnuðu því á fundi í morgun að fallast á skilyrði meirihlutans um að þeir fengju að sjá ákveðnar upplýsingar frá utanríkisráðuneytinu í tengslum við ESB-ferlið nema þeir samþykktu að skoða þær í lokuðu herbergi og lofuðu að vitna ekki í gögnin. Meirihlutinn bar fyrir sig að um trúnaðarupplýsingar væri að ræða. Þetta segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fulltrúi í utanríkismálanefnd, í samtali við mbl.is. Frétt af mbl.is Fá að sjá upplýsingar „í læstu leyniherbergi“ Trúnaðarákvæði verið misnotað „Við vorum ekki reiðubúin að fallast á þetta skilyrði, að þetta yrði gert með þessum hætti og að við værum með því móti að afsala okkur rétti til að tjá okkur um málið. Það væri til þess fallið að setja okkur í vonlausa stöðu í umræðunni,” segir þingmaðurinn og bætir við að trúnaðarákvæði utanríkismálanefndar hafi að sínu mati og fleiri þingmanna minnihlutans verið misnotað í stjórnartíð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Frétt af mbl.is ESB-ferlið hófst strax 2025 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir á fundi utanríkismálanefndar. mbl.is/Eggert Jóhannesson „Það er verið að setja trúnað á fundi þar sem verið er að fjalla um einhver mál sem maður jafnvel heyrði í fréttum vikuna áður. En til þess að hindra það að þingmenn tjái sig mikið um það þá hefur verið lýst yfir trúnaði á fundinum. En þetta er nýtt skref og eiginlega bara eðlisólíkt að upplýsingar um það sem íslensk stjórnvöld hafa verið að bauka með Evrópusambandinu verði aðeins aðgengilegar í lokuðu rými gegn því að menn lofa að tjá sig ekki um þær,” segir Sigmundur Davíð. Frétt af mbl.is Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Vilja ekki segja hvað er svona leynilegt Spurður nánar út í hvaða upplýsingar er um að ræða segir hann að reynt hafi verið að spyrja út í það á fundi utanríkismálanefndar í morgun. „Það eina sem við höfum í því eru þessi heiti funda, dagsetningar og umfjöllunarefni funda. Og þeir eru, eins og Morgunblaðið sagði frá í morgun, mjög margir og fjalla mjög margir þeirra um Evrópusambandsumsóknina og áhuga Þorgerðar á að komast í aðildarferli. En nákvæmlega hvað það er sem er svona leynilegt það vilja þau ekki segja,” svarar hann og segir að einnig hafi verið tekið fyrir það að utanríkismálanefnd afli upplýsinga frá Evrópusambandinu, sem fulltrúar Feneyjarnefndarinnar hafi þó lagt til að yrði gert. Frétt af mbl.is „Vil meina að ég hafi sýnt töluverða viðleitni“ Alþingi. mbl.is/Karítas „Leynimakk og blekkingarleikur“ Hann líkir vinnubrögðunum við að skoða upplýsingar í lokuðu herbergi við Icesave-málið á sínum tíma. Frétt af mbl.is Skoða Icesave-gögn í lokuðu herbergi „Það á að endurvekja gamla leyniklefann úr Icesave-málinu þar sem þingmönnum var á endanum boðið að skoða Icesave-samningana hver fyrir sig í læstu leyniherbergi og máttu ekki hafa með sér síma eða blað og blýant og máttu ekki vitna í neitt. Nú er þetta ESB-ferli komið af stað og þingmönnum í utanríkismálanefnd er boðið upp á það að ef þeir vilja vita meira um hvað fulltrúum Íslands og Evrópusambandsins hefur farið á milli, um hvað hefur verið rætt og í hvað stefni þá skulu þeir gera það í lokuðum klefa og lofa því að vitna ekki í þessar upplýsingar á nokkurn hátt. Þetta ber allt að sama brunni, þetta er leynimakk og blekkingarleikur,” segir hann. Frétt af mbl.is Vilja að leynd verði aflétt af öllum skjölum „Brútal“-umræða á fundinum Spurður hvort til greina komi að óska eftir því að kalla Alþingi saman til að ræða nýjustu vendingar tengdar utanríkismálanefnd og ESB-ferlinu segir Sigmundur Davíð að krafa sé um að þingið gefi væntanlegum sveitarstjórnarkosningum svigrúm og því séu möguleikar á að kalla þing saman takmarkaðir. Umræðan á fundi utanríkismálanefndar hafi aftur á móti verið „brútal” og þar hafi ekki verið tekið tillit til neins sem minnihlutinn hafði fram að færa. Tengdar fréttir Ísland og ESB Engin rök fyrir frestun þjóðaratkvæðagreiðslunnar Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Fá að sjá upplýsingar „í læstu leyniherbergi“ „Fyrst og fremst gert fyrir þjóðina“ ESB-ferlið hófst strax 2025 » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Mátar grímu til að geta spilað Segir ársreikningin eiga að vera viðvörun Þóra og RÚV sýknuð Nærri 5 þúsund skráðu ekki kílómetrastöðuna Ætla ekki að fara í „leyniklefann úr Icesave“ Umræðan Bókhaldsblekkingar í boði bæjarstjóra Gagnsæi og samkeppni þegar kemur að opinberum innkaupum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þóra og RÚV sýknuð Þrír sjúklingar fluttir á brott: Læknar á leiðinni Eldur í mannlausri rútu Mistök en gagnrýnin stendur Mest lesið Í gær Í vikunni Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Hilmar vill ekki vera á matseðlinum Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Byrja að flytja vindmyllur í kvöld Andlát: Sigrún Guðjónsdóttir Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Nýjast á mbl.is » Mátar grímu til að geta spilað Segir ársreikningin eiga að vera viðvörun Þóra og RÚV sýknuð Nærri 5 þúsund skráðu ekki kílómetrastöðuna Ætla ekki að fara í „leyniklefann úr Icesave“ Umræðan Bókhaldsblekkingar í boði bæjarstjóra Gagnsæi og samkeppni þegar kemur að opinberum innkaupum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert ESB-ferlið hófst strax 2025 Engin rök fyrir frestun þjóðaratkvæðagreiðslunnar Þóra og RÚV sýknuð Ætla ekki að fara í „leyniklefann úr Icesave“ Mest lesið Í gær Í vikunni Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Hilmar vill ekki vera á matseðlinum Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Byrja að flytja vindmyllur í kvöld Andlát: Sigrún Guðjónsdóttir Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda