Meirihluti atvinnuveganefndar Alþingis ákvað í síðustu viku að áformað afnám línuívilnunar og skelbóta yrði tekið út úr frumvarpi innviðaráðherra sem nú liggur fyrir þinginu. „Þetta eru náttúrlega góðar fréttir,“ segir Mikael R. L. Steingrímsson, framkvæmdastjóri Fiskvinnslunnar Drangs og Útgerðarfélagsins Skúla á Drangsnesi. Góðar fréttir en setur þó en fyrirvara „Grásleppuveiðin núna hefur verið fín en ekkert stórkostleg,“ segir framkvæmdastjóri Drangs og Skúla, sem tók sjálfur þessa mynd á bryggjunni á sunnudaginn var. MYND/MIKAEL R. L. STEINGRÍMSSON Mikael fagnar þó ekki alveg án fyrirvara og bendir á að innviðaráðherra hafi enn heimild til að ráðstafa eins og hann vill til hverrar aðgerðar. „Það er þegar búið að draga mjög mikið saman í þorski í þessum aðgerðum. Ráðherrann helmingaði þorskinn í línuívilnun og almenna byggðakvótanum og minnkaði þorskinn hjá skel- og rækjubátunum í fyrra. Það eru náttúrlega heimildir til þess. Manni verður ekki raunverulega létt fyrr en maður sér reglugerðina,“ segir Mikael. Þetta séu þó engu að síður mjög góðar fréttir. Þingmenn hafi ekki áttað sig á málinu „Það er mikill léttir að þingmenn hafi séð ljósið og tekið þetta út en við eigum enn eftir að sjá reglugerðina fyrir næsta fiskveiðiár,“ segir Mikael. Venjulega sé slík reglugerð gefin út í ágúst áður en fiskveiðiárið hefjist 1. september. Þetta hafi þó brugðist í fyrra er ráðherra hafi ekki gefið reglugerð út fyrr en í lok nóvember með tilheyrandi óvissu fram að því. Aðspurður kveðst Mikael telja að þingmenn hafi í fyrstu ekki áttað sig á mögulegum áhrifum hinna áformuðu breytinga. Áhrifin verði ekki of afdrifarík „Maður heyrir að stefnan sé núna að fara í einhvers konar heildarendurskoðun þannig að áhrifin verði ekki svona drastísk fyrir svona lítil byggðarlög eins og okkur. Breytingar muni ekki eingöngu felast í því að setja allt í strandveiðarnar eins og það virtist eiga að gera. Það er alveg sama hvaða skoðun menn hafa á hverri aðgerð fyrir sig, það hefur áhrif ef hún er tekin í burtu,“ segir Mikael R. L. Steingrímsson.