Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

HSÍ tekur fordómafulla söngva um Hafdísi fyrir

This article does not describe a software vulnerability or technical threat; it is a report on a real-world incident of discriminatory chanting by a spectator at a sporting event in Iceland. The incident has been formally reported to the national sports association (HSÍ) for potential disciplinary action under its code of conduct, and the supporter's club involved has issued a public apology and imposed a temporary ban on the individual.
Read Full Article →

Vefsíðan Handkastið greindi frá þessu í morgun og má finna myndband þar sem söngvarnir heyrast. Á 32. mínútu leiksins heyrist sungið úr stúkunni „Hafdís fílar skæri“ sem er vísun í kynlíf tveggja kvenna. Ummælin, og umrætt myndskeið, eru komin á borð hjá HSÍ og staðfesti Sólveig Jónsdóttir, framkvæmdastjóri HSÍ, það í samtali við RÚV í dag. Málið fari nú í farveg innan sambandsins og verður líklega tekið fyrir hjá aganefnd HSÍ. VI. kafli reglugerðar HSÍ um agamál fjallar um ósæmilega framkomu og fellur hegðun áhorfenda þar undir. Yfirlýsing Handknattleiksdeildar ÍBV Stjórn handknattleiksdeildar ÍBV sendi frá sér yfirlýsingu á Facebook um miðjan dag í dag. Þar er mismunun fordæmd og sagt að viðkomandi stuðningsmaður hafi verið settur í tímabundið bann. Yfirlýsingin í heild sinni er svohljóðandi: Handknattleiksdeild ÍBV fordæmir alla mismunum í hvaða formi sem hún birtist og harmar orð sem voru látin falla af stuðningsmanni ÍBV gagnvart Hafdísi Renötudóttur í leik 2 í úrslitum Olís deildar kvenna. Það skal tekið fram að þetta var einn aðili sem lét þessi orð falla en ekki stuðningsmannasveit ÍBV eða stuðningsmenn ÍBV yfir höfuð. Það hefur verið tekið á þessu máli innanbúðar eftir að forsvarsmenn handknattleiksdeildarinnar fengu veður af málinu og þessi tiltekni aðili settur í tímabundið bann. Fyrir hönd handknattleiksdeild ÍBV biðjum við Hafdísi Renötudóttur afsökunar og vonum að þetta muni ekki hafa meiri áhrif á þetta glæsilega einvígi sem hefur átt sér stað og stendur enn yfir. Fyrir hönd Handknattleiksdeildar ÍBV Garðar B. Sigurjónsson

Share this article