- What: The Icelandic Landsréttur court has upheld the district court's ruling in the largest crystal methamphetamine case in Icelandic history.
- Impact: Sigurður Ragnar Kristinsson received an eight-year prison sentence, the heaviest of the six defendants.
Innlent | mbl | 12.2.2026 | 20:42 Átta ára dómur staðfestur í stóra metamfetamínmálinu Samsett mynd/mbl.is/Kristinn Magnússon/Eggert Jóhannesson Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í stærsta kristal-metamfetamínmáli Íslandssögunnar. Sigurður Ragnar Kristinsson hlaut þannig átta ára fangelsi, þyngstan dóm sex sakborninga. Áður hafði Héraðsdómur Reykjavíkur dæmt Sigurð í átta ára fangelsi, Agurim Xixa í fimm ára og sex mánaða fangelsi, Baldur Þór Sigurðarson í fjögurra ára fangelsi, Sigfús Bergmann Svavarsson í þriggja ára og sex mánaða fangelsi og Elsu Ruth Róbertsdóttur í tíu mánaða fangelsi. Einn karlmaður, sem talað er um sem X í dómnum, var sýknaður. 5.733,60 grömm af metamfetamínkristöllum Að því er segir í dómnum voru Sigurður, Baldur, Sigfús og Agurim ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið saman að innflutningi á 5.733,60 grömmum af metamfetamínkristöllum með 81% styrkleika í metamfetamínbasa sem samsvaraði 100% af amfetamínklóríði, ætluðu til söludreifingar hér á landi. Efnin voru falin í bifreið sem flutt var inn til landsins. Við komu til landsins voru efnin fjarlægð og gerviefni sett í þeirra stað áður en ákærðu var afhent bifreiðin. X var gefin að sök hlutdeild í tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots með því að hafa 24. október 2024 sótt bifreiðina með Sigfúsi og Baldri, vitandi að fíkniefni væru í bifreiðinni, og þannig veitt þeim liðsinni með stuðningi og hvatningu. Elsa var sökuð um hlutdeild í tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots með því að hafa 25. október 2024 aðstoðað Sigurð og Agurim við að fjarlægja fíkniefnin úr bifreiðinni. Ætluð brot X og Elsu voru talin varða við almenn hegningarlög. Með dómi héraðsdóms voru Sigurður, Baldur, Sigfús og Agurim sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot en sýknaðir af þeim hluta ákæru er laut að skipulagðri brotastarfsemi. Þá var Elsa sakfelld samkvæmt ákæru en X sýknaður af kröfum ákæruvaldsins. Frétt af mbl.is Neita sök í stóra kristal metamfetamínmálinu Brentford – Arsenal, staðan er 0:0 „Heimsmeistarar í sjálfsmörkum“ Endukoma í fyrsta leik Arons Átta ára dómur staðfestur í stóra metamfetamínmálinu Myndbönd af heimaskrifstofu Epsteins Jafnræði í grásleppuveiðum Almannavarnir á óvissutímum Fleira áhugavert Milljarðurinn hluti af skuldbindingum Íslands Væringar í Vopnafjarðarhreppi Framkvæmdir gætu kostað milljarða Fer aftur á Vetrarólympíuleika 70 árum síðar Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar Bæjarstjórinn einn á móti 50-60 metra rof á Reynisfjöru Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Framkvæmdir gætu kostað milljarða Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Brentford – Arsenal, staðan er 0:0 „Heimsmeistarar í sjálfsmörkum“ Endukoma í fyrsta leik Arons Átta ára dómur staðfestur í stóra metamfetamínmálinu Myndbönd af heimaskrifstofu Epsteins Jafnræði í grásleppuveiðum Almannavarnir á óvissutímum Fleira áhugavert Íslendingar hvattir til að huga að heimför Milljarðurinn hluti af skuldbindingum Íslands „Við getum ekki búið við þessar aðstæður“ Kyndir undir kreppu á Kúbu Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar Bæjarstjórinn einn á móti 50-60 metra rof á Reynisfjöru Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Framkvæmdir gætu kostað milljarða Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson