Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Enski boltinn vegur þungt í fjár­festingum Sýnar

This article is not a technical security advisory; it is a financial report detailing the Icelandic media company Sýn's quarterly results, highlighting increased investments and amortization due to English football broadcasting rights alongside growth in media revenues. No vulnerability, threat, CVSS score, affected versions, fixed version, or security workaround is mentioned or can be inferred from the provided content.
Read Full Article →

Fjár­festingar Sýnar jukust um 75% á fyrsta árs­fjórðungi og námu 837 milljónum krón, saman­borið við 479 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Hækkunin skýrist einkum af greiðslum vegna sýningarrétta á enska boltanum en Sýn greiddi 586 milljónir fyrir sýningarétti á fjórðungnum samanborið við 316 milljónir á sama tíma í fyrra. Í til­kynningu félagsins segir að hækkunin milli ára skýrist af fjár­festingu í enska boltanum sem hafi ekki verið inni í tölum fyrra árs. Þá kemur fram að af­skriftir hafi aukist um 17% milli ára, einkum vegna aukinna af­skrifta vegna sýningarréttar á enska boltanum. Á móti hafa tekjur af fjölmiðlun aukist veru­lega. Fjölmiðla­tekjur Sýnar námu 1.944 milljónum króna á fyrsta árs­fjórðungi, saman­borið við 1.657 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Tekjurnar jukust því um 287 milljónir króna, eða 17,3%. Sýn segir auknar tekjur í fjölmiðlun meðal annars skýrast af veru­legri fjölgun áskrif­enda að íþróttastöðvum félagsins. Tekjur af aug­lýsingasölu jukust einnig, eða um 9,4%, og námu 658 milljónum króna. Þrátt fyrir auknar greiðslur vegna sýningarréttanna batnaði undir­liggjandi rekstur félagsins milli ára. EBIT­DA­aL nam 842 milljónum króna á fjórðungnum, saman­borið við 581 milljón króna á sama tíma í fyrra. EBIT­DA­aL að frá­dregnum fjár­festingum var hins vegar aðeins jákvætt um 5 milljónir króna, saman­borið við 102 milljónir króna á fyrsta árs­fjórðungi í fyrra. Sjá einnig Tapa 291 milljón en binda vonir við um­breytingar

Share this article