Innlent | mbl | 12.2.2026 | 23:52 Fuglar og menn heimsfrumsýnd á CPH:DOX Bóndi er bústólpi. Karldýr í Loðmundarfirði stendur drýldið á svip og drepur af sér flærnar úti í garði á meðan kvendýrið sinnir börnum og búi. Myndin er á leið á eina af sterkustu heimildarmyndahátíðum heimsbyggðarinnar. Ljósmynd/RAX „Þetta er náttúrulega bara óskabyrjun fyrir myndina,“ segir Ingvar Þórðarson, framleiðandi og einn þriggja leikstjóra heimildarmyndarinnar Fuglar og menn sem heimsfrumsýnd verður á heimildarmyndahátíðinni CPH:DOX 13. mars. Með honum leikstýrðu þeir Mika Kaurismäki og Ragnar Axelsson ljósmyndari myndinni sem Ingvar sagði Morgunblaðinu og mbl.is ítarlega frá í viðtali í desember. Frétt af mbl.is Ný stikla: Dúnmjúkur draumur í Loðmundarfirði CPH:DOX er ein af leiðandi heimildarmyndahátíðum heimsins og sýnir árlega sterkustu og framsæknustu heimildarmyndir úr öllum heimshornum. Óhætt er að segja að Fuglar og menn teljist til sterkra og framsækinna heimildarmynda – ættu þar fáir að velkjast í vafa sem lesið hafa frásögn Ingvars í viðtalinu handan hlekkjarins hér að ofan. Þrír menn, 12.000 fuglar. Ragnar Axelsson, gamalreyndur Mika Kaurismäki og Ingvar Þórðarson við gerð myndarinnar. Ljósmynd/RAX Aðstandendur 6.000 mynda sóttu um Ekki blés byrlega fyrir verkefninu í fyrstu, að fá að skyggnast djúpt inn í líf hjónanna og æðarbændanna Ólafs Aðalsteinssonar og Jóhönnu Óladóttur sem í þrjá mánuði ár hvert verja löngum sumardægrum í „einangruðum og goðsagnakenndum Loðmundarfirði“, eins og sagði í kynningarefni frá framleiðslufyrirtæki myndarinnar, Kisa, fyrir jól. Ólafi leist ekkert á blikuna til að byrja með en lét til leiðast fyrir „klíkuskap“ þar sem Ingvar hafði sem barn verið í sveit hjá Daníel Pálssyni bónda í Geitavík 1 sem var vinur Ólafs. Svona geta kaupin nú gerst á eyrinni. Ingvar segist hafa það fyrir satt að aðstandendur 6.000 heimildarmynda hafi sótt um að komast á hátíðina og af þeim aðeins nokkrir tugir valdir til sýningar þar. „Þarna mæta líka fulltrúar annarra hátíða til að skoða myndir, söluaðilar og margir fleiri,“ heldur Ingvar áfram en Fuglar og menn hafa hlotið lof þeirra útvöldu sem enn hafa fengið að sjá hana. Dvergasmíð æðarbónda í Loðmundarfirði mun vitrast umheiminum á kvikmyndahátíð innan tíðar. Ólafur bóndi hefur smíðað öll híbýli fuglanna og er sagt að honum falli aldrei verk úr hendi. Ljósmynd/RAX Grípum niður í nokkrar umsagnir: Hið „einfalda“ líf — Nútímaheimur snjallsíma og spjaldtölva er víðsfjarri einangruðum og goðsagnakenndum Loðmundarfirði. Þar er þögnin þó full af friði og tilgangi. Þessi lífsnálgun hefur orðið sífellt meira áberandi sem viðbragð við streitu og álagi samtímans. Tengsl manns og náttúru — Myndin dregur fram djúp og falleg tengsl mannsins við umhverfi sitt. Hringrás lífsins — Hið undursamlega í árlegum endurtekningum náttúrunnar og samhengi kynslóðanna. Kynslóð á krossgötum — Saga um kynslóð sem er að hverfa á tímum sem einkennast af örum breytingum, hraða og stöðugri hreyfingu. Ingvar segir hátíðina í Kaupmannahöfn auk þess sérstaka fyrir nálgun hennar en þar fara fram fyrirlestrar, umræður og listamannasamtöl auk fjölbreyttra viðburða sem setja myndirnar í víðara samfélagslegt og menningarlegt samhengi. Þá má geta þess að frá árinu 2020 hefur hátíðin einnig náð til áhorfenda um allt land í gegnum stafrænan vettvang sinn. Allt annar farvegur „Fólk tengir sérstaklega við myndina í því brjálæði og látum sem einkenna heiminn um þessar mundir,“ segir Ingar, „nú er mikil umræða um það í Danmörku að breyta um lífsstíl og flytja upp í sveit, róa allt niður í stað þess að æsa allt upp.“ Tökurnar voru ekki alltaf teknar út með sæld. Birgit Guðjónsdóttir tökumaður í forgrunni og Johann Neumann aftar í hríðarmuggu í maímánuði. Í Loðmundarfirði er allra veðra von. Ljósmynd/Pálmi Benediktsson Hann segir myndirnar á hátíðinni keppa í nokkrum flokkum auk þess sem veitt séu sérstök áhorfendaverðlaun á grundvelli kosningar áhorfenda. „Þetta er annar farvegur en hefðbundnar bíómyndir fara í sem keppa á Cannes, Sundance og Berlinale, heimildarmyndir eru alveg sér á parti og þessi hátíð er talin ein af þeim fjórum sterkustu í heiminum. Þetta er svona hátíð sem þú vilt byrja á,“ segir Ingvar Þórðarson, framleiðandi og einn þriggja leikstjóra Fugla og manna sem reynir fyrir sér á CPH:DOX í mars. Fylgst verður með flugi æðarfuglanna í Loðmundarfirði á hátíðinni í mars hér á mbl.is. Lögregla hafði ítrekuð afskipti af árásarmanninum Vilja fá hindberja-morðingjann framseldan Þar sem enginn vill halda sín jól Andlit leikkonu notað til auglýsingar á gervigreind Hvers vegna var Kristrún dæmd úr leik á ÓL? Jafnræði í grásleppuveiðum Almannavarnir á óvissutímum Fleira áhugavert Nýtt merki undir Tenerife: Vísindaráð kallað saman Milljarðurinn hluti af skuldbindingum Íslands Vilja bílhræin burt af lóðinni „Heimsmeistarar í sjálfsmörkum“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Bæjarstjórinn einn á móti Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Stúlkan fundin heil á húfi Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Lögregla hafði ítrekuð afskipti af árásarmanninum Vilja fá hindberja-morðingjann framseldan Þar sem enginn vill halda sín jól Andlit leikkonu notað til auglýsingar á gervigreind Hvers vegna var Kristrún dæmd úr leik á ÓL? Jafnræði í grásleppuveiðum Almannavarnir á óvissutímum Fleira áhugavert „Við tökum þessi orð mjög alvarlega“ „Heimsmeistarar í sjálfsmörkum“ Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar Fer aftur á Vetrarólympíuleika 70 árum síðar Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Bæjarstjórinn einn á móti Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Stúlkan fundin heil á húfi Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson