Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 13 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Mannlíf Landsmönnum fjölgaði í 395.050 Hugrún Hannesdóttir Diego Fjöldi landsmanna er kominn yfir 395 þúsund. Þeim fjölgaði um 520 á fyrsta ársfjórðungi. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Hagstofu Íslands. Karlar voru í meirihluta, eða yfir 202 þúsund á móti rúmlega 192 þúsund konum. 230 einstaklingar voru skráðir kynsegin eða annað. Erlendir ríkisborgarar voru 70.650 eða 17,9% af heildarfjölda. Meirihluti landsmanna var búsettur á höfuðborgarsvæðinu, eða rúmlega 252 þúsund á móti yfir 142 þúsund á landsbyggðinni. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 45 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Mos Def frestar tónleikum fram í september Anna María Björnsdóttir Bandaríski rímnasmiðurinn Yasiin Bey, eða Mos Def, frestar tónleikum sem áttu að fara fram í Gamla bíói annað kvöld, laugardaginn 9. maí til 10. september. Þetta kemur fram í tilkynningu frá tónleikahöldurum þar sem beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem hinar óviðráðanlegu aðstæður kunni að valda. EPA / ENNIO LEANZA Fyrir 55 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Mannlíf Flugsystur fljúga saman í hádegisverð Félagsskapurinn Flugsystur var stofnaður á Akureyri í fyrra. Allar konur sem hafa áhuga á flugi eða vinna sem flugmenn eru velkomnar í hópinn. Landinn kynnti sér málið. Fyrir 55 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Bankaræningjarnir löngu horfnir þegar gíslatökunni lauk Gíslatöku í þýskum banka lauk þegar lögregla lét til skarar skríða. Þá voru bankaræningjarnir horfnir á brott án þess að nokkur yrði þess var. Fyrir 57 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Daði Freyr: Einlægur og hlýr hrekkjalómur Á nýrri breiðskífu Daða Freys Péturssonar fetar hann svipaða slóð og á síðustu plötum, en tónlistin er þó fjölbreyttari og skemmtilegri en nokkru sinni að mati Árna Matthíassonar sem gefur plötunni fjórar og hálfa stjörnu. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Bretland Aldargamall Attenborough hrærður yfir öllum afmæliskveðjunum David Attenborough, einn þekktasti sjónvarpsmaður heims, er hundrað ára í dag. Hann sá fyrir sér rólegan dag en ýmsir viðburðir verða í heimalandi hans, Bretlandi, í tilefni dagsins. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Einn fluttur til aðhlynningar eftir árekstur á Sprengisandi Einn var fluttur til aðhlynningar með lítilsháttar áverka eftir árekstur tveggja bíla á Sprengisandi í dag, nærri afrein af Reykjanesbraut og upp í Árnesbrekku. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Fimm nauðsynleg fyrir helgina Það eru heldur betur bombur þessa vikuna í Fimmunni þar sem er boðið upp á ný lög frá Boards of Canada, Madonnu, Kneecap ásamt Kae Tempest, Lönu Del Ray og Widowspeak. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Fjöldi skriflegra og munnlegra athugasemda gerðar við notkun Heiðu á innkaupakorti Starfsfólk á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara hefur gert 23 skriflegar athugasemdir við notkun borgarstjóra á innkaupakorti sem hún hefur til umráða. Þá hefur hún ítrekað verið minnt á reglur um notkun kortsins. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Miðausturlönd Segir vopnahlé enn í gildi þrátt fyrir vopnaglamur Íranar og Bandaríkjamenn skutu hvorir á aðra í gær. Bandaríkjaforseti segir að vopnahlé haldi enn. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Hvalfjarðargöng lokuð vegna bilaðs bíls Hugrún Hannesdóttir Diego Hvalfarðagögnum var lokað fyrir skömmu vegna bíls sem bilaði í göngunum. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar, Umferðin.is. Búist er við því að lokunin standi í 30 til 40 mínútur. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Stjórn Kviku vill borga 10 milljarða aukalega í arð Arðgreiðslur hluthafa í Kviku gætu hækkað úr 1,6 milljörðum í um það bil 12 milljarða króna. Stjórn segir svigrúm til aukinna arðgreiðslna í ljósi þess að ekki verður af samruna við Arion banka. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópa 11 tonn af kókaíni fundust í aðgerð Europol Hugrún Hannesdóttir Diego Europol hefur ásamt spænskum yfirvöldum stöðvað fíkniefnaflutning um þekkta smyglleið þvert yfir Atlantshafið. Yfirvöld stöðvuðu átta skip og lögðu hald á ellefu tonn af kókaíni og 8,5 tonn af hassi í aðgerðinni sem stóð í tvær vikur í apríl. 54 voru handteknir. Aðgerðin er liður í rannsókn Europol á sífellt algengara fyrirkomulagi smyglara þar sem efnunum er siglt frá Ameríku til alþjóðlegra hafsvæða og síðan flutt í minni skip eða báta. Smyglarar flytja efni gjarnan í enn smærri báta og forðast hafnir til að komast hjá því að vekja á sér athygli. Efnin eru almennt flutt til Spánar og Portúgal og þeim svo dreift til enn fleiri landa. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Gestastýran Eva Ruza og Gellupoppið í Partýverkunum Hin magnaða Eva Ruza var í geggjuðu stuði þegar hún tók við stjórninni í Partýverkunum á Rás 2 á dögunum. Eva tók starf sitt alvarlega og var með fróðleik og sögur um flytjendur og var fáránlega hress eins og hún á að sér. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ekið á hjólreiðamann í Reykjavík Einn var fluttur á slysadeild eftir að bíl var ekið á hjólreiðamann í Reykjavík í morgun. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leikskólar Leikskólagjöld fyrir fulla vistun hækkað um allt að 85% Leikskólagjöld fyrir fulla vistun hafa víða hækkað verulega á kjörtímabilinu 2022–2026 að því er segir í nýrri samantekt frá ASÍ og BSRB. Formaður BSRB segir gjöld hækka samhliða því að þjónustan sé skert. Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndir Baltasar og Charlize Theron með aðra kvikmynd í pípunum Nýjasta kvikmynd Baltasars Kormáks, Apex, hefur notið mikilla vinsælda á Netflix. Balti og Charlize Theron, sem leikur í Apex, vinna nú saman að öðru verkefni. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Flugfreyjan reyndist ekki vera með hantaveiru Brynjólfur Þór Guðmundsson Flugfreyja hjá KLM-flugfélaginu reyndist ekki vera með hantaveiru eins og grunur lék á um skeið. Þessu greindi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin frá í dag. Flugfreyjan var lögð inn á sjúkrahús þar sem hún sýndi væg sjúkdómseinkenni. Flugfreyjan var við störf í flugvél sem flaug frá Suður-Afríku. Ein þeirra sem komu um borð í flugvélina var eiginkona fyrstu manneskjunnar sem lést af völdum hantaveirunnar í skemmtiferðaskipinu Hondius. Konunni var vísað frá borði og hún flutt á sjúkrahús þar sem hún lést af völdum veirunnar næsta dag. Farþegaþota KLM. safnmynd. EPA / Ramon van Flymen Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Íþróttir Íþróttabanni Belarús aflétt Alþjóðaólympíunefndin hefur aflétt öllum takmörkunum á þátttöku Belarús í alþjóðlegu íþróttastarfi. Rússland er þó áfram undir refsiaðgerðum og rússneskir íþróttamenn þurfa enn að keppa undir hlutlausu flaggi. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Ekkert fararsnið á Starmer en Farage kampakátur Forsætisráðherra Bretlands sagðist taka ábyrgð á slæmri útkomu flokks síns í sveitarstjórnarkosningum. Leiðtogi Reform sagði flokk sinn hafa sýnt að hann gæti unnið bæði þar sem Íhaldsmenn og Verkamannaflokkurinn voru sterkastir. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Tveggja ára fangelsi fyrir smygl á amfetamínbasa Brynjólfur Þór Guðmundsson Héraðsdómur Reykjaness dæmdi Mateusz Andrzej Korczakowski í gær til tveggja ára fangelsisvistar fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Hann var staðinn að því að reyna að smygla amfetamínbasa til landsins við komuna frá Portúgal 13. mars. Korczakowski var með 2.000 ml af amfetamínbasa, með 60% styrkleika, á sér. Efnið var falið í tveimur flöskum í farangri hans. Maðurinn játaði sök en kvaðst ekki eiga efnin sjálfur. Hann kvaðst aðeins hafa tekið smyglið að sér gegn greiðslu. Héraðsdómur Reykjaness. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Flutti frá Beirút og sker steina í Grímsnesi Yara er arkitekt frá Líbanon og heillast af íslensku grjóti. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hægari vindur en frekar svalt Vestlægar áttir taka á morgun við af norðanvindinum sem blásið hefur um landið síðustu daga. Hægur vindur verður víðast hvar og hiti frá frostmarki að átta stigum. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Indónesía Þrír látnir og tíu göngumanna leitað við eldfjall sem fór að gjósa Brynja Dögg Friðriksdóttir Google map Þrír eru látnir og tíu göngumanna er saknað við eldfjallið Dukono á Halmahera-eyju í Indónesíu sem byrjaði að gjósa í dag. Öskuský frá eldgosinu nær allt að tíu kílómetra upp frá jörðu. Fólkið var í fjallgöngu við eldfjallið þrátt fyrir að svæðið hafi verið lokað síðan 17. apríl þar sem eldgos var talið líklegt. Tveir hinna látnu eru erlendir ríkisborgarar en sá þriðji er heimamaður. Ekki hefur verið greint frá þjóðerni þeirra sem enn er leitað, en upphaflega var talið að níu þeirra sem saknað var væru frá Singapúr. Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um fjölda látinna og þeirra sem leitað er að. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Umbótaflokkurinn bætir verulega við fylgi sitt Umbótaflokkurinn hefur nú þegar tryggt sér 300 sæti í sveitarstjórnum á Englandi. Verkamannaflokkurinn tapar miklu fylgi. Talning atkvæða gæti staðið fram á laugardag. 8. maí 2026 kl. 4:10ERLENDAR FRÉTTIR Loftslagsmál 2027 gæti orðið heitasta ár sögunnar Brynja Dögg Friðriksdóttir Strákar hlaupa yfir uppþornaðan árfarveg Tawi-árinnar í Jammu á Indlandi 1. maí 2026. AP / Channi Anand Evrópska loftslagsstofnunin Kópernikus segir flest benda til þess að veðurfyrirbærið El Niño verði með öflugari hætti í ár. Afleiðingar þess gætu orðið þær að 2027 verði heitasta ár sögunnar. El Niño-fyrirbærið á upptök í Kyrrahafi og myndast á tveggja til sjö ára fresti þegar yfirborðshitastig sjávar verður óeðlilega heitt. El Niño hefur áhrif á veðurfar um allan heim og er fyrirboði um hitastig og veðurfar. Þá benda mælingar stofnunarinnar til að hitastig yfirborðs sjávar í maímánuði slái fyrri met innan nokkurra daga. 8. maí 2026 kl. 2:55ERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Úkraínskum drónum beint að Moskvu í einhliða vopnahléi Einhliða vopnahlé Rússa hófst á miðnætti. Loftvarnarkerfi Rússa eyðilagði