Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Njarðvík vann fyrsta leikinn gegn Haukum

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 27 mínútumÍÞRÓTTIR Körfubolti Njarð­vík vann fyrsta leik­inn gegn Haukum Einar Örn Jónsson Úrslitaeinvígi Bónusdeildar kvenna í körfubolta hófst í kvöld. Haukar tóku á móti Njarðvík á Ásvöllum og höfðu gestirnir betur. Njarðvík skoraði fyrstu sex stig leiksins og gaf þar tóninn. Munurinn var svo 19 stig í leikhléi, 52-33, en Haukar minnkuðu muninn í eitt stig í þriðja leikhlutanum. Njarðvík náði þá aftur undirtökunum og vann með 12 stiga mun, 92-80. Liðin mætast næst í Njarðvík á mánudag og svo er þriðji leikurinn á Ásvöllum á fimmtudaginn kemur. Brittany Dinkins RÚV / Mummi Lú Fyrir 24 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Tveggja flokka kerfið liðið undir lok Tveggja flokka kerfið í breskum stjórnmálum er sennilega úr sögunni, ef marka má stjórnmálaskýrendur. Bogi Ágústsson telur ólíklegt að Starmer verði leiðtogi Verkamannaflokksins í næstu kosningum. Fyrir 50 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Troels Lund Poul­sen með stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð Friðrik Danakonungur fól Troels Lund Poulsen, leiðtoga hægriflokksins Venstre, að mynda ríkisstjórn eftir fundi með leiðtogum allra flokka sem eiga sæti á danska þinginu. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Fótbolti KR heldur topp­sæt­inu eftir end­ur­komu í Garða­bæn­um KR er áfram efst í Bestu deild karla og áfram með fullt hús stiga. Sigur þeirra á Stjörnunni í kvöld var þó torsóttur. Fjórir leikir voru í kvöld og einn fyrr í dag og urðu mörkin 26 í leikjunum fimm. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Björg­un­ar­skip kom afl­vana fiski­báti til hjálp­ar Fiskibátur með fjóra um borð þurfti aðstöð björgunarbáts til að komast til hafnar í dag eftir að bilun kom upp í gír skipsins. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál „Nokkr­ir Bakka­kots­mann­anna hafa reynt að stytta sér aldur“ Nokkrir mannanna sem voru vistaðir sem börn í Bakkakoti hafa reynt sjálfsvíg á síðustu mánuðum. Uppgjör þeirra við fortíðina er mjög erfitt, segir lögmaður þeirra. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Náttúra „Dýrin eru stjörn­urn­ar, ekki ég“ Ein áhrifamesta manneskja samtímans, sjónvarpsmaðurinn og umhverfissinninn, David Attenborough, er hundrað ára í dag. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Fjöldi at­huga­semda um notkun borg­ar­stjóra á inn­kaupa­korti sýni fram á góða stjórn­sýslu Borgarstjóri fagnar athugasemdum við notkun hennar á innkaupakorti borgarinnar og segir þær gott dæmi um góða stjórnsýslu og gott eftirlit með útgjöldum. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Rangárþing ytra „Ekki eitt ein­asta barn bíður“ Ekkert barn bíður eftir meðferð, segir mennta- og barnamálaráðherra. Nýtt meðferðarheimili fyrir drengi í vímuefnavanda var opnað á Rangárvöllum í dag. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Stór­sig­ur Vík­ings á ný­lið­un­um Einar Örn Jónsson Íslandsmeistarar Víkings fóru illa með Þór Akureyri í Bestu deild karla síðdegis. Víkingur skoraði þrjú mörk í hvorum hálfleik og vann því 6-0. Víkingur fór í efsta sætið, í bili hið minnsta, en Þórsarar, sem eru nýliðar í deildinni, eru í 7. sæti. Mörk leiksins: 1-0 Valdimar Þór Ingimundarson 10' 2-0 Elías Már Ómarsson 25' 3-0 Óskar Borgþórsson 28' 4-0 Karl Friðleifur Gunnarsson 50' 5-0 Óskar Borgþórsson 61' 6-0 Elías Már Ómarsson 72' Karl Friðleifur Gunnarsson skoraði eitt marka Víkings gegn Þór. RÚV / Mummi Lú Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Odd­vita­um­ræð­ur í Ölfusi Oddvitar framboða í Sveitarfélaginu Ölfusi mættust í oddvitaumræðunum á RÚV fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Tveir listar eru í framboði. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Á þriðja hund­rað manns syngja á heið­urs­tón­leik­um á Sel­fossi 250 tónlistarmenn á Suðurlandi koma fram á tónleikum á Selfossi um helgina. Með tónleikunum er verið að heiðra Björgvin Þ. Valdimarsson, tónskáld og kórstjóra, sem varð nýlega 70 ára. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Heil­brigð­is­eft­ir­lit­in skoða öryggi barna í lík­ams­rækt­ar­stöðv­um Heilbrigðiseftirlitin ætla að leggja áherslu á eftirlit með öryggi barna í líkamsræktarstöðvum eftir að Umboðsmaður barna sendi þeim erindi þess efnis. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Odd­vita­um­ræð­ur í Múla­þingi Oddvitar framboða í Múlaþingi mættust í oddvitaumræðunum á RÚV fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Fimm listar eru í framboði. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Knapp­ur tími til að flytja fólk úr Hondi­usi vegna veðurs Skemmtiferðaskipið Hondius, þar sem hantaveira hefur greinst, er væntanlegt til Tenerife á sunnudagsmorgunn. Það kemur ekki til hafnar og fólk verður flutt í land á litlum bátum. Veðurspáin er slæm og aðgerðirnar mega því ekki taka of langan tíma. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Leið­tog­ar allra flokka á fund Dana­kon­ungs í kvöld Dagný Hulda Erlendsdóttir Friðrik Danakonungur hefur boðað leiðtoga allra stjórnmálaflokka sem eiga sæti á þingi landsins á sinn fund í kvöld, einn í einu. 44 dagar eru frá þingkosningum og aldrei áður hefur tekið jafn langan tíma að mynda stjórn. Mette Frederiksen, leiðtogi Jafnaðarmanna, fékk stjórnarmyndunarumboðið eftir kosningar en hefur ekki tekist að mynda stjórn. Lars Løkke Rasmussen, leiðtogi miðjuflokksins Moderaterne, sleit viðræðunum í dag og stakk upp á því að Troels Lund Poulsen, leiðtogi hægriflokksins Venstre, fái stjórnarmyndunarumboð. Hann segir þurfa að breyta um stefnu í viðræðunum en útilokar ekki að Frederiksen verði áfram forsætisráðherra. EPA / Emil Nicolai Helms Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Grænland Motz­feld gengin í Demo­krati­it Vivian Motzfeldt hefur gengið til liðs við stjórnmálaflokkinn Demokratiit. Hún gegndi stöðu utanríkisráðherra Grænlands þar til flokkur hennar sagði skilið við landstjórnina fyrr á árinu. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Há­tíða­höld á sig­ur­deg­in­um lág­stemmd­ari en áður af ótta við árásir Hátíðahöld í Moskvu á morgun, þegar sigri á nasistum í seinni heimsstyrjöld er fagnað, verða lágstemmdari en áður. Ástæðan er ótti við drónaárásir Úkraínumanna sem hafa sótt fram að undanförnu. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Leita að lóð fyrir Heilsu­vernd Heilsuvernd og Akureyrarbær eiga í virku samtali um hentuga lóð fyrir uppbyggingu heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða á Akureyri. Þörfin er orðin afar brýn, að mati forseta bæjarstjórnar, og ljóst að bæta þurfi stöðuna verulega á næstu árum. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Bretland Dorrit segir að Farage muni gera Bret­land „frá­bært á ný“ Fyrrverandi forsetafrú Íslands óskar leiðtoga Umbótaflokksins til hamingju með kosningasigurinn í sveitarstjórnarkosningum og spáir því að hann verði næsti forsætisráðherra Bretlands. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Skoð­uðu hvern­ig mætti varð­veita David Att­en­bor­ough Forstjóri Fenris Creations kom að könnun á möguleikum þess að varðveita aðgerðasinnann David Attenborough með stafrænum hætti. Hann segir fólk til sem ætli sér að lifa að eilífu með því að hala sér niður í tölvur. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Bretland Bonnie Tyler haldið sof­andi eftir bráða­að­gerð Söngkonunni Bonnie Tyler er haldið sofandi á sjúkrahúsi í Faro í Portúgal. Hún gekkst undir bráðaaðgerð á þörmum í vikunni. Tyler er 74 ára. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Átta­villt­ur tjald­ur í Graf­ar­vogi Tjaldur hefur gert sig heimakominn fyrir utan rafiðnaðarverslunina Reykjafell á Blikastaðavegi í Grafarvogi. Starfsmenn hafa leitað aðstoðar fuglaverndar. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Sam­komu­lag við Lands­net í höfn og Blönd­u­lína 3 fer af stað Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti á dögunum samning við Landsnet um lagningu og útfærslu á Blöndulínu 3 í gegnum bæjarlandið. Línan verður að endingu lögð sem jarðstrengur. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg End­ur­greiddi tvo reikn­inga eftir fyr­ir­spurn fjöl­miðla um korta­notk­un Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri segir ekkert athugavert við notkun hennar á innkaupakorti sem hún hefur til umráða í störfum sínum, þrátt fyrir fjölda athugasemda. Hún endurgreiddi tvo reikninga í vikunni. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tveir í gæslu­varð­haldi til 20.maí Ekki sér fyrir endann á rannsókn lögreglu á alvarlegri líkamsárás í bílakjallara við Höfðatorg í mars. Tveir sitja í gæsluvarðhaldi og þrettán eru enn með réttarstöðu sakbornings. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Frede­rik­sen á fund kon­ungs í dag Dagný Hulda Erlendsdóttir Mette Frederiksen, leiðtogi Jafnaðarmanna í Danmörku, fer á fund Friðriks Danakonungs klukkan 15:30 í dag, að íslenskum tíma. Erfiðlega hefur gengið að mynda ríkisstjórn í landinu og 45 dagar eru liðnir frá þingkosningum. Frederiksen fer með stjórnarmyndunarumboðið. Lars Løkke Rasmussen, leiðtogi Moderaterne, tilkynnti í dag að hann vilji að Troels Lund Poulsen, leiðtogi hægriflokksins Venstre, leiði viðræðurnar í stað Frederiksen. Aldrei hefur tekið svo langan tíma í Danmörku að mynda ríkisstjórn. Tímamet var sett 2022 þegar stjórnarmyndum tók 44 daga. Mette Frederiksen var forsætisráðherra á síðasta kjörtímabili. EPA / EMIL HELMS Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Netöryggi „Tjónið er í lág­marki“ Ráðist var á móðurfyrirtæki námsumsjónarkerfisins Canvas í gærkvöldi með þeim afleiðingum að netföngum og samskiptum nemenda og kennara í Háskóla Íslands var lekið. „Tjónið er í lágmarki, það gæti verið verra,“ segir kennslustjóri. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Mannlíf Lands­mönn­um fjölg­aði í 395.050 Hugrún Hannesdóttir Diego Fjöldi landsmanna er kominn yfir 395 þúsund. Þeim fjölgaði um 520 á fyrsta ársfjórðungi. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Hagstofu Íslands. Karlar voru í meirihluta, eða yfir 202 þúsund á móti rúmlega 192 þúsund konum. 230 einstaklingar voru skráðir kynsegin eða annað. Erlendir ríkisborgarar voru 70.650 eða 17,9% af heildarfjölda. Meirihluti landsmanna var búsettur á höfuðborgarsvæðinu, eða rúmlega 252 þúsund á móti yfir 142 þúsund á landsbyggðinni. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 8 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Mos Def frest­a

Share this article