- What: Discussion about a potential agreement between Vals and Reykjavík City
- Impact: Talks about the transfer of sports facilities to the city
Innlent | mbl | 8.5.2026 | 22:54 Samkomulag Vals og borgarinnar alls ekki í höfn Hafrún Kristjánsdóttir formaður Vals er að auki íþróttasálfræðingur að mennt og furðar sig, sem Valsmenn aðrir, á tilkynningu Reykjavíkurborgar í dag. Ekki liggi grænt ljós fyrir hjá Val þar sem samþykkis aðalfundar sé krafist. mbl.is/Binni Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Þetta samkomulag er háð samþykki aðalfundar Vals,“ segir Hafrún Kristjánsdóttir, formaður íþróttafélagsins Vals, en hjá félaginu furða stjórnarmenn sig á því sem fram kemur á vef Reykjavíkurborgar, og greint var frá hér á mbl.is í dag, að samið hefði verið um yfirfærslu eignarhalds íþróttamannvirkja Vals til borgarinnar. Fjallar fyrri frétt mbl.is um tímamótasamkomulag Knattspyrnufélagsins Víkings við borgina um framtíðaruppbyggingu á athafnasvæðum félagsins að Traðarlandi 1 og Safamýri 26. Frétt af mbl.is Borgin samdi við Gróðrarstöðina Mörk, Víking og Val Um efni fréttarinnar skal vísað að mestu í hana sjálfa handan tengilsins hér að ofan en þó tæpt sérstaklega á niðurlaginu þar sem blaðamaður vitnar í tilkynningu á síðu borgarinnar um samkomulagið um yfirfærslu eignarhalds íþróttamannvirkja Vals til borgarinnar. Lýkur fréttinni með svofelldum orðum: „Eldra samkomulag á milli Knattspyrnufélagsins Vals, Hlíðarenda og Reykjavíkurborgar sem samþykkt var í borgarráði 14. desember 2023 liggur til grundvallar samningnum sem var samþykktur í gær, sem og samningsmarkmið Reykjavíkurborgar vegna yfirfærslu eignarhalds á mannvirkjum hverfisíþróttafélaga sem samþykkt voru í borgarráði 26. mars síðastliðinn. „Með samkomulaginu hefur Reykjavíkurborg efnt að fullu ákvörðun borgarráðs frá 2023 að vinna að endurskoðun á eignarhaldi íþróttamannvirkja að Hlíðarenda með það að markmiði að Reykjavíkurborg taki yfir rekstur þeirra,” segir í tilkynningu á vefnum.“ Fengu lokaeintakið í dag Eins og Hafrún segir í upphafi viðtalsins hefur aðalfundur alls ekki tekið samkomulagið til umræðu og það því enn ósamþykkt. „Þetta samkomulag liggur ekki fyrir,“ segir hún og staðfestir í framhaldinu aðspurð að vissulega sé það í bígerð og vonandi gangi allt upp á endanum. „Borgarráð samþykkti samkomulag í gær sem byggir á tillögum starfshóps Vals og borgarinnar í gær en við fengum bara lokaeintak af samkomulaginu í dag og erum ekki búin að fara yfir það að öllu leyti. Samkomulagið verður svo borið upp til samþykktar eða synjunar á einhverjum tíma þannig að þetta samkomulag hefur ekki verið gert við Val að svo stöddu. Við eigum eftir að taka afstöðu til þess, fyrirvari er gerður um samþykki aðalfundar Vals,“ segir Hafrún Kristjánsdóttir formaður að lokum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Hálf trommusveitin var á Samfés“ Björgvin Páll: Ætli ég verði ekki jarðaður hérna Uppbygging á Nónhæð er hafin á ný Samkomulag Vals og borgarinnar alls ekki í höfn Haukar með fullt hús Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Aukin samkeppnishæfni – aukin verðmætasköpun – bætt lífskjör Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Formleg opnun Lækjarbakka: Engin bið eftir plássi Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Rannsóknarnefnd um Bakkakot í smíðum Hantaveirusmit aldrei rannsökuð hérlendis Mest lesið Í gær Í vikunni Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Fordæma kosningamyndband Miðflokksins Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Miðflokksmenn verja myndbandið Heiða útskýrir frekar notkun á kortinu Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Stakk dóttur sína í hjartað 85 þúsund fengu 250 milljarða Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Nýjast á mbl.is » „Hálf trommusveitin var á Samfés“ Björgvin Páll: Ætli ég verði ekki jarðaður hérna Uppbygging á Nónhæð er hafin á ný Samkomulag Vals og borgarinnar alls ekki í höfn Haukar með fullt hús Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Aukin samkeppnishæfni – aukin verðmætasköpun – bætt lífskjör Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vilja fá hagsmunagæslu fyrir Laugalandsmálið Segjast engan mun sjá þrátt fyrir einkunnaverðbólgu Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Lars Løkke kyndir undir kóngi Mest lesið Í gær Í vikunni Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Fordæma kosningamyndband Miðflokksins Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Miðflokksmenn verja myndbandið Heiða útskýrir frekar notkun á kortinu Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Stakk dóttur sína í hjartað 85 þúsund fengu 250 milljarða Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Loka