Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Aftur til ársins 1978

  • What: Political discussion on housing policy
  • Impact: Local government and residents
Read Full Article →

Týr sá að Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra Íslands, hélt áfram að gera Kópavog að sérstökum skotspæni sínum í kaffisamsæti sem Samfylkingin hélt eftir skrúðgönguna 1. maí. Kristrún gagnrýndi bæjaryfirvöld í Kópavogi ­meðal annars fyrir að hafa ekki afhent Bjargi íbúðarfélagi neinar lóðir undanfarinn áratug og taldi það ósvinnu hina mestu. Bjarg er sem sagt eitt af þessum „óhagnaðardrifnu leigufélögum“ í eigu verkalýðshreyfingarinnar sem hafa sprottið upp eins og gorkúlur á undanförnum árum. Þar sem nánast öll áform ríkisstjórnar­innar og núverandi meirihluta í Reykjavíkurborg snúast um að afhenda slíkum félögum lóðir er útlit fyrir að umsvif þeirra muni vaxa gríðarlega, að öllu öðru óbreyttu, á næstu áratugum. *** Furðu lítið hefur verið rætt um þetta. Vafalaust ­hefur það eitthvað með hugtakið „óhagnaðardrifinn“ að gera. En málið er að þessi félög eru alls ekkert óhagnaðardrifin – þau eru hreint út sagt framúr­skarandi arðbær og hagnaðardrifin. Eins og bent var á í umfjöllun Viðskiptablaðsins í nóvember hefur rekstrarhagnaðarhlutfall Bjargs frá upphafi þessa áratugar verið að meðaltali 421% á ári og á sama tíma hefur arðsemi eigin fjár verið 35% að meðaltali á tímabilinu. *** Hagnaðurinn er því svo sannarlega til staðar og hann verður ekki fyrir neinni eðlisbreytingu við það eitt að renna til „óhagnaðardrifinna“ félaga í eigu verkalýðshreyfingarinnar. Það virðist furðu arðbært að vera óhagnaðardrifinn, en málið flækist þegar í ljós kemur að hagnaðurinn kemur beint úr vösum skatt- og útsvarsgreiðenda. Hann verður til vegna þess að þessi félög fá lóðir undir markaðsvirði og eru fjármögnuð með niðurgreiddum lánum frá ríkinu í gegnum Hús­næðis- og mannvirkjastofnun. Ríkisstjórnin ætlar að stórauka þessar lánveitingar. Hún hefur hreyft við þeirri hugmynd að hægt verði að framselja þennan mikla lánastafla til bankanna. Vaxtastrúktúrinn á hinu vaxandi lánasafni HMS er með þeim hætti að slík fjárfesting myndi aldrei koma til greina nema ríkið væri reiðubúið að selja með verulegum afföllum – með tapi. *** Með öðrum orðum miðar þetta allt að því að færa fjármálaumhverfið hér á landi aftur til þess sem það var kringum 1978. Týr leggur til að menn fari að klæða sig í Álafossúlpurnar og arka í átt að Hallærisplaninu með kláravín í vasanum. Týr er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 6. maí 2025.

Share this article