Íslenska tæknifyrirtækið ELVA Golf vinnur nú hörðum höndum að því að koma tæknilausn fyrirtækisins til Bandaríkjanna en um er að ræða háþróað greiningarkerfi fyrir golfþjálfun sem sameinar tölvusjón, gervigreind og lífaflafræðigreiningu til að bæta árangur kylfinga. Helgi Hjálmarsson, framkvæmdastjóri ELVA Golf, segir að kerfi félagsins hafi notið mikilla vinsælda á PGA-sýningunni sem fór fram í janúar á þessu ári í Orlando í Flórída. „Við tókum þátt í sýningunni núna í annað skipti og fundum fyrir mjög miklum áhuga frá gestum. Nú erum við byrjuð að leggja megináherslu á að koma greiningarkerfinu til einkaklúbba og háskóla í Bandaríkjunum sem bjóða upp á PGM-golfkennslunám.“ ELVA Golf var stofnað í febrúar 2023 af Helga Hjálmarssyni, Dr. Rob Neal, Arnari Má Ólafssyni, Grétari Eiríkssyni og gervigreindarsérfræðingunum Jaldert Rombouts og Eyrúnu Örnu Eyjólfsdóttur. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaði vikunnar . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .