Skakkiturn, umboðsaðili Apple á Íslandi, hagnaðist um 661 milljón króna í fyrra, samanborið við 548 milljónir árið áður. Tekjur námu 8.332 milljónum króna og drógust saman um 4,4% milli ára en framlegð jókst um 13,9% og nam 1.338 milljónum. Stöðugildi voru 22,6 á árinu, samanborið við 25 árið 2024, og námu launagreiðslur 292 milljónum. Eignir voru bókfærðar á 2.687 milljónir í lok árs og eigið fé nam 1.259 milljónum. Skakkiturn er í eigu GE Capital Invest ehf., fjárfestingarfélags Guðna Rafns Eiríkssonar. Lykiltölur / Skakkiturn ehf. 2025 2024 Tekjur 8.332 3.719 Eigið fé 1.259 1.149 Eignir 2.687 2.061 Afkoma 661 548 - í milljónum króna Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .