Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Atkvæði talin í Breiðholti vegna tónleika Herra Hnetusmjörs

Read Full Article →

Atkvæði Reykvíkinga í borgarstjórnarkosningunum um næstu helgi verða talin í íþróttahúsi ÍR við Skógarsel, en ekki í Laugardalshöll eins og í undanförnum kosningum. Ástæðan er sú að tónlistarmaðurinn Herra Hnetusmjör var búinn að panta höllina sömu helgi undir stórtónleika sína. Eva B. Helgadóttir, formaður yfirkjörstjórnar Reykjavíkur, segir að þau hafi vitað af stöðu mála í nokkurn tíma og strax farið að athuga hvaða möguleikar væru í boði. Engin vandræði hafi komið upp í tengslum við breytinguna. „ÍR-húsið er bara fínt hús og nóg pláss,“ segir Eva. „Það eina sem við vorum að skoða var aðkoma bíla með kjörkassana og það er ekkert vandamál.“ Tvær breytingar á kjörstöðum í Breiðholti Einnig hafa verið gerðar tvær breytingar á kjörstöðum í Breiðholti. Í stað íþróttamiðstöðvarinnar í Austurbergi verður kosið í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti og í stað Ölduselsskóla verður kosið í Seljaskóla. Hér geta kjósendur kannað hvort og hvar þeir eru á kjörskrá fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem eru á laugardag, 16. maí 2026.

Share this article