- What: Rescue teams were called out to assist with a medical transport of a person injured while hiking in Vatnaleið, Snæfellsnes.
- Impact: The injured person is receiving assistance from rescue teams and the Icelandic Coast Guard helicopter.
Björgunarsveitirnar Berskerkir í Stykkishólmi og Klakkur á Grundarfirði voru kallaðar út stuttu fyrir klukkan þrjú til að aðstoða við sjúkraflutninga á manni sem slasaðist á göngu um Vatnaleið. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, staðfestir þetta. Hann gat ekki sagt til um hvort maðurinn væri mikið slasaður eða ekki. Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur einnig verið kölluð út. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir þyrluna hafa verið fljóta af stað þar sem hún hefði verið nýbúin á æfingu. Hún hafi lagt af stað 14:52. Fréttin verður uppfærð.