Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

LIVE og Birta slíta viðræðum

Read Full Article →

Lífeyrissjóður verzlunarmanna og Birta lífeyrissjóður hafa ákveðið að ganga ekki til samrunaviðræðna eftir að hafa átt í könnunarviðræðum um mögulega sameiningu frá því í janúar. „Eftir ítarlega greiningarvinnu á rekstri sjóðanna og tryggingafræðilegum forsendum hefur verið ákveðið að hefja ekki formlegar samrunaviðræður að sinni,“ segir í tilkynningu. „Stjórnir beggja sjóða færa starfsfólki, stjórnarmönnum og öðrum sem lagt hafa í mikla vinnu við skoðun málsins, bestu þakkir fyrir sitt framlag.“ Sjá einnig LIVE og Birta í viðræður um sameiningu LIVE er næst stærsti lífeyrissjóður landsins og Birt fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn. Sameinaður sjóður hefði orðið stærsti lífeyrissjóður landsins. Með könnunarviðræðunum var horft til þess að meta hvort samruni gæti skilað auknu rekstrarhagræði og styrkt innviði beggja sjóða sjóðfélögum til hagsbóta.

Share this article