Innlent | Morgunblaðið | 14.5.2026 | 13:32 Hafa romm meðferðis að fornum sið „Veðrið hefur verið alls konar, stormar og þokur og bara mikið fjör,“ segir Einar Kárason af siglingunni. Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Þetta er hollenskt skip sem siglir um heimsins höf undir seglum og er byggt algjörlega eftir 19. aldar módelum,“ segir Einar Kárason, rithöfundur og í aðra röndina töluverður ferðaáhugamaður, en tæpur áratugur er síðan hann ók frá Los Angeles til Santa Barbara í Kaliforníu á nýjum Chevrolet Malibu, þó framleiddum í Suður-Kóreu, og þá er aðeins talið það sem blaðamaður þekkir til af ferðum höfundarins. Í þessu viðtali þurfti Morgunblaðið að sæta færis til að ná Einari í netsambandi klukkan 12.00 á hádegi að íslenskum tíma á mánudaginn þar sem hann var staddur á miðju Atlantshafinu, þó ekki alveg þar sem djöflaeyjan rís, í fríðu föruneyti, þar á meðal samferðamanns síns Auðuns Sigurðssonar, á vígalegri seglskútu, Stad Amsterdam , af þeirri gerð sem kallast „clipper“ á ensku. Skútan siglir undir hollenskum fána og er á vegum útgerðarinnar Rederij Clipper Stad Amsterdam. „Hér eru 30 manns í áhöfn og svona 20 farþegar rúmlega, þar af tveir Íslendingar, gamlir vinir og skólabræður,“ segir Einar af mannskapnum um borð og kveður þá Auðun báða hafa reynslu af því að sigla um heimsins höf. Hann segir það ævilangan draum að fara yfir Atlantshafið undir seglum en svo því sé haldið til haga liggur leið skipverja frá Boston, við austurströnd Bandaríkjanna, til Asoreyja sem er 15 sólarhringa ferðalag á opnu hafi og var hálfnað þegar þetta viðtal var tekið. Vindáttin alls konar „Veðrið hefur verið alls konar, stormar og þokur og bara mikið fjör,“ segir viðmælandinn aðspurður og tekur fram að þeir Auðun séu síst í fríi á siglingunni. „Þótt við séum farþegar tökum við þátt í öllum störfum, göngum vaktir á stýri, útkikki og seglum. Farþegarnir eru flestir hollenskir en svo eru hér Þjóðverjar, Ameríkanar, við og eitthvað fleira,“ segir hann frá. Sá mastra jór sem þeir ferðast með er 70 metra langt fley, þrímastra, og segir Einar að blásið hafi byrlega á leiðinni. „Það er vél í skipinu en hún hefur enn þá ekki verið sett í gang, aðallega notuð í höfnum. Vindáttin er alls konar og stundum sikk-sakkað eins og var gert í gamla daga og við komum svo eftir viku til Asoreyja,“ greinir Einar frá en síðan þau orð féllu eru þrír dagar liðnir þegar þetta viðtal birtist á prenti. Siglingin er í allt 2.000 sjómílur, sem jafngildir um 3.700 kílómetrum, og má hafa til viðmiðunar að sú vegalengd næmi tæplega þremur ferðum umhverfis Ísland eftir þjóðvegi 1. Þegar til Asoreyja kemur fara farþegar í land en skútan heldur för sinni áfram inn á Miðjarðarhafið. „Við Auðun fljúgum heim frá Asoreyjum gegnum Heathrow-flugvöllinn í London,“ segja sægarpurinn og rithöfundurinn einum rómi og talið berst að aðbúnaði um borð. „Þetta er enginn lúxus eins og á skemmtiferðaskipunum og er fyrir vikið blessunarlega ódýrara að fara þessa leiðina enda tökum við þátt í störfum um borð,“ segir Einar og lætur vel af máltíðunum, segir matinn með ágætum. Einar ásamt Auðuni Sigurðssyni, vini sínum og skólabróður, áður en lagt var í haf frá Boston á dögunum. Læknisfræðilegt gildi romms Jafnvel brennivínsdreitill? „Við sjáum um það sjálfir,“ svarar viðmælandi og vel má greina gegnum símann að hann glottir við tönn. „Við tókum með okkur örlítið romm að fornum sið. Í gamla daga var alltaf rommskammtur á alla á skútunum sem var nú meira til að hafa magann góðan. Þetta hefur allt læknisfræðilegt gildi,“ segir Einar Kárason rithöfundur að lokum, staddur á miðju Atlantshafinu á mánudaginn en nú kominn fetinu nær áfangastað á Asoreyjum þar sem þeir Auðun Sigurðsson ganga í land eftir 2.000 sjómílur frá Boston á þrímastra skútunni Stad Amsterdam . Skútuna hannaði Gerard Dijkstra og byggði útlit hennar á forföður frá 19. öld, freigátunni Amsterdam sem þó var herskip enda ber Stad Amsterdam ekki sama útlit heldur sver sig í ætt við clipper-skútur sem hannaðar voru sem hraðskreið vöruflutningaskip á sínum tíma. Smíðin var í höndum Damen-skipasmíðastöðvarinnar í Hollandi sem nú á dögum tilheyrir Damen Group, fyrirtæki sem rekur starfsemi sína í 120 löndum, og lauk smíðinni árið 2000. Einar nokkuð sjómennskulega klæddur á dekki Stad Amsterdam einhvers staðar á Atlantshafinu. Atvinnulausir smíðuðu Um Stad Amsterdam er það haft að hún sé „nútíma ofur-clipper í sögulegu samhengi“ og með því átt við að byggingarlagið sameini alla bestu eiginleika clipper-skúta fortíðarinnar, skipið sé búið tækni nútímans en skarti sígildu útliti og anda. Skútan telst hraðskreið og siglir almennt á 15 hnúta hraða en með hnútum er átt við sjómílur (1.852 metra) á klukkustund. Við byggingu skrokksins árin 1997 til '98 var atvinnulausum málmsmíða- og suðumönnum gefið tækifæri til að spreyta sig og fá um leið verkefni í atvinnuleysi sínu. Í ágúst 2015 var haldið upp á 15 ára afmæli Stad Amsterdam með þátttöku í SAIL Amsterdam-siglingakeppninni og við sama tækifæri var gefin út bók um sögu skútunnar sem meðal annars innihélt pistla frá Eberhard van der Laan, þáverandi borgarstjóra Amsterdam, og Frits Goldschmeding, einum þeirra hugmyndafræðinga sem stóðu að baki hönnun og smíði skútunnar. „Skikkju-Hrund það skemmtun bjó/skáldin mjúk í svörum/mönduls þegar mastra jó/minnis ýttu úr vörum.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » X26: Tveir dagar til kosninga og hiti færist í leikinn X26: Kópavogur – oddvitaslagur Hafa romm meðferðis að fornum sið Sagður vera ósáttur á Englandi Danadrottning lögð inn á spítala Umræðan Fyrstu skrefin að framtíðinni Jöfnun búsetuskilyrða er forsenda breytts atkvæðavægis Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Greiddi sama flugið tvisvar MAST veitir Ísteka skilyrt starfsleyfi Fósturforeldri á Suðurnesjum til rannsóknar Mest lesið Í gær Í vikunni Greiddi sama flugið tvisvar „Við vorum algerlega búnir á því“ Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi „Verið að dæla yfir okkur þvílíkri drullu“ Telur Kristrúnu draga fylgið niður Borgin styttir opnunartíma: Veldur ákveðnum áhyggjum „Ég var ekki alveg áttaður á þessu“ Ólík skuldaþróun FÍA neitar því að standa í aðgerðum Alþjóðlegt haglabyssumót í uppnámi Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Flugi Icelandair til New York aflýst Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Greiddi sama flugið tvisvar Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Nýjast á mbl.is » X26: Tveir dagar til kosninga og hiti færist í leikinn X26: Kópavogur – oddvitaslagur Hafa romm meðferðis að fornum sið Sagður vera ósáttur á Englandi Danadrottning lögð inn á spítala Umræðan Fyrstu skrefin að framtíðinni Jöfnun búsetuskilyrða er forsenda breytts atkvæðavægis Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ólík skuldaþróun Var skárri en ekkert fyrir neytendur Fósturforeldri á Suðurnesjum til rannsóknar Aðalatriðið að „þrekvirki“ hafi verið unnið Mest lesið Í gær Í vikunni Greiddi sama flugið tvisvar „Við vorum algerlega búnir á því“ Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi „Verið að dæla yfir okkur þvílíkri drullu“ Telur Kristrúnu draga fylgið niður Borgin styttir opnunartíma: Veldur ákveðnum áhyggjum „Ég var ekki alveg áttaður á þessu“ Ólík skuldaþróun FÍA neitar því að standa í aðgerðum Alþjóðlegt haglabyssumót í uppnámi Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Flugi Icelandair til New York aflýst Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Greiddi sama flugið tvisvar Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur