Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Lokanir eru nú þegar á Þingvöllum

Read Full Article →

Innlent | mbl | 14.5.2026 | 18:15 Lokanir eru nú þegar á Þingvöllum Sigurður Helgi Pálmason formaður Þingvallanefndar kveðst skilja gagnrýni Álfheiðar Ingadóttur á fyrirhugað tónleikahald á Þingvöllum en vill snúa vörn í sókn og fá Íslendinga á gamla þingstaðinn á nýjan leik. Samsett mynd Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Þetta ferli tók sjö mánuði og við fengum lögfræðiálit til að ganga úr skugga um að þetta stangaðist ekki á við neitt,“ segir Sigurður Helgi Pálmason, alþingismaður og formaður Þingvallanefndar, við mbl.is um undirbúningsvinnuna sem fram fór áður en nefndin gekk til atkvæða um tónleikahátíð Kaleo og fleiri listamanna í þjóðgarðinum 20. júní. Sigurður segir Þingvallanefnd hafa umboð til þess að setja upp takmarkaðar lokanir á Þingvöllum og nefnir gjána Silfru sem er vinsæll köfunarstaður. „Þar er lokað fyrir aðra aðila en þá sem borga sig inn til að kafa í Silfru svo við getum tekið þessa ákvörðun,“ segir hann og á við tónleikana sem eðlilega verða lokaðir öðrum en þeim sem kaupa á þá miða. Frétt af mbl.is „Ég var ekki alveg áttaður á þessu“ Leggur formaðurinn ríka áherslu á að rannsóknarvinnan fyrir tónleikasamþykktina hafi tekið langan tíma og hún hafi náð til allra mögulegra þátta. „Eitt af því sem við erum að gera og lögðum mikla áherslu á er öryggisþátturinn. Nú er öryggisráð sem hittist vikulega fram að tónleikunum og er búið að gera það síðan samþykkið var gefið, 25 aðilar sem mæta hverja viku og fara yfir hvert einasta öryggisatriði,“ heldur Sigurður frásögn sinni áfram. Kafað í Silfru 2025. Sigurður Helgi segir fordæmi fyrir því að hlutum þjóðgarðsins sé lokað og aðgangur seldur að, svo sem til köfunar í gjánni vinsælu. mbl.is/Árni Sæberg 400 í gæslu 20. júní Bendir hann á að yfir sumartímann heimsæki 10.000 manns Þingvelli daglega og sjái 20 starfsmenn þar um að veita þeim þjónustu. Á tónleikunum í júní verði heldur betur bætt í þar sem þar verði 300 manns og 100 lögreglumenn í gæslu á svæðinu auk þess sem 700 manns muni annast veitingasölu og sinna öðrum nauðsynjum fjölmennrar samkomu. Kveðst Sigurður mætavel skilja afstöðu Álfheiðar Ingadóttur, fyrrverandi þingmanns og ráðherra Vinstri grænna og fyrrverandi formanns Þingvallanefndar, sem hún setti fram í Kastljósi Ríkisútvarpsins fyrr í vikunni en Álfheiður hefur þrýst á nefndina að afturkalla leyfið fyrir tónleikunum. Frétt af mbl.is Taka á móti 20.000 gestum en óttast ekki vanhelgun Sagði hún það engin helgispjöll að fólk dansaði, duflaði og skemmti sér á þingstaðnum forna. Hins vegar væru það að hennar mati helgispjöll að rukka fólk um 20.000 krónur fyrir aðgang að svæðinu sem lokað yrði öðrum meðan á hátíðinni stendur. Álfheiður Ingadóttir ræddi við Sigurð Helga í Kastljósi og telur það helgispjöll að selja aðgang að Þingvöllum svo sem gert verði á fyrirhuguðum tónleikum. mbl.is/Ómar Óskarsson 95 prósent gesta útlendingar „Við erum þarna með helgistað Íslendinga án Íslendinga,“ heldur Sigurður áfram og bendir á að 95 prósent þeirra sem heimsæki Þingvelli nú til dags séu erlendir ferðamenn sem greiði einkaaðilum fyrir að fá að koma þangað. „Það er rosalega erfitt fyrir mig að segja að þetta og þetta stangist eitthvað á við það sem þegar er verið að gera,“ segir hann og bendir á í hvað það fé verði nýtt sem Þingvellir fá fyrir tónleikana, 40 milljónir króna. „Þessar 40 milljónir fara í það að styrkja tengsl þjóðgarðsins við grunnskólana þar sem þeir hafa dregið mjög úr sínum heimsóknum með skólabörn vegna þess hve kostnaðarsamar rútuferðir þangað eru orðnar. Þessa peninga tökum við og setjum í sjóð til að ná aftur tengingu við unga krakka, fá þá á Þingvelli og sýna þeim þennan frábæra og fallega stað,“ segir Sigurður. Koma aldrei við grasið Hann segir rekstur þjóðgarðsins til fyrirmyndar, þar hafi gengið snurðulaust að taka á móti einni og hálfri milljón erlendra ferðamanna á ári. „Og þeir koma aldrei við grasið nánast,“ tekur hann fram. Allar athugasemdir vegna fyrirhugaðra tónleika hafi verið skoðaðar og gríðarleg vinna farið í að fara yfir þær og þær forsendur sem þær tóku til. Jökull Júlíusson, primus motor Kaleo, og Jakob Frímann Magnússon tónleikahaldari og tónlistarmaður. mbl.is/Birta Margrét „Við höfum þaulfarið yfir öryggi garðsins og öryggi tónleikagesta. Þetta verður haldið á stað sem margoft er búið að tyrfa og fólk er aldrei að fara að komast á einhvern stað þar sem það getur valdið einhverjum eignaspjöllum, það byggist á mikilli reynslu þeirra sem hafa áður rekið þennan garð og við verðum að finna nýjar leiðir til að fá Íslendinga til að koma aftur og skunda á Þingvöll,“ segir nefndarformaðurinn. Sérhannað umferðarkerfi Sigurður bendir á að hugsanlega verði Alþingishátíðin haldin á Þingvöllum árið 2030, hundrað árum eftir þá gríðarmiklu hátíð sem þar var haldin 1930, á þúsund ára afmæli stofnunar allsherjarþings árið 930. „Síðasta hátíð sem við héldum, sem var svona stór, var árið 1994 [lýðveldishátíðin] og þar áður 1974 [1.100 ára afmæli Íslandsbyggðar]. Núna í dag erum við bara óviss um hvernig við eigum að stýra umferðinni þar sem við lentum í svo miklum vandræðum '94. Núna er tónleikahaldarinn búinn að búa til kerfi sem hann sérhannaði fyrir þessa tónleika og þar sem umferðinni er stýrt. Með þessum tónleikum fáum við að vita hvort við getum einhvern tímann haldið svona stóran viðburð án þess að allt fari í skrúfuna,“ segir hann af því sem nú er í vændum. Hann segir Þingvallanefnd hafa verið í miklum samskiptum við lögreglu og heilbrigðiseftirlit nú í aðdraganda komandi tónleika auk samstarfs við alla sem að tónleikunum koma. „Ef þetta gengur vel núna getum við beitt nákvæmlega sama fyrirkomulagi við þá hátíð – ef við viljum halda hana – sem hér yrði árið 2030,“ segir Sigurður Helgi Pálmason formaður Þingvallanefndar að lokum. Þingvellir hafa gífurlegt aðdráttarafl fyrir erlenda ferðamenn og eru þeir að sögn Sigurðar Helga 95 prósent þeirra sem þjóðgarðinn sækja. mbl.is/Ómar Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Golfsumarið að hefjast Lokanir eru nú þegar á Þingvöllum Kristín Björgvins mætti í fullum skrúða Stórleikur átta liða úrslitanna á Skaganum Stal bíllyklum og reyndi að aka á brott Umræðan Fyrstu skrefin að framtíðinni Þetta snýst um Hafnarfjörð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Greiddi sama flugið tvisvar X26: Kópavogur – oddvitaslagur Gufunesmálið: Átti von á mildari dómi Segir fasteignagjöld hafa lækkað mest í Kópavogi Mest lesið Í gær Í vikunni Greiddi sama flugið tvisvar Telur Kristrúnu draga fylgið niður Eyddi rúmri milljón af korti í heimildarleysi Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi „Ég var ekki alveg áttaður á þessu“ „Við vorum algerlega búnir á því“ „Verið að dæla yfir okkur þvílíkri drullu“ Borgin styttir opnunartíma: Veldur ákveðnum áhyggjum 31 þúsund þurfa að endurgreiða TR Ungir sjálfstæðismenn staðnir að verki í Eyjum Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Flugi Icelandair til New York aflýst Greiddi sama flugið tvisvar Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Nýjast á mbl.is » Golfsumarið að hefjast Lokanir eru nú þegar á Þingvöllum Kristín Björgvins mætti í fullum skrúða Stórleikur átta liða úrslitanna á Skaganum Stal bíllyklum og reyndi að aka á brott Umræðan Fyrstu skrefin að framtíðinni Þetta snýst um Hafnarfjörð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi Konungur kynnti áform Starmers: „Ekki núna, Andy“ Hætta rekstri þotanna fyrr en áætlað var Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Mest lesið Í gær Í vikunni Greiddi sama flugið tvisvar Telur Kristrúnu draga fylgið niður Eyddi rúmri milljón af korti í heimildarleysi Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi „Ég var ekki alveg áttaður á þessu“ „Við vorum algerlega búnir á því“ „Verið að dæla yfir okkur þvílíkri drullu“ Borgin styttir opnunartíma: Veldur ákveðnum áhyggjum 31 þúsund þurfa að endurgreiða TR Ungir sjálfstæðismenn staðnir að verki í Eyjum Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Flugi Icelandair til New York aflýst Greiddi sama flugið tvisvar Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum

Share this article