Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News RÚV

Þrír meintir eiturlyfjasmyglarar drepnir í loftárás

  • What: The US military conducted an air strike in the Caribbean, killing three alleged drug smugglers.
  • Impact: The US government has been targeting suspected drug smugglers in the Caribbean since September of last year, resulting in numerous attacks and fatalities.
Read Full Article →

Bandaríski herinn drap þrjá meinta eiturlyfjasmyglara í bát í loftárás í Karíbahafinu í gær, samkvæmt færslu hersins á samfélagsmiðlinum X. Bandaríkjastjórn, fyrir tilstilli Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, hóf að leita uppi meinta eiturlyfjasmyglara og smyglbáta í Karíbahafinu í september á síðast ári. Tugir árása hafa verið gerðar á báta á þessum slóðum og 133 manns hafa verið drepnir. Bandaríkjastjórn hefur, enn sem komið er, ekki lagt fram gögn sem sanna smygl eða ógn við bandaríska hagsmuni. Sérfræðingar hafa sagt árásirnar stangast á við alþjóðalög, þær séu aftökur utan dóms og laga, jafnvel þótt grunur leiki á smygli.

Share this article