Innlent | Kosningar | mbl | 15.5.2026 | 10:02 Öryggismál að tryggja aðgengi að hreinu vatni Stefán E. Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar „Borgarlínan er áreiðanleg lausn“ Kannast ekki við eigið kosningaloforð Brynjar Níelsson á grillinu „Við erum bílaþjóð“ X26: Baráttusætin í Reykjavík » Fleiri tengdar fréttir Sveitarstjórnarmál í Fjallabyggð snúast nú að stórum hluta um grunninnviði, samgöngur, skólamál og endurreisn stjórnsýslunnar eftir róstusamt kjörtímabil. Þetta kemur fram í samtali við oddvita þeirra þriggja lista sem bjóða fram í sveitarfélaginu fyrir komandi kosningar. Fjallabyggð varð til árið 2006 við sameiningu Ólafsfjarðarbæjar og Siglufjarðarkaupstaðar. Sveitarfélagið er nyrst á Tröllaskaga og samgöngumál hafa alla tíð verið eitt stærsta hagsmunamál íbúanna. Héðinsfjarðargöng breyttu stöðu byggðarlaganna verulega, en nú beinist athyglin að fyrirhuguðum Fljótagöngum og mögulegum nýjum göngum til Eyjafjarðar. Þrír listar bjóða fram: D-listi Sjálfstæðisflokksins, undir forystu Tómasar Atla Einarssonar, H-listinn, Fyrir heildina, undir forystu Helga Jóhannssonar, og S-listi Jafnaðarmannafélags Fjallabyggðar og óháðra, undir forystu Jóhanns K. Jóhannssonar. Stjórnsýslan veik Kjörtímabilið hefur verið viðburðaríkt í Fjallabyggð. Eftir kosningarnar 2022 mynduðu D-listi og A-listi meirihluta, en A-listinn býður nú ekki fram aftur. Á kjörtímabilinu hvarf bæjarstjórinn, Sigríður Ingvarsdóttir, frá störfum ásamt deildarstjóra fjármála, sem skapaði mikið óvissuástand innan stjórnsýslunnar. Tómas Atli segir að tala megi um „fyrri og seinni hálfleik“ á kjörtímabilinu og að erfiðleikar á fyrri hluta þess hafi kostað sveitarfélagið tækifæri og fjármuni. „Það má alveg segja að þetta hafi verið að nokkru leyti mjög viðburðaríkt kjörtímabil,“ segir hann og bætir við að stjórnsýslan hafi veikst um tíma. „Seinni hálfleikurinn hefur gengið mun betur heldur en sá fyrri.“ Helgi Jóhannsson segir að þrátt fyrir pólitískan ágreining hafi bæjarstjórn sameinast um að vinna úr stöðunni. „Við vorum komin í erfiða stöðu og ég held að samstarfið hafi bara tekist mjög vel í ljósi þessarar erfiðu stöðu,“ segir Helgi. Jóhann K. Jóhannsson segir mikilvægt að stjórnsýslan sé sterk. „Ráðhúsið er hjartað í hverju samfélagi,“ segir hann og bendir á að þegar óvissa skapist þar hafi það áhrif niður í stofnanir sveitarfélagsins. Tómas Atli Einarsson, fyrir D-lista, Helgi Jóhannsson, fyrir H-lista, og Jóhann K. Jóhannsson, fyrir S-lista settust niður með blaðamanni Morgunblaðsins. mbl.is/Kristófer Liljar Vatnsmálin efst á blaði Vatnsmál eru eitt helsta áherslumál allra framboðanna. Í báðum byggðakjörnum hafa komið upp vandamál með kalt vatn, sem tekið er af yfirborði, og heilbrigðiseftirlit hefur gert athugasemdir við stöðu mála. Þá er skortur á heitu vatni í Ólafsfirði. „Þetta er náttúrulega bara eitt af því sem sveitarfélagið þarf að vera með á hreinu, að fólk geti gengið að hreinu vatni,“ segir Helgi. Hann segir málið einnig skipta atvinnulífið miklu máli, ekki síst matvælavinnslu. Tómas Atli segir málið þegar komið í ákveðinn farveg með tillögum um tilraunaholur á vatnstökusvæði Brimnesár. Um heita vatnið segir hann sveitarfélagið háð Norðurorku, en því beri að halda uppi þrýstingi á leyfishafa. Jóhann tekur undir þetta. „Það er árið 2026 og hér á fólk bara að vera með örugg vatnsgæði og fá gott vatn bæði fyrir heimilin og fyrirtækin,“ segir hann. Einnig þurfi að auka aðgengi að vatni til þess að halda uppi þrýstingi á kerfinu sem meðal annars fæðir brunahana í sveitarfélaginu. Vilja opna Tröllaskagann Samgöngumálin eru annað stórmál. Frambjóðendur vilja að Fljótagöng verði að veruleika, en einnig að horft verði til nýrra ganga til Eyjafjarðar. Helgi segir Fljótagöng aðeins leysa hluta vandans. „Við verðum að fá betri samgöngur inn í Eyjafjörð. Þar er sjúkrahúsið, þar er mikil þjónusta,“ segir hann. Hann vill að Fljótagöng og ný göng til Eyjafjarðar verði hugsuð sem eitt stórt verkefni. Með því mætti „opna Tröllaskagann algjörlega“ og skapa góða varaleið fyrir Öxnadalsheiði. Skólar, atvinnulíf og húsnæði Skólamál eru einnig fyrirferðarmikil. Tómas Atli vill nýta betur húsnæði Menntaskólans á Tröllaskaga og sér tækifæri í auknu samstarfi grunnskóla og framhaldsskóla. Rætt hefur verið um að sameina miðstig grunnskólans og færa 5. bekk frá Siglufirði til Ólafsfjarðar. Helgi gagnrýnir að það hafi ekki gengið eftir fyrr. Hann segir þó skynsamlegt að nýta húsnæði sem þegar er til staðar í stað þess að byggja nýtt. Leikskólamál hafa einnig verið krefjandi, einkum vegna plássleysis í Ólafsfirði og styttri vistunartíma í kjölfar styttingar vinnuvikunnar. Jóhann segir sveitarfélagið þurfa að finna lausnir með foreldrum og leikskólum, til dæmis með dagvistunarúrræðum eða auknum sveigjanleika. Í atvinnumálum telja frambjóðendur að gera þurfi betur. Tómas Atli segir fókusinn hafa verið of lítinn. „Aðgerð númer eitt“ sé að efla samtal við fyrirtækin á svæðinu. Helgi vill að bæjarráð fari reglulega í heimsóknir til fyrirtækja. Jóhann segir ferðaþjónustuna eiga mikið inni, einkum með lengingu ferðamannatímans. Góð fjárhagsstaða Fjárhagur Fjallabyggðar er sterkur. Afkoma síðasta árs var um 250 milljónir króna og skuldahlutfall lágt. Tómas Atli segir svigrúm til framkvæmda til staðar og að lækkanir hafi þegar verið gerðar á fasteignaskatti, lóðarleigu, sorp- og vatnsgjöldum. Sorphirðumálin eru milli tannanna á fólki. Jóhann kallar þau „svarthol“ og segir þörf á betri flokkun og hagkvæmari lausnum. Helgi tekur undir og segir hægt að gera „miklu, miklu betur“. Í lokin eru frambjóðendur spurðir um afstöðu til Evrópusambandsins. Tómas Atli er afdráttarlaust andvígur aðild. „Mér finnst þetta að einhverju leyti vera bara uppgjöf fyrir þessu verkefni, að reka þetta þjóðfélag,“ segir hann. Helgi og Jóhann vilja báðir að þjóðin fái að kjósa um málið, en segjast enn þurfa betri upplýsingar áður en þeir taki persónulega afstöðu til spurningarinnar um hvort taka eigi upp aðildarviðræður við ESB. Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar „Borgarlínan er áreiðanleg lausn“ Kannast ekki við eigið kosningaloforð Brynjar Níelsson á grillinu „Við erum bílaþjóð“ X26: Baráttusætin í Reykjavík » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Sjötti strákurinn á leiðinni hjá Fanney og Garðari Nú hægt að þinglýsa kaupsamningum á örfáum mínútum Miklar nýjungar í starfsemi Bakka Opna eina stærstu Lindex-verslun í Evrópu í Kringlunni X26: Kosið á morgun og spennan magnast Umræðan Hvað færðu fyrir atkvæði þitt? Heilbrigðissetur sérfræðinga fyrir allt Suðvesturland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ég var ekki alveg áttaður á þessu“ Kannast ekki við eigið kosningaloforð Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Ýmsir ágallar á verklagi Mest lesið Í gær Í vikunni Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Kannast ekki við eigið kosningaloforð Fagnar fjörutíu árunum með stæl Brynjar Níelsson á grillinu Launin skert í fimmta sinn Ýmsir ágallar á verklagi Flytja ráðuneytið í miðbæinn Lögregla fengið nóg af nagladekkjum: Sjö kærðir Lokanir eru nú þegar á Þingvöllum „Borgarlínan er áreiðanleg lausn“ Greiddi sama flugið tvisvar Eyddi rúmri milljón af korti í heimildarleysi Telur Kristrúnu draga fylgið niður Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi „Ég var ekki alveg áttaður á þessu“ Ungir sjálfstæðismenn staðnir að verki í Eyjum „Við vorum algerlega búnir á því“ Lokanir eru nú þegar á Þingvöllum Áform borgarinnar komu borgarstjóra á óvart Greiddi sama flugið tvisvar Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Nýjast á mbl.is » Sjötti strákurinn á leiðinni hjá Fanney og Garðari Nú hægt að þinglýsa kaupsamningum á örfáum mínútum Miklar nýjungar í starfsemi Bakka Opna eina stærstu Lindex-verslun í Evrópu í Kringlunni X26: Kosið á morgun og spennan magnast Umræðan Hvað færðu fyrir atkvæði þitt? Heilbrigðissetur sérfræðinga fyrir allt Suðvesturland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir Kristrúnu fara með dylgjur Ólík skuldaþróun Aðalatriðið að „þrekvirki“ hafi verið unnið Markaður fellur í grýttan jarðveg: „Illa lesið“ Mest lesið Í gær Í vikunni Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Kannast ekki við eigið kosningaloforð Fagnar fjörutíu árunum með stæl Brynjar Níelsson á grillinu Launin skert í fimmta sinn Ýmsir ágallar á verklagi Flytja ráðuneytið í miðbæinn Lögregla fengið nóg af nagladekkjum: Sjö kærðir Lokanir eru nú þegar á Þingvöllum „Borgarlínan er áreiðanleg lausn“ Greiddi sama flugið tvisvar Eyddi rúmri milljón af korti í heimildarleysi Telur Kristrúnu draga fylgið niður Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi „Ég var ekki alveg áttaður á þessu“ Ungir sjálfstæðismenn staðnir að verki í Eyjum „Við vorum algerlega búnir á því“ Lokanir eru nú þegar á Þingvöllum Áform borgarinnar komu borgarstjóra á óvart Greiddi sama flugið tvisvar Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Eins og borgin hafi kveikt í húsinu