Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Síminn að hefja 500 milljóna endurkaup

Read Full Article →

Síminn tilkynnti í morgun um að stjórn fjarskiptafélagsins hafi tekið ákvörðun um allt að 500 milljóna króna endurkaupaáætlun sem hefjast í dag. Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2027, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma. Endurkaupin byggja á heimild sem samþykkt var á aðalfundi Haga í mars síðastliðnum þar sem stjórn félagsins var heimilað að kaupa eigin bréf fyrir allt að 10% af heildarhlutafé félagsins, þ.e. að hámarki 240 milljónir að nafnverði, í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Samkvæmt árshlutauppgjöri sem Síminn birti 28. apríl námu eignir félagsins 47,2 milljörðum króna og eigið fé var um 16,7 milljarðar í lok mars síðastliðnum.

Share this article