- What: An athlete blamed her positive drug test on her boyfriend's steroid use, suggesting transmission through semen.
- Impact: The athlete was banned from competing in the Winter Olympics.
Framhjáhald, typpastækkanir og hræðileg slys hafa verið áberandi í fjölmiðlaumfjöllun í kringum Vetrarólympíuleikana á Ítalíu. Við segjum fleiri sögur af svipuðu tagi í Heimskviðum í dag. Þar er fjallað um Sidney Milani, íþróttakonu frá Iowa, sem er í keppnisbanni eftir að sterar mældust í þvagsýni hennar í mars í fyrra. Hún vonaðist til að keppa í bobsleðakeppni ólympíuleikana sem byrjar á morgun en komst ekki á leikana. „Lífeðlisfræðilega mögulegt að þetta myndi mælast í sæði“ Hennar skýring var sú að kærasti hennar, sem hún bjó með á þessum tíma, hefði notað sterana en hann er ekki afreksíþróttamaður. Hún taldi líklegast að hún hefði fengið sér sopa af drykk með einhvers konar sterablöndu og þannig hefði það borist í þvagið. En það gæti líka hafa komist þangað með sæði kærastans. „Það er lífeðlisfræðilega mögulegt að þetta myndi mælast í sæði en ótrúlega ólíklegt að það myndi smitast milli fólks. Ef að einhver er með slíkt í sæðinu myndi hann sennilega falla á lyfjaprófi með því að skila þvagprufu, en að það smitist yfir í annan einstakling er gríðarlega ólíklegt, en það er ekki endilega alveg útilokað. Það eru miklu meiri líkur á því ef þú tekur drykk hjá einhverjum sem hefur sett eitthvað í drykkinn, þannig að upptakan verður miklu sterkari,“ segir Birgir Sverrisson, framkvæmdastjóri íslenska lyfjaeftirlitsins. Í keppnisbanni og ólympíudraumurinn úti Birgir segir mun líklegra að einhvers konar smit hafi orðið með svita, til dæmis ef hún hefur notað sömu föt og kærastinn. En það er alveg sama hversu mikið magnið er, reglurnar eru skýrar og ef eitthvað af lyfjum á bannlista mælist í íþróttamönnum þá fara þeir í keppnisbann. En það þurfi að skoða hvert tilvik fyrir sig. „Svo er skoðað magnið, hversu mikið magn fannst, og er þetta sem hún segir trúverðugt. Þannig að, í staðinn fyrir að dæma viðkomandi í fjögurra ára bann þá fór hún í eins árs bann. Þannig að hún er dæmd en ekki eins sek eins og hún hefði verið ef hún hefði verið að gera þetta viljandi,“ segir Birgir. Hver er Sidney Milani? Sidney Milani er fædd árið 1999 í Iowa og var ung farin að dreyma um blómlegan íþróttaferil. Hún hljóp hraðar en allar hinar stelpurnar þegar hún var lítil og byrjaði snemma að æfa frjálsar íþróttir. Hún varð spretthlaupari og eiginlega stórstjarna sem unglingur. Hún ólst upp í smábæ rétt fyrir utan Des Moines í Iowa og í menntaskóla varð hún fyrst til þess að vinna allar styttri hlaupagreinarnar á sama mótinu, í 100 metra, 200, 400 og 800. Hún hélt svo áfram að keppa fyrir háskólann í Iowa, gekk mjög vel og fáir í sögu skólans geta stært sig af þeim árangri sem hún náði. Hlaupaferillinn hafði því allt til þess að verða blómlegur, en hún tók ekki þá stefnu og missti áhugann og metnaðinn fyrir því að verða afreksíþróttamaður. Allavega í spretthlaupunum. Og eftir útskrift úr háskóla var ólíklegt að ólympíuleikar væru á stefnuskránni. Hvað þá í íþrótt sem hún hafði aldrei heyrt um. Dan Steele, þjálfarinn hennar í Iowa-háskólanum, keppti fyrir Bandaríkin í bobsleðakeppninni á Ólympíuleikunum í Salt Lake City árið 2002. Hann sá möguleikana og fannst Milani fullkomin í þessa íþrótt, var bæði sterk og kraftmikil með mikinn sprengikraft. Margir þeirra sem keppa á bobsleðum koma úr frjálsum íþróttum en snerpan og krafturinn þaðan nýtist vel þegar koma þarf þungum sleðanum á fulla ferð í brautinni, stökkva svo um borð og stýra honum yfir marklínuna eins hratt og hægt er, en keppendur ná allt að 140 kílómetra hraða í brautinni. Hún átti mikla möguleika á því að komast í bandaríska ólympíuliðið en sá draumur var úti þegar niðurstaða um keppnisbann lá fyrir. Hvað er ostarín? Ostarín-sterar ganga einnig undir nafninu Enobosarm eða bara SARM. Og þeir eru vinsælir hjá almenningi, fólki sem er í líkamsrækt og vill styrkjast og sjá árangur eins hratt og hægt er. Þeir eru vefjamyndandi og hafa áhrif á vöðvavöxt og hafa ekki eins mikil óæskileg áhrif og aðrir sterar. Birgir segir að þeim fylgi engu að síður aukaverkanir og þær geti komið fram löngu eftir að notkun þeirra er hætt. „Þetta er of mikið notað myndi ég segja. Þetta kallast SARM, selective androgenic efni sem hafa áhrif á ákveðna andrógeníska viðtaka í líkamanum en áhrifin eru mildari og á færri viðtaka heldur en andrógenískir og anabólískir sterar eins og til dæmis testósterón eða sterar sem eiga að líka eftir testósteróni. Og hefur að einhverju leyti mildari áhrif. Þetta er oft bara nóg til þess að menn taki sjensinn og hugsi bara heyrðu, ég ætla bara að nota þetta og það er ekkert mál. Það eru engar aukaverkanir en vandamálið með sterana, bæði SARM's eins og til dæmis Ostarín, og svo anabólísku andrógenísku sterana er að aukaverkanirnar koma ekki endilega í ljós fyrr en löngu löngu seinna, þannig að það geta verið að grassera aukaverkanir án þess að þú vitir af því og þetta er eins og með önnur lyf, það er ekki hægt að taka stera inn án þess að það séu aukaverkanir, það er bara lífeðlisfræðilega ómögulegt.“ segir Birgir. Vinsælt meðal almennings - líka á Íslandi Hann segir þetta vinsæl efni meðal almennings og eins og í flestum löndum sé mun algengara að þau séu misnotuð utan skipulagðra íþrótta en innan þeirra. „Það er miklu meiri áhætta að taka þessi efni í afreksíþróttum en utan því það eru engin lyfjapróf og engar samfélagslegar afleiðingar af því að stunda lyfjamisnotkun ef þú ert ekki að keppa í neinu og ekki undir neinu eftirliti.“ Bandaríkjamaðurinn James Dalton uppgötvaði þessa virkni um aldamótin en hann var að þróa lyf fyrir krabbameinssjúklinga eða þá sem glíma við mikla beinþynningu. Það hefði breytt miklu fyrir stóran hóp fólks en Dalton fékk lyfið ekki samþykkt. Engu að síður varð kúnnahópurinn stór og hann fór að heyra frá íþróttafólki sem leitaði til hans með skammtastærðir og hvað væri hægt að taka með nýja lyfinu hans, til þess að auka virkni til vöðvastækkar en draga úr óæskilegum áhrifum. Þau voru töluverð, sérstaklega hjá körlum - eistun minnkuðu og það endaði með því að þeir urðu ófrjóir. Svindlararnir ekki lengur með forskot Og síðan fór lyfjaeftirlitið að hringja. Ostarín var farið að finnast um allt og í íþróttamönnum af öllu tagi, í lyftingum, hlaupum, hokkíleikmenn greindust, mótorhjólamenn, hjólreiðamenn og keppendur á snjóbrettum, í bardagaíþróttum og öllu mögulegu. Það greindist í brasilíska stangastökkvaranum Thiago Braz í fyrra, en hann vann ólympíugull á leikunum í Ríó 2016. Hann er í keppnisbanni en ekki verið tekin ákvörðun um hvort hann verði sviptir verðlaunum. Birgir segir að það sé oft gert og í því ætti að vera mikill fælingarmáttur. „Ég heyri það oft í mínum störfum að svindlararnir séu langt á undan í tækninni. Það er ekki alveg þannig í dag, það var þannig fyrir einhverjum árum eða áratugum síðan en það er búið að fjárfesta mikið í rannsóknum og vísindastarfi til þess að uppgötva leiðirnar áður en þeir sem eru að svindla uppgötva þær.“ James Dalton, sem fyrir aldamót fann upp það sem síðar varð ostarín, er 63 ára og hefur alla starfsævina unnið að lyfjaþróun. Hann vinnur nú, ásamt starfsfélaga sínum í Memphis, að því að nýta smærri skammta lyfsins til að vinna á móti áhrifum þyngdarstjórnunarlyfsins Wegovy, sem lyfjarisinn Novonordisk framleiðir. Það á að hjálpa þeim sem glíma við offitu að halda eða byggja upp vöðvamassa á meðan kílóin hrynja af þeim á þyngdarstjórnunarlyfinu. Vonast er til að þetta nýja lyf verði samþykkt 2029 eða 2030. En það er stutt í starfslokin hjá Dalton og áhersla hans síðustu ár starfsævinnar verður að vinna gegn notkun ostaríns meðal afreksíþróttamanna og vinnur að því með bandaríska lyfjaeftirlitinu. Hann segist í viðtali við New York Times verja miklu meiri tíma núna í að koma í veg fyrir að fólk noti lyfið hans, heldur en hann gerði við þróun þess og tilraunir til að fá fólk til að nota það. En hann verður ekki hluti af lyfjaeftirlitinu á vetrarólympíuleikunum í Cortina og Mílanó á Ítalíu, sem er með sólarhringsvakt alla dagana sem leikarnir standa yfir og mörg þúsund sýni tekin úr íþróttafólkinu. Dalton ætlar sjálfur að vera heima og horfa, og njóta ólympíuleikanna. Hans uppáhaldsgrein á leikunum er að sjálfsögðu bobsleðakeppnin.