Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Lyfjastofnun varar við fölsuðum Xanax-hylkjum

The threat involves counterfeit Xanax tablets circulating in Iceland, which contain the potent veterinary sedative medetomidine instead of the expected alprazolam. The attack vector is physical distribution and ingestion of the fraudulent pills, posing a severe risk of overdose with complex medical consequences, including dangerous cardiac depression. There is no technical patch; the primary mitigation is user and public awareness to identify the solid white capsules and to contact emergency services immediately upon observing symptoms.
Read Full Article →

Lyfjastofnun varar við fölsuðum Xanax-hylkjum sem orðið hefur vart við í umferð á Íslandi. Fram kemur í tilkynningu að venjulegt Xanax sé á töfluformi en falsaða lyfið sé í samsttum hvítum hylkjum. Það inniheldur hvorki alprazólam né bensódíazepín, heldur mun sterkara slævandi dýralyf sem nefnist medetómidín. Inntöku þess fylgir mikil hætta á ofskömmtun sem haft getur alvarlegar afleiðingar. Medetomidín er virka efnið í ýmsum slævandi og verkjastillandi lyfjum sem aðallega eru notuð í dýralækningum. Það er gjarnan notað eitt og sér eða blandað við önnur lyf í minni aðgerðum eða sem undanfari svæfingar hjá dýrum. Medetomodín getur verið sérstaklega hættulegt fyrir starfsemi hjartans þar sem efnið hægir á hjartslætti og lækkar blóðþrýsting. Ofskömmtun getur reynst hættuleg og krefst flókinnar meðferðar. Verði vart einhverra þeirra einkenna sem nefnd eru hér að ofan, skal þegar í stað hafa samband við Neyðarlínu í síma 112.

Share this article