Innlent | mbl | 17.5.2026 | 11:01 Nefnd undir forystu Katrínar skorar á WHO Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra. mbl.is/Óttar Setja bókamerki Óháð nefnd undir forystu Katrínar Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, skorar á Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO) að lýsa yfir neyðarástandi í lýðheilsumálum á alþjóðavísu vegna loftslagsbreytinga. Nefndin, sem er skipuð fyrrverandi leiðtogum ríkisstjórna, ráðherrum og öðrum leiðtogum, leggur fram tillögur í sautján liðum til WHO. Meðal tillagna sem nefndin leggur til er að loftslagsbreytingar verði meðhöndlaðar sem vaxandi ógn við heilbrigðisöryggi, heilbrigðiskerfum verði umbreytt, aðgerðir á staðbundnum vettvangi verði umbreyttar og að endurbætur verði gerðar á efnahags- og fjármálakerfum sem knýi fram loftslagsvá. „Loftslagsváin er ógn við öryggi okkar, félagslega samheldni, mannréttindi og heilsu,“ er haft eftir Katrínu. „Hún er langt frá því að vera eingöngu vandamál fyrir komandi kynslóðir, hún er raunveruleg og yfirvofandi ógn fyrir okkur hér og nú í Evrópu. Aðgerðir í loftslagsmálum eru ekki aðeins nauðsynlegar. Þær eru arðbær fjárfesting í réttlátara og seiglara samfélagi. Við berum öll pólitíska og siðferðilega ábyrgð á að bregðast við núna.“ Loftlagsmál í þjóðaröryggisráð“ Nefndin skorar á leiðtoga ríkisstjórna að setja loftslags- og heilbrigðismál á dagskrá þjóðaröryggisráða og virkja viðeigandi ráðuneyti. Í tilkynningu segir að evrópsk ríki séu að beina opinberum útgjöldum í öryggismál vegna breytinga í alþjóðakerfinu en nefndin heldur því fram að loftslagsbreytingar séu aðalöryggisógnin sem raski innviðum, heilbrigðiskerfum og matvæla- og vatnsöryggi. „Loftmengun frá brennslu jarðefnaeldsneytis veldur dauða hundraða þúsunda manna um alla Evrópu á hverju ári. Sama jarðefnaeldsneyti og knýr áfram loftslags- og heilbrigðisvánna gerir orkukerfi viðkvæm fyrir birgðaáföllum og verðhækkunum; kostnaður sem lendir harðast á þeim sem síst hafa efni á honum,“ segir í tilkynningunni. Skyldubundin þjálfun heilbrigðisstarfsfólks Nefndin leggur fram sérstakar tillögur til að bæta loftslagsþol heilbrigðiskerfa og draga úr losun þeirra á gróðurhúsalofttegundum. Mælir nefndin með skyldubundinni þjálfun heilbrigðisstarfsfólks í loftlagsbreytingum og heilsu, aukinni áherslu á geðheilbrigði í skipulagningu loftlags- og heilbrigðismála og að lykilvísar um loftlagsmál verði samþættir í árangursmat heilbrigðiskerfa á landsvísu. Þá skorar nefndin á stjórnvöld að endurskoða hvernig þau mæla framfarir. Segir að verg landsframleiðsla telji neyslu jarðefnaeldsneytis sem hagvöxt en taki ekki tillit til heilsufarslegs kostnaðar sem hlýst af völdum mengunar, efnahagslegrar byrðar af völdum loftslagshamfara og velferðar komandi kynslóða. „Nefndin hvetur stjórnvöld og alþjóðasamfélagið til að byggja upp eftirlitskerfi sem nota mælikvarða sem setja heilsu, jöfnuð og umhverfislega sjálfbærni í forgrunn við ákvarðanatöku; og hvetur Alþjóða heilbrigðismálastofnunina til að styrkja samræmingu á sviði loftslagsmála og heilsu innan kerfis Sameinuðu þjóðanna.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Nefnd undir forystu Katrínar skorar á WHO Alonso segir áhersluna lagða á að vinna titla Er meira skjól á girtum palli? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Man. Utd - Nott. Forest kl. 11:30, bein lýsing Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Að sjálfsögðu langar mig í stjórn“ Fylgi Pírata líklegt til að dreifast á vinstriflokka „Það munar hársbreidd“ X26: Öll viðtöl og kappræður á einum stað Mest lesið Í gær Í vikunni Beint: Lokatölur liggja fyrir Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Pétur: „Mjög svekktur“ Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Hjónin komast bæði inn í sveitarstjórn „Nánast erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið“ „Það munar hársbreidd“ Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Vann 130 milljónir Beint: Lokatölur liggja fyrir Kjósendur óvanir biðinni: Fólk að tínast burt Frambjóðandi hyggst ekki kjósa með eigin flokki Fyrstu lokatölur birtar Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Staðan mun verri en undanfarin ár Kærður fyrir að trufla störf neyðarlínu ítrekað Flugi aflýst: Farangursvagn ók utan í vélina Beint: Lokatölur liggja fyrir Greiddi sama flugið tvisvar Vann 130 milljónir Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Nýjast á mbl.is » Nefnd undir forystu Katrínar skorar á WHO Alonso segir áhersluna lagða á að vinna titla Er meira skjól á girtum palli? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Man. Utd - Nott. Forest kl. 11:30, bein lýsing Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert X26: Öll viðtöl og kappræður á einum stað „Það munar hársbreidd“ Fylgi Pírata líklegt til að dreifast á vinstriflokka 15 stig á Tjörnesi og sjálfkjörið Mest lesið Í gær Í vikunni Beint: Lokatölur liggja fyrir Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Pétur: „Mjög svekktur“ Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Hjónin komast bæði inn í sveitarstjórn „Nánast erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið“ „Það munar hársbreidd“ Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Vann 130 milljónir Beint: Lokatölur liggja fyrir Kjósendur óvanir biðinni: Fólk að tínast burt Frambjóðandi hyggst ekki kjósa með eigin flokki Fyrstu lokatölur birtar Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Staðan mun verri en undanfarin ár Kærður fyrir að trufla störf neyðarlínu ítrekað Flugi aflýst: Farangursvagn ók utan í vélina Beint: Lokatölur liggja fyrir Greiddi sama flugið tvisvar Vann 130 milljónir Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“