Innlent | mbl | 17.5.2026 | 14:00 Flókið að tala um hægrisveiflu í borginni Viðreisn hélt velli og gott betur en það, sem og Vinstrið, en Samfylkingin náði ekki ásettum árangri. Ríflega þriggja áratuga langa valdaskeiði flokksins er þar með lokið. mbl.is/Eggert Jóhannesson Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Þreifingar hafnar á Akureyri „Allir búnir að eiga einhver samtöl“ Alsæll með niðurstöðuna Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð 16 af 23 hafa aldreið setið í borgarstjórn » Fleiri tengdar fréttir Dr. Eiríkur Bergmann, stjórnmálafræðingur, segir fulla ástæðu til þess að staldra við þær breytingar sem orðið hafa í borginni, enda ljóst að kjósendur Reykjavíkur hafi hafnað vinstrisinnuðum meirihluta. Þó sé erfitt að tala um eiginlega hægrisveiflu í borginni þar sem ytra vinstrið hafi haldið velli og það fremur verið miðjan sem gaf eftir. „Ef maður skoðar þetta í einhverri stórri mynd þá hefur Samfylkingin meira og minna ráðið lögum og lofum í Reykjavík í 32 ár, með stuttum hléum þar á milli og með ýmsum samstarfsflokkum,“ segir hann í samtali við mbl.is. „Þessu ríflega þriggja áratuga langa valdaskeiði Samfylkingarinnar er hins vegar lokið með þessum kosningum og það er alveg full ástæða til þess að staldra við hina stóru mynd og gera sér grein fyrir þessari breytingu sem hefur orðið.“ Í nýafstöðnum borgarstjórnarkosningum hlaut Sjálfstæðisflokkurinn 32,5% atkvæða og þar með níu borgarfulltrúa, sem er besta kosningaútkoma flokksins í 16 ár. Samfylkingin hlaut hins vegar verstu niðurstöðu frá stofnun flokksins, eða 18% atkvæða, og hefur því eftir sem áður fimm borgarfulltrúa. Frétt af mbl.is Versta niðurstaða Samfylkingarinnar frá upphafi Frétt af mbl.is Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Dr. Eiríkur Bergmann, stjórnmálafræðingur. mbl.is/María Matthíasdóttir Loksins komin stemning fyrir Sjálfstæðisflokknum Ýmsum svörum megi varpa fram við stóru spurningunni um það hvað hafi nákvæmlega leitt til þessarar niðurstöðu. „Eitt er auðvitað tíminn sjálfur, það blasir algjörlega við að það er bara kominn tími á Samfylkinguna,“ segir hann. „En svo er líka bara komin stemning fyrir Sjálfstæðisflokknum sem hann hefur ekki notið í mjög, mjög langan tíma. Svo eru að sjálfsögðu önnur atriði sem eru smærri í sniðum.“ Frétt af mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn vinnur stórsigur í borginni Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, fagnar kosningasigri. Eiríkur segir stemningu komna fyrir flokknum sem hann hafi ekki notið í langan tíma. mbl.is/Eyþór Fremur miðjan sem gefur eftir Hann segir það flókið að tala um niðurstöðu kosninganna sem hægrisveiflu þó að hægrisinnaðri flokkar hafi vissulega sótt í sig veðrið, enda hafi tveir fjarvinstriflokkar haldið velli og það fremur verið flokkar nær miðju sem gáfu eftir. Vinstrið hlaut 9,4% atkvæða og náði tveimur borgarfulltrúum inn, en Sósíalistar náðu naumlega einum manni inn með 4% atkvæða. Frétt af mbl.is „Það er ákveðin hægri sveifla“ „Þetta er meira miðjan sem er að gefa eftir; þó að Viðreisn sé að bæta við sig geldur Framsóknarflokkurinn til dæmis algjört afhroð eins og blasti við,“ segir hann. Þá segi það sitt að Samfylkingin hafi gefið nokkuð eftir og Flokkur fólksins hreinlega þurrkast út í borginni. „Það er ákveðin pendúlsveifla frá frjálslyndu vinstri og miðju og yfir í meira hægri og jafnvel íhald með Miðflokknum; en ytra vinstrið er ekki að gefa eftir.“ Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Þreifingar hafnar á Akureyri „Allir búnir að eiga einhver samtöl“ Alsæll með niðurstöðuna Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð 16 af 23 hafa aldreið setið í borgarstjórn » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Stórsigur Daníels og félaga en liðið féll samt Ingibjörg Sólrún biður Guðmund afsökunar Flókið að tala um hægrisveiflu í borginni 16 af 23 hafa aldreið setið í borgarstjórn Skórnir sem eru að gera allt vitlaust Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Telur að hún muni ná kjöri „Allir búnir að eiga einhver samtöl“ Beint: Lokatölur liggja fyrir Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Mest lesið Í gær Í vikunni Beint: Lokatölur liggja fyrir Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Pétur: „Mjög svekktur“ Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Hjónin komast bæði inn í sveitarstjórn „Nánast erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið“ Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Vann 130 milljónir Beint: Lokatölur liggja fyrir Kjósendur óvanir biðinni: Fólk að tínast burt Frambjóðandi hyggst ekki kjósa með eigin flokki Fyrstu lokatölur birtar Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Staðan mun verri en undanfarin ár Kærður fyrir að trufla störf neyðarlínu ítrekað Flugi aflýst: Farangursvagn ók utan í vélina Beint: Lokatölur liggja fyrir Greiddi sama flugið tvisvar Vann 130 milljónir Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Nýjast á mbl.is » Stórsigur Daníels og félaga en liðið féll samt Ingibjörg Sólrún biður Guðmund afsökunar Flókið að tala um hægrisveiflu í borginni 16 af 23 hafa aldreið setið í borgarstjórn Skórnir sem eru að gera allt vitlaust Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flókið að tala um hægrisveiflu í borginni Beint: Lokatölur liggja fyrir Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Forsætisráðherra tókst ekki að fella meirihlutann Mest lesið Í gær Í vikunni Beint: Lokatölur liggja fyrir Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Pétur: „Mjög svekktur“ Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Hjónin komast bæði inn í sveitarstjórn „Nánast erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið“ Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Vann 130 milljónir Beint: Lokatölur liggja fyrir Kjósendur óvanir biðinni: Fólk að tínast burt Frambjóðandi hyggst ekki kjósa með eigin flokki Fyrstu lokatölur birtar Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Staðan mun verri en undanfarin ár Kærður fyrir að trufla störf neyðarlínu ítrekað Flugi aflýst: Farangursvagn ók utan í vélina Beint: Lokatölur liggja fyrir Greiddi sama flugið tvisvar Vann 130 milljónir Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið