Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sveitarstjórnir bláar en ríkisstjórnin óhult

Read Full Article →

Innlent | mbl | 17.5.2026 | 22:12 Sveitarstjórnir bláar en ríkisstjórnin óhult Inga Sæland og Kristrún Frostadóttir. Hér sést framstykkið á búningi Kristrúnar betur. mbl.is/Karítas Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Borgin gaf upp vitlausar lokatölur í nótt Nærri 1.200 strikuðu yfir nafn Heiðu Bjargar Fundaði með fulltrúum í dag en flýtir sér ekki Hildur keypti sigurkjólinn á útsölu í Holtagörðum Sjálfstæðisflokkurinn fyrsti kostur Hjalta » Fleiri tengdar fréttir Sjálfstæðisflokkurinn vann víðast hvar kosningasigur í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum og hefur nú hreinan meirihluta í alls ellefu sveitarfélögum á landsvísu. Ekki brosir svo björtu við Samfylkingunni á sveitarstjórnarstiginu, en flokkurinn tapaði víða fylgi og missti meirihluta sína í nokkrum af stærstu sveitarfélögum landsins. Dr. Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur segir það ljóst að pendúllinn sé að sveiflast í átt frá niðurstöðum síðustu þingkosninga sem gátu af sér frjálslynda miðvinstri-ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins, og í átt að hægrisinnuðum- og íhaldsflokkum. Í samtali við mbl.is segir hann niðurstöðurnar á landsvísu því hafa verið viðbúnar. „Í stjórnmálum verður oft til ákveðið jafnvægi milli sveitarstjórnanna og ríkisstjórnar, og fyrst við erum með mjög frjálslynda miðvinstri-ríkisstjórn sjáum við pendúlinn fara í aðra átt í þessum sveitarstjórnarkosningum.“ Frétt af mbl.is Flókið að tala um hægrisveiflu í borginni Eiríkur Bergmann segir niðurstöðurnar á landsvísu hafa verið viðbúnar. mbl.is/Árni Sæberg Meirihlutar riðlast til Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi í mörgum stærstu sveitarfélaga landsins en missir það jafnframt í einhverjum þeirra, og þá helst þar sem hann hefur setið í meirihlutasamstarfi um nokkra hríð. Frétt af mbl.is Hreinn meirihluti Sjálfstæðisflokks í Kópavogi Meirihlutar Samfylkingar í Reykjavík , Reykjanesbæ og Mosfellsbæ eru fallnir, og í Hafnarfirði missir flokkurinn helming bæjarfulltrúa sinna. Miðflokkurinn sækir hins vegar í sig veðrið víða um land, og náði flokkurinn sveitarstjórnarmanni í mörgum sveitarfélögum sem hann hafði ekki boðið fram í áður. Frétt af mbl.is Hugsar sinn gang: „Dómurinn er fallinn“ Frétt af mbl.is Tölur annars staðar slá Heiðu ekki út af laginu Engin leið að spá fyrir um fall ríkisstjórnarinnar Eiríkur segir hins vegar enga leið að spá fyrir um það núna hvort niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna muni koma niður á störfum ríkisstjórnarinnar með afgerandi hætti. „Þetta er alveg augljóslega ekki sá árangur sem forystuflokkur ríkisstjórnarinnar vildi ná. Samfylkingin getur ekki verið sátt við þessa niðurstöðu, en ég sé ekkert í kortunum sem bendir til þess að hún skili sér síðan í falli ríkisstjórnarinnar í bráð,“ segir hann. Frétt af mbl.is Ríkisstjórnarflokkarnir með 32% fylgi í borginni Þá bendir hann á að Flokkur fólksins hverfi úr borgarstjórn og Samfylkingin gefi þar eftir, en þó haldi Viðreisn velli. „Það er ekki hægt að segja að Viðreisn sé að tapa neinu, eiginlega þveröfugt, en það getur samt vel fylgt þessari pendúlsveiflu frá frjálslynda vinstrinu og til hægri.“ Þó niðurstaðan kunni vel að veikja forystu Samfylkingarinnar að einhverju leyti sé því ekki útlit fyrir að spá Stefáns Pálssonar um að styttast kunni í næstu alþingiskosningar muni rætast. Frétt af mbl.is Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Borgin gaf upp vitlausar lokatölur í nótt Nærri 1.200 strikuðu yfir nafn Heiðu Bjargar Fundaði með fulltrúum í dag en flýtir sér ekki Hildur keypti sigurkjólinn á útsölu í Holtagörðum Sjálfstæðisflokkurinn fyrsti kostur Hjalta » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Segir vaxandi óánægju með Framsókn í Skagafirði Rúnar ósáttur: Algjörlega galið Sveitarstjórnir bláar en ríkisstjórnin óhult Borgin gaf upp vitlausar lokatölur í nótt Hvernig veistu að hann elski þig? Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Einu flugi aflýst og öðru seinkað Lítill tími gefist fyrir þreifingar Hreinn meirihluti Sjálfstæðisflokks í Kópavogi Flókið að tala um hægrisveiflu í borginni Mest lesið Í gær Í vikunni Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Pétur: „Mjög svekktur“ Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Ingibjörg Sólrún biður Guðmund afsökunar Hjónin komast bæði inn í sveitarstjórn Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Vann 130 milljónir Beint: Brugðist við kosningunum Kjósendur óvanir biðinni: Fólk að tínast burt Frambjóðandi hyggst ekki kjósa með eigin flokki Fyrstu lokatölur birtar Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Staðan mun verri en undanfarin ár Kærður fyrir að trufla störf neyðarlínu ítrekað Flugi aflýst: Farangursvagn ók utan í vélina Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Greiddi sama flugið tvisvar Vann 130 milljónir Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Nýjast á mbl.is » Segir vaxandi óánægju með Framsókn í Skagafirði Rúnar ósáttur: Algjörlega galið Sveitarstjórnir bláar en ríkisstjórnin óhult Borgin gaf upp vitlausar lokatölur í nótt Hvernig veistu að hann elski þig? Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ásdís: Skýr skilaboð Einu flugi aflýst og öðru seinkað Fundaði með fulltrúum í dag en flýtir sér ekki „Að sjálfsögðu langar mig í stjórn“ Mest lesið Í gær Í vikunni Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Pétur: „Mjög svekktur“ Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Ingibjörg Sólrún biður Guðmund afsökunar Hjónin komast bæði inn í sveitarstjórn Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Vann 130 milljónir Beint: Brugðist við kosningunum Kjósendur óvanir biðinni: Fólk að tínast burt Frambjóðandi hyggst ekki kjósa með eigin flokki Fyrstu lokatölur birtar Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Staðan mun verri en undanfarin ár Kærður fyrir að trufla störf neyðarlínu ítrekað Flugi aflýst: Farangursvagn ók utan í vélina Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Greiddi sama flugið tvisvar Vann 130 milljónir Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“

Share this article